Lag dagsins er: Vatnið með

Lag dagsins er: Vatnið með Sálinni

Shit, ég veit ekkert hvernig ég á að komast í bæinn aftur:

Málið er að ég er ennþá á sumardekkjunum og kæmist varla uppúr botnlanganum þó að þessi skafl myndi hverfa.

Annars er þetta búið að vera fínt, Guðmundur bróðir hennar Sigrúnar og Svana konan hans komu í heimsókn og á þessum 22 klukkutímum sem þau voru þarna gekk vel á koníaksbyrgðirnar hehehe, Þetta var voða ljúft, Ritz kex og ostar og mikið fínerí.


Guðmundur og Svana og tóm koníaksflaska.

Sem betur fór var til nóg af kaffi.

Nenni ekki að röfla meira

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Gerum okkar

Lag dagsins er: Gerum okkar besta með Íslenska landsliðinu

Jamm og jæja, nú er kallinn búinn að éta yfir sig af konfekti, toblerone í­s, hamborgarahrygg, ritz kexi og ostum. Því­lí­kt yfirlæti sem maður er í­ á Grundargötu 76, maður verður að taka á því­ í­ ræktinni eftir áramót því­ ég held að kí­lóin séu byrjuð að hrannast upp.

þetta er búið að vera rosalega fí­nt hjá mér. Fékk fí­nar jólagjafir og ber þar hæðst hringurinn minn, frakkinn minn og 128 mb minniskortið mitt, einnig fékk ég LOTR TT DVD SE og David Beckham my side. SNILLD.

Á annan í­ jólum fór ég í­ árlegt matarboð hjá elsku ömmu og afa.

Það var alveg rosalega fí­nt. Svo var spilað á risatjaldi á Kaffi 59

Um kvöldið fórum við Ninni og Rúna á ball á Röstinni á Hellisandi (skítapleis). Þar var margt um manninn og þar rakst maður á menn eins og Hemma Geir, Begga Sveins og Heiðar Geirmundsson var lí­ka í­ góðum gí­r.

Á Laugardeginum var svo stefnan sett á fótboltamót HSH í­ Ólafsví­k (lí­ka skí­tapleis) þar sem við Steini vorum búnir að skrá okkur til leiks. Tomminn ætlaði sér stóra hluti þarna og var búinn að smala saman hörku liði. Ég hafði planað að fá Lauga og Gaua félaga til að mæta, Ívar Karl, Atli og Egill áttu að vera hluti af þessu gríðarlega liði ásamt mér, Steina og Dabba frænda sem átti að halda hreinu. Eitthvað voru menn nú duglegir að finna upp afsakanir. Lauginn þurfti að fara í­ fjölskylduboð (piff, maður hefur nú dissað ættingjana fyrir minna en þetta), Gaui þóttist vera meiddur í­ hnénu. (sást svo í­ bolta á höfuðborgarsvæðinu sama dag). Ívar stalst til að keyra yfir hálft landið og Egill var að vinna. Medalí­u draumar Tommans dvínuðu. En Atli lét ekki á sér standa og mætti gallvaskur þegar Tomminn var búinn að lofa honum fari til baka samdægurs hehehe. Ég útskýrði svo fyrir honum seinna að hann þyrfti lí­klega að gista, vondi ég. Liðið var nú samt ágætlega upp byggt með Dabba í­ markinu og ég, Steini, Atli og Arnar Dóri (14 ára gutti sem stóð sig feikilega vel) áttum að vera útispilarar. Batti, Júlli Jobba og Hlynur voru okkur svo til halds og trausts ef á þyrfti. Fyrsti leikurinn okkar var við A lið Ví­kings Ólafsví­k og lyktaði honum með 11-1 sigri Ví­kings þar sem að Tomminn náði að setja eitt eftir gott skot Arnars Dóra í­ stöðunni 8-0. Frekar fúlt og voru draumar Tommans brostnir við þetta. En okkur til varnar þá var þetta lið alveg feikilega vel spilandi með Ejub þjálfara fremstan í­ flokki. Langt fyrir ofan okkar level. Næsti leikur var við liðið hans Hemma Geirs sem hafði unnið þetta mót 2 síðustu ár. Beggi Sveins, Hemmi, Hjálmur Dór, Hrannar Már og Zemek eru allt saman feikilega góðir spilarar og má geta þess að Hemmi og Beggi eru burðarásar í­ liði Ví­kings sem vann 3 deildina í­ sumar og Hjálmur Dór er leikmaður ÍA á Akranesi. Ekki áttum við von á góðu þarna en við börðumst eins og grenjandi ljón og komumst í 1-0 með marki frá Arnari Dóra, þeir jöfnuðu fljótlega og aftur komumst við yfir og aftur var Arnar á ferðinni, eitthvað var þetta farið að fara í­ skapið á Hemma og félögum því­ þeir þurftu að vinna með miklum mun til að vinna mótið. Leiknum lauk með sigri Hemma og félaga 7-5 og við stóðum alveg í­ þeim og vorum farnir að spila betur. Arnar Dóri skoraði 2, Atli 2 og Batti 1 mark.

Svo var það Reynir Hellisandi, fí­nt lið sem komst í­ 2-0 en með mikilli baráttu náðu Steini og ég að jafna metin 2-2 en þar með vorum við sprungnir, leiknum lyktaði með sigri Reynis 6-2. Þá var bara að spila um 4 sætið við Ví­king B sem voru með álíka lið og við. Þeim leik lauk með 2-2 jafntefli þar sem að Atli og Arnar skoruðu. Við enduðum í 4 sæti af 5 liðum með betra markahlutfall en Ví­kingur B. Það gengur bara betur næst.

Stelpurnar voru lí­ka að keppa og þar fór hún Rúna Jobba á kostum og skoraði fullt af mörkum og leiddi lið sitt til sigurs á mótinu.

Um kvöldið var Atli farlaus og fékk gistingu hjá mér. Ég blæddi á hann pizzu og video til að reyna að bæta honum þetta upp hehehe.

Ég krefst þess að Íbbi og Atli verði með á næsta ári því­ þetta var bara helví­ti gaman, ehaggi?

Og eitt enn, það er komið eggjastokkahljóð í­ Begga Sveins sýnist manni á öllu hmm, hvað haldið þið???

Þetta er hann Breki Þór Hermannsson, er hann ekki sætur? Breki sko hehehe.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Plug in

Lag dagsins er: Plug in Baby með Muse

Jæja, þá er maður kominn í fjörðinn fallega og kominn í betra skap, ja svei mér þá ef að jólaskapið er bara ekki farið að láta kræla aðeins á sér. Fallegur jólasnjórinn er farinn að falla og allt að verða svei mér fínt hérna, tók nokkrar myndir í gær og í gærkvöldi sem eru komnar inn á myndasíðuna.

Hérna eru nokkur sýnishorn:

GLEÐILEG JÓL öllsömul og farsælt komandi ár 🙂

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Jingle bells,

Lag dagsins er: Jingle bells, batman smells, Robin laid an egg, batmobile lost it’s wheel, the Joker got away hey með Bart Simpson

Djísús kræst er það eina sem mér dettur í hug núna, Ég vaknaði í gúddí fíling í morgun um 11 leytið, var búinn að plana að fara í ljós og sturtu og raka mig og tjilla aðeins eeeeenn neeeeei, það var ekki hægt. Ég vissi að ég þurfti að vesenast aðeins, var búinn að lofa að ná í pakka fyrir Benna, Pabba og svo átti ég eftir að kaupa nokkrar gjafir. Ég byrja daginn á að setjast fyrir framan tölvuna, spjalla við eitthvað lið á MSN og sona bara í gúddí fíling og þá hringir síminn. Á línunni er Benni frændi og er hann að biðja mig að redda sér aðeins, ekkert mál segi ég nú því að Benni er nú svona sirkabát búinn að redda mér svona skrilljón sinnum. En hjá Benna í þetta skiptið þurfti þetta að geras A.S.A.P þannig að öll plön mín voru þar með farin út um gluggann. Í einhverju geðveikis stressi hendist ég af stað og þar með byrjar ævintýrið.
Ég sest upp í bílinn og set í gang, byrja að bakka upp úr innkeyrslunni en kemst þá að því að ég er pikk fastur, líklega vegna þess að ég er ennþá á sumardekkjunum og þetta var svona blautur og ógeðslegur snjór sem var erfiður viðureignar. En með smá fram og aftur þjarki tekst mér að skjótast upp úr innkeyrslunni og má bara teljast heppinn að enginn var á ferli þarna því annars hefði nú farið illa, töluvert var farið að síga í mig þegar þarna var komið við sögu en ég var fljótur að gleyma því þegar ég setti Muse á fóninn (geislann). Byrja að fara og ná í Benedikt Búálf niður í morgunblaðshús fyrir Adam Inga litla frænda, mikil traffík og mikill pirringur, því næst kem ég við á BSÍ og fer í hraðbanka til að ná í pening, fer svo og hitti einhvern dúdda sem er að selja lófatölvu, borga 15.000 kr fyrir gripinn og tek svo þátt í einhverju kurteisishjali á meðan hann er eitthvað að sýna mér hvernig þessi blessaði gripur virkaði, ekki það að það kæmi mér eitthvað við því að ekki átti ég að fá þennan grip. Á þessum fimmtán mínútum sem ég varði þarna inni heyrði ég sirka tuttugu sinnum að hann væri læknanemi, líklega töluvert yngri en ég, hvað er ég að gera við líf mitt var ég farinn að hugsa. Jæja, álpast þarna út til þess að komast að því að ég hafði fest bílinn aftur í slabbi, snillingurinn ég. Tekst með smá lagni að losa hræið og hendist svo upp í EJS á Grensás til að ná í þennan jólaglaðning fyrir Uncle Benz. Því næst upp í VÍS að ná í jólaglaðninginn fyrir Mæ Óld Pop hjá honum Steina Snædal, Svo niður í BT að kaupa jólagjafir, Það má svo geta þess að umferðin í Skeifunni var skelfileg, Það mætti halda að allir í Rvík væru þar að versla, þvílíkt og annað eins. Þá hringir Onkul Benz aftur til að segja mér að ég þurfi að vesenast meira, Þeir sem hafa setið með mér í bíl vita að ég er þessi pirraða típa bakvið stýrið. URRR fer í SPRON, grýti þessari lófatölvu í bankastjórann og fer svo að finna jólagjöf HANDA MÉR frá elsku mömmu. Þegar það var búið hringir Ninnsterinn til að minna mig á að sækja buxur fyrir sig í Kringluna. GREAT, akkúrat staðurinn sem ég vildi vera á núna NOOOOOOOTTTTT. Kem við í gæludýrabúð til að kaupa gómsæti fyrir Beckham, Kemst þá að því að einhverntímann á meðan ég var sem pirraðastur að flakka hafði eitthvað HELVÍTIS FÍFL keyrt utan í bílinn MINN og stungið af. HELVÍTIS LÁGKÚRU AUMINGJA SLEFANDI HOMMI SEM RÍÐUR FLEKKÓTTUM ÞORSKUM ÍKLÆDDUR RÓSÓTTU MINIPILSI MEÐ SOKKABÖND OG SYNGUR YMCA Í C DÚR. Þar fór það, þarna sauð algjörlega uppúr hjá mér. Þegar ég var búinn að redda öllu sem var ætlast til af mér, búinn að hanga í geðveikri umferð fokking endalaust, búið að keyra á bílinn minn og stinga af, búinn að festa bílinn minn tvisvar og standa í röð í sirka 48 mínútur að þá var mér nóg boðið. Slökkti á símanum og fór heim. Bloggaði á meðan mesta reiðin er að renna úr mér. Sjitt hvað þessi helvítis jólageðveiki er mikið rugl.
Af hverju er þetta ekki eins og maður man þetta í æsku, ég og Ingvar frændi og Ninni bróðir vorum litlir, Mikil tilhlökkun að fá að fara í bæinn að versla jólagjafir, Kringlan var mest spennandi staðurinn í heiminum þar sem maður gat fengið allt sem hugurinn girndist. Mikil tilhlökkun og gleði. En núna, mikil geðveiki og pirringur, NIÐUR MEÐ JÓLIN segi ég nú bara, ég hef fengið nóg. UUUURRRRR nú er ég aftur orðinn pirraður.

Jæja, verð að fara að pakka niður því að ég er að fara í bolta og svo beint vestur. Teljandi líkur eru á að ég fótbrotni í boltanum og keyri svo á hest eða bara út af á leiðinni heim. Þannig að þið sem þekkið mig ADIOS og GL****** J**, sorry en bara get ekki sagt það á þessum tímapunkti.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Feel með

Lag dagsins er: Feel með Robbie Williams

Úff, var að koma úr bolta í sporthúsinu og þvílíkt puð, Tomminn tapaði reyndar en þeir sem áttu tímann á eftir okkur beiluðu þannig að við gátum spilað lengur, reyndar enduðum við bara þrír þarna inni, ég Steini og Siggi og að lokum voru ég og Siggi bara í miðju alveg til 22:40, semsagt tveggja tíma púl og Tomminn alveg búinn.

Annars er Tomminn kominn í jólafrí og á morgun er planið að kaupa síðustu jólagjafirnar, kíkja í bolta í Fylkishöllinni og bruna svo heim, vonandi að færðin verði góð en útlitið er engan veginn gott núna 😦

Bjarti punkturinn er að ég get nú loksins ráðið mínum eigin lagalista og þarf ekki að hafa þennan helvítis “pottþétt jól 1, 2 og 3 í eyrunum allan helvítis liðlangan fokking daginn, hnuss.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Fallerí fallera

Lag dagsins er: Fallerí fallera með Hemma Gunn

Helgi Rafn datt barasta út í ædolinu í kvöld, svo sem ágætt þar sem að hann Kalli litli fékk að halda áfram hehehe.

Helvíti hvað ég öfunda hann Soffa minn sem situr núna es ví spík við tölvu á Kanarí með hárbusta í annarri og smjör í hinni vel smurður á kantinum. Þetta er lífið marr, ekkert stress, engin helvítis Svala Björgvins að gaula jólalög með Bó Halldórs og ekkert frost, djös sæla marr.

Lífið í vinnunni versnaði all svakalega í dag þegar Tomminn mætti. Mér til mikillar skelfingar uppgvötvaði ég það að það var búið að skipta frá Létt 9..eitthvað yfir í 5 geisladiska hver af öðrum verri, eini ljósi punkturinn í tilveru minni er þegar það kemur lag af jólaplötu Ómars Ragnarssonar sem Tomminn átti þegar kallinn var barn að aldri. En sjitt hvað hin lögin eru öll ógeðslega slæm, að meðaltali heyri ég hvert lag svona þrisvar á fokking dag sem er allt allt of mikið. Soffi, ég öfunda þig meira en þú heldur. Hmm ætli það séu jólalög á Kanarí??? “hola un santi klaus trallallalalala” hehehe.

Jæja, nenni ekki að bulla meira.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Öll stefin

Lag dagsins er: Öll stefin úr Lord Of The Rings


Tomminn og Ninnsterinn fóru á sérstaka forsýningu á The Return Of The King í kvöld og var gríðarleg eftirvænting í Tommanum. Það er best að segja sem minnst um þetta þar sem að margir eiga nú eftir að sjá þetta en Tomminn verður að viðurkenna það að hann varð fyrir pínulitlum vonbrigðum þar sem að allt of miklu er sleppt út, og nú getur Tomminn skilið gremju Christopher Lee sem neitaði að mæta á frumsýninguna út af einu mikilvægu atriði með Saruman sem var klippt í burtu, Ninni var hins vegar gríðar kátur með þetta allt saman, enda hafði hann nú ekki lesið bækurnar.

Tommi á leið á LOTR

Svo fórum við Ninni niður í bæ og ég kíkti á Vegamót og hitti systurnar Rúnu og Beggu Jobbadætur og voru þær bara í góðum gír

Jæja best að fara að halla sér.

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Etthvað ógeðslegt

Lag dagsins er: Etthvað ógeðslegt jólalag með Mariuh Carey á Létt FM 666 (GUBB)

Tomminn er að stelast til að blogga pínu í vinnunni en það er sá staður sem Tomminn elur manninn þessa dagana, Maður þarf að hanga hérna með Létt FM níu bla bla bla eitthvað í eyrunum allan fokking liðlangan daginn og er neyddur til að hlusta á eitthvað helvítis jólarusl aftur og aftur og aftur og aftur og oft sömu lögin aftur og aftur og aftur og aftur.

Jæja, ég ætla að þykjast fara að gera eitthvað

Þangað til næst……

Lag dagsins er: The Sun

Lag dagsins er: The Sun Always Shines On TV með AHA

Smá pæling, þegar tveggja metra maður liggur í sófanum á Joe Boxer buxum einum fata og spilar tölvuleik sem er ætlaður fyrir þroskahefta og tekur það nærri sér þegar “kúlurnar hans” detta ofan í mark andstæðingana. Hvernig á maður þá að bregðast við??? Á maður að hugga hann og horfa fram hjá því að hann gæti kramið á mér hauskúpuna með annari hendi eða á maður að gera grín að þessar hegðun hans og horfa fram hjá því að hann gæti kramið á mér hauskúpuna með annari hendi eða á maður bara að líta fram hjá þessu og vona að hann fari bara að spila FIFA 2004?? Hvað finnst ykkur?

Já svo að Latínó frekjan frá Púrtó Ríkó vann skáta herfuna í Sörvævor í kvöld. Ég varð nú hálf feginn því að einhvern veginn fór þessi gamla skáta herfa ægilega í taugarnar á mér með þessu stanslausa andskotans væli að reyna að vera sæt og góð, gubb. Hennar helstu mistök voru að taka ekki hinn svala Jonní Ferplei með sér í úrslitin því að ekki átti hann nú marga vini þarna í djurí dútí. Mig er nú farið að hlakka svolítið til að sjá þetta Sörvævor olstars sem er í bígerð, þar mæta margir af mínum uppáhalds gæjum, t.d. Colbí úr Ástralíu Sörvævor, Rupert sem hefði mest átt skilið að vinna núna en karl greyið átti nú aldrei séns og svo uppáhalds gaurarnir úr Sörvævor í Afríku, þeir Lex og Geitabóndinn og nafni minn hann Big Tom og svo að sjálfsögðu Ethan Z sem var að hans sögn atvinnu maður í tuðrusparki og sýndi oft góða takta þar. Þetta verður ábyggilega fínasta sería.
Hvernig væri svo að hafa Sörvævor Iceland hmm? Henda einhverjum úrvalslýð af heimskum ameríkönum upp í snjótroðara og skilja þá eftir upp á vatnajökli með 1 kíló af hertum þorskhausum, held að það myndi slá í gegn hehehe.

Var líka að koma úr bolta þar sem að ég Íbbi og Atli vorum saman í liði og náðum barasta helvíti vel saman hehehe, fínasti bolti þar á ferðinni, töpuðum reyndar einum leik en ég kenni hinum strákunum um það þar sem “þeir” nenntu aldrei að hlaupa í vörn, ég var að sjálfsögðu í sjálfskipuðu hlutverki frammliggjandi framherja sem átti að hlaupa sem minnst og hanga mikið við mark andstæðingana til að fá í sig boltann hehehe.

Jæja, nenni ekki að röfla meira, það má geta þess að tveggja metra sambýlingurinn liggur nú í sófanum, er búinn að skipta um stellingu sem særir blygðunarkennd mína og spilar einhvern fáránlegan hundaleik og virðist fýla sig bara vel.

Þangað til næst……..