Vísitölufjölskyldan

Nú er komið svo að Tommi er orðinn tveggja barna faðir í Hafnarfirðinum. Svona er dagur Tommans núna:

05:37. vakna við að yngri drengurinn skríður upp í rúm
06:21. vakna aftur því einhver var þyrstur og þurfti að pissa
07:30. vakna við vekjaraklukkuna geisp
08:00. skutla litla á leikskólann
08:30. henda eldri guttanum í pössun og drífa sig í vinnuna
09:00-18:00. vinna
18:27. koma heim og elda matinn
18:28. þurrka upp mjólk sem helltist niður
18:29. kveikja á vidjóinu og skella Bubba byggi í tækið
18:42. gefa liðinu að éta… ofnhituð ömmupizza verður fyrir valinu
18:54. reyna að sjá íþróttafréttirnar á stöð 2… gengur ekki
19:41. vonast eftir að yngri guttinn sé að verða þreyttur
20:14. enn að vonast
21:08. þurrka upp appesínusafa af stofugólfinu
21:19. reyna að ná bráðnaðri karamellu úr buxunum mínum
21:23. yngri loksins sofnaður
21:28. lesa fyrir eldri guttann. Stöngin inn verður fyrir valinu kafli-7
21:58. Loksins sofnaður…. quality time með konunni framundan úúújeee
21:59. kemst að því mér til skelfingar að konan er sofnuð
22:00. stíg ofaní pissubleiu á leiðinni út úr svefnherberginu
22:03. fara í sturtu og skipta um föt
22:29. litli vaknar og vill drekka
22:49. loksins sofnar hann aftur
22:51. læðast læðast læðast, stíg á lítinn leikfangabíl berfættur með tilheyrandi öskrum og óhljóðum, vek alla í húsinu DOH.
23:47. loksins allir sofnaðir aftur.
23:57. skríð örþreyttur upp í rúm til konunnar sem neitar að láta mig hafa hluta af sænginni
23:59. reyni að sofna vafinn inn í brúnt bambateppi með hausinn á sófapullu… góða nótt

Dabbi… æ fíl jú pein

Þangað til næst…..

Heitt og Kalt

Það sem er heitt þessa dagana er eftirfarandi:

Karmellukaffið á Beygluhúsinu
Manchester United
Wayne Rooney
Nonnabiti
Skjár 1
CM
Rammstein
C vítamín
pulsuvagninn í Laugardal
Kótiletturnar hjá Kibba Jóns í Baulunni
feit útborgun
sæt og góð kærasta
mjúkur klósettpappír
Netkerfisstjóri Kvaðratrótarinnar

Það sem er Kalt þessa dagana er eftirfarandi:

Heitt og Kalt
Grensáskaffi með sína sígarettulykt
McDónalds
AS Roma
Rúdí Völler
Skífan
KC and the sunshine band
pungsveittar naríur af Steina Jobba
Ljóslaust baðherbergi
bilað mótorhjól
ORA Fiskibollur í dós
pulsurnar í Hyrnunni Bgn
hár visareikningur
tuðandi og veik sambýliskona
Gerilsneitt jógúrt með trefjum
Baunasalat
SS Skinka

Þangað til næst…..

Rooney

Hvað getur maður sagt??? Rooney var að spila sinn fyrsta leik fyrir Man Jú í gær og haldiði bara að strák guttinn hafi ekki smellt þrem kvikyndum framan í Rústa Reck sem klóraði sér bara í pungnum og vissi ekkert hvað hafði skollið á honum. Uuuuusss þvílíkur snillingur.


NÝR KÓNGUR Á OLD TRAFFORD

Leikurinn fór 6-2 fyrir Man jú og langt síðan maður hefur séð þá spila svona fínt, úúúújee, ég og Arnar Péturs austfirðingur sátum í alsælu í sófanum á meðan hver snilldartilþrifin á fætur öðrum litu dagsins ljós með Wayne Rooney í broddi fylkingar.

En nóg um það. Hafiði pælt í því hvað svepparækt á íslandi hefur verið í örum vexti síðustu ár???

Þangað til næst……

Sumarið búið

Jæja folks. Sumarið er víst búið hjá Tommanum þar sem að bensíndælan í ástkæra hjólinu mínu er hrunin, líklega verður hjálmurinn lagður á hilluna núna í bili, Svo er Maggi líka búinn að leggja hjálminn á hilluna þannig að aumingja Viggi verður bara að rúnta einn þessa dagana.



Those were the days but no more 😦

Logni átti stór afmæli í gær og vill Tomminn koma hamingjuóskum um þennan virðulega aldur sem við nálgumst öll. Sumir hraðar en aðrir… hvernig sem stendur á því???? TIL HAMINGJU LOGNI MINN

En nóg um það. Raggi vinnufélagi minn bjó til þetta líka fína vatnsmerki á allar myndirnar mínar sem þig getið skoðað með því að stækka einhverja mynd í myndasíðunni. Soffi ezka var svo seigur að skella því inn á rótina þessi elska. Reyndar eftir að ég var búinn að trufla hann endalaust í allan gær dag hehehe, aumingja Soffi, en að sjálfsögðu reddar hann alltaf málunum… ALLTAF, kiss kiss Soffi minn, þú ert maðurinn.

Mótorhjólalausi mótorhjólakappinn kveður að sinni….

Þangað til næst…..

Mánudagur….

Jæja, fór vestur um helgina, heimsótti ömmu mína og svo allt hitt pakkið líka hehehe neee segi svona.

Soffalingurinn búinn að fríska upp á síðuna, sem er gott.

Skrítið að horfa út á götu núna þar sem að fullt af einhverjum eirðarlausum krakkagríslingum eru á vappinu og hafa ekkert merkilegra að gera. Svo er Einar Strákúst farinn að díla. Hvað næst??? Uuuusssss.

Nennekki þessu röfli. Enda einhver mánudagsskítur í mannskapnum. Hverfandi gleði með auknu skammdegi. Leiðinda móða á afturrúðunni á bílnum í morgun. Bolti í gær þar sem Tommi og Gæi Hadda fóru mikinn. Fór á krossarann hans Alex í gær. Þvílíkt gaman. Spurning um að fjárfesta í svoleiðis græju líka hehehehe.

Þangað til næst……

Gossip

Jæja gott fólk, slúðrið er komið eins og svo oft áður er engin ábyrgð tekin á innihaldi dagsins, enda er hér á ferð afskaplega ábyrgðarlaus maður.

Heyrst hefur…..

að Snorri Sturluson jr sé gríðarlegur gúmmítöffari eins og sést berlega á þessari mynd.


Snorri er hérna með eina fýsuna upp á arminn í góðum töffaragír

að castið úr kvikmyndinni Skúbbí Dúúú sé á ferðalagi hér á landi.


Séð frá vinstri, Fred, Shaggy, Daphne og Velma

að Logni Stormson sé búinn að stofna útgerð í rækjuskoðunarferðum. Eitthvað hefur nú bissnessinn farið hálf illa af stað því engar rækjur hefur Lognið fundið.


Hér er Lognið í brúnni á rækjuskoðunarskipinu sínu Hávarði II

að Ísfirðingurinn snjalli Ísak hafi á dögunum fjárfest í forláta fjallatrukk sem áður var í eigu Andrésar Andar.


Ísak er hér stoltur á nýja trukknum

að Hökki hundur hafi um daginn fundið þef af pylsum, sem væri ekki frásögum færandi nema fyrir það að Hökki var uppi á öræfum.


Hökki varð svangur af þessri lykt

að sumar fýsur séu gefnar fyrir englaryk.


Þessar voru alveg útúr kúplaðar

að Soffi Rokk hafi um daginn gert all svakalega í buxurnar.


Þessi mynd dregur af allan vafa

að Signý Súra hafi hösstlað feitt þegar hún var í bissness ferð í Tævan.


Rónald McDónald var sáttur

að Soffi hafi farið í vörn þegar komið var að honum þar sem hann var að skoða http://www.spankmegood.com


Soffi var ósáttur með þessa hnýsni

að Bibba brjálaða hafi alveg orðið brjáluð þegar einhver óprúttinn náungi kláraði alla tómatsósuna


Bibba varð alveg snar eins og sést hérna

að nokkrar fýsur úr ÍR hafi hlotið verðlaun fyrir besta strippið, besta barminn og versta dansinn á lokahófi um daginn.


Þær áttu verðlaunin fyllilega skilið

að uppgjafalöggur séu líka fólk


þetta tiltekna löggugrey var sár yfir niðrandi ummælum Tommans

að stórlið Manchester United hafi lagt Liverpool að velli með 2 mörkum gegn 1


úúúúújeee

að Viggi Runna hafi orðið hverft við þegar honum var sagt hvað hann var gamall


Viggi er enn að ná sér

að týndi hlekkurinn sé fundinn


need I say more?

Æ dónt fíl læk itt ení mor

Þangað til næst…..

Linka tiltekt

Tók til í linkunum mínum og þar fengu nú nokkrir letibloggararnir að fjúka út. Þeir sem fuku út og af einhverjum ástæðum finnst að þeir eigi skilið að vera í hinu mikilfenglega linkasafni Tommans þá bara látiði mig vita. Komið með athugsemd í commentakerfið og góð rök fyrir veru ykkar þar og ég mun taka það til athugunar aight.

Þangað til næst…..

Tommi two times

Helgin nálgast, slúðrið nálgast. Bent nálgast… ha???

Tomminn fór illa að ráði sínu í gær. Kom heim úr vinnunni kl rúmlega sex og hitti þar fyrir 2 sjúklinga misjafnlega vel á sig komna. Þá langaði Tomma svo rosalega að fara á hjólið því Vigginn var á svæðinu. Lofa hálfpartinn Rúnu að vera snöggur og koma svo aftur og borða með henni, barnsleg gleðin skein úr andlitinu á mér þegar ég galla mig upp, gríp hjálminn og hleyp út. Það leið nú ekki langur tími þangað til hungrið fór að sverfa að hjá gamla og þannig fór að við Viggi ákváðum bara að skella okkur á Pítuna til að snæða. Ekki var ég að spá mikið í það þá en Rúna var allan tímann að bíða heima, að drepast úr hungri eftir að ég kæmi svo hún gæti borðað með mér. En á meðan var ég bara að belgja mig út á Pítunni í góðum gír. Svo loksins þegar ég álpast heim um 10 leytið finn ég eitt stk Rúnu alveg pissed í stofunni. Gúlp. Nú voru góð ráð dýr en að sjálfsögðu reddast alltaf allt einhvernveginn.
Þannig fer að fljótlega eftir að ég kom heim þá hringir Ninni og vill koma í heimsókn. Ég leyfi það með einu skilyrði… að hann komi með fæði fyrir brjáluðu konuna. Hann gerir það og kemur svo með einn Nonna sem Rúna slafrar í sig með bestu list. Allt er gott sem endar vel ehaggi???

Annars er komið internet á hringbrautina og hægt er að komast á netið þar en bara ekki þráðlaust. Þarf aðeins að fá aðstoð fróðari manna við þetta helvíti og þá ætti þetta að hafast.

Svavar Áslaugs…. hvað er hægt að segja um þennan mann sem ekki hefur verið sagt áður? Haldiði bara að kallinn hafi ekki rokið til í gær í einhverju stundarbrjálæði og keypt sér nýjann bíl. Ekki bara einhvern venjulegan bíl neeeeii. Heldur enn eina Imprezuna 200+ hestöfl og alles. Uuuusss flottur bíll og allt það en kommon Svavar.

Jæja, bolti í kvöld. Spurning um að fara og svitna kvefinu úr sér aight.

Þangað til næst……

Kuskus

Wíssæd, Soffus und his spús komu til landsins í gær. Lítið haft fyrir því að hafa samband en ætli kallinn hafi ekki verið á hraðferð, við skulum vona það frekar en að hann sé eitthvað fúll út í mig hmmm.

Maður er allur að braggast eftir þessa leiðinda flensu og sér maður fram á að geta sett hjólið í gang fljótlega, enda hefur það staðið alveg óhreyft á meðan maður er svona veikur 😦
Rúna er orðin alveg fárveik heima og Steini kallinn er eitthvað að slappast líka. Ferlegt ástand á Hringbrautinni.

Búið er að borga boltann þannig að það er allt í gúddí á þeim bænum.

Sjit marr, sáuði dáleiðsluna í 70 mín í gær. Auddi Blö var eins og ég veit ekki hvað, mjög fyndið, gaurinn var að hafa samfarir við stól og strippa fyrir Pétur Jóhann. Frekar asnalegt sjitt.

En nóg um það, nenni ekki að röfla meira í bili.

Þangað til næst…..

Líður vel í dag

Já góðir hálsar, Tommanum líður afbragðsvel í dag. Ástæða þessarar vellíðunar er nú fyrst og fremst hrakfarir Lifrapollsmanna á gömlu torfunni í gær. Já mínir menn í Manchester United skelltu Lifrapollinum 2-1 í gær, mér til mikillar gleði. Sérstaklega í ljósi þess að meirihlutinn af mínum vinum og kunningjum halda með þessu skítaliði. Þeir voru líka full bjartsýnir á gott gengi Lifrapolls í þessum leik út af einhverju spænskum pappakössum sem eiga að redda öllu hmmm. Hann Járni vinur minn fór mikinn á sinni heimasíðu fyrir leik og var með einhverjar yfirlýsingar um Harry Kjúvel bla bla bla. Hann var nú góður í leiknum í gær NOOOOTTTTT hehehe. Það er óhollt að pissa upp í vindinn því yfirleitt þá pissar maður yfir sjálfan sig hmmm.

Ferdinand kom aftur og það var bara eins og ekkert hafði ískorist hjá honum. Það var allt annað að sjá vörnina í þessum leik og þetta veit á gott. Því til marks vil ég segja að Liverpúl skoraði ekkert mark á Old Trafford í gær því Jón Ósjei skoraði markið fyrir þá hehehehe.

Eitt enn…. Úúúúúúúúújjeeeeee

Þangað til næst…..