Duran Duran

Já, kallinn er á leiðinni á Duran Duran. Þannig er mál með vexti að hún Ellen E. bauð annað hvort mér eða Rúnu á DD og þurftum við því að velja hvort okkar færi. Ég sagði Rúnu að hún mætti fara ef að hún gæti nefnt alla gaurana í Duran Duran með nafni. Hún hélt það nú, Simon le Bon og svo einhver sem hún hélt að héti Taylor. Jú jú, hún var nokkuð nærri því en ekki nóg hehehe, Þannig að ég er á leiðinni að sjá þá Simon le Bon, Nick Rhodes, John Taylor, Andy Taylor og Roger Taylor. Takk Ellen.
En svona að öllu gamni slepptu þá má hún Rúna mín ráða hvort hún fer eða ekki, eina krafan sem ég geri er að hún verði búin að mjólka sig í svona eins og einn pela áður en hún fer. Up to her.

En ef ég fæ að fara þá er það bara eftirfarandi tékklisti fyrir kallinn:

– 2 brúsar af hárlakki (tékk)
– silfurgrá jakkaföt sem ég get brett upp ermarnar (tékk)
– bleik skyrta (tékk)
– hárblásari (tékk)
– flock of seagulls greiðsla (græja það í kvöld)
– gloss og augnmálning (tékk)
– grifflur (ath hjá Benna frænda)
– kínaskór (tékk)

Ef þetta reddast allt þá verður stuð hell je

Þangað til næst…..

Mamma mía

Jæja fólk. Eitthvað klikkaði þetta með fæðingarorlofið mitt því læknarnir á LSH ákváðu að fara frekar á einhverja ráðstefnu heldur en að gera aðgerð á henni Rúnu minni. Því þurfti að fresta aðgerðinni til 14 júlí og þar af leiðandi þurfti Tommi litli að fresta fæðingarorlofinu til 11 júlí sem er nú bara fínt. Ég verð þá í fríi eitthvað fram yfir verslunarmannahelgi.

Litla fjölskyldan fór upp í sveit um liðna helgi og hitti þar fyrir hin ýmsu ættmenni sem vissu ekki einusinni að kallinn væri búinn að fjölga sér. En það var samt mjög gaman þrátt fyrir leiðinlegt veður.

En nóg í bili

Þangað til næst…..

Bara til að bulla eitthvað

Gott veður í dag. Ég er náttlega fastur hérna í vinnuni. Guði sé lof fyrir góða loftkælingu. Ég fer aftur í fæðingarorlof eftir helgi. Rúna sæta er að fara í aðgerð og láta laga æðarnar í löppinni eftir þennan bannsetta blóðtappa sem hún fékk í vetur. Eftir það ætti hún nú að geta haldið áfram að lifa eðlilegu lífi. Hætt að vera í þessum 18 þús dyn sokkabuxum og farið að æfa fótbolta aftur. Þá lyftist nú brúnin á henni uuuusssss. ÍR skvísunum veitir ekkert af smá liðsauka. Nema ég gæti dobblað hana í Vatnsberana sem eru búnir að tapa 2 leikjum í röð… hnuss.

Við erum svona að spá í að kíkja til ömmu á Hofstöðum um helgina. Þar á víst að vera ættarmót og ef spáin verður góð þá er aldrei að vita nema maður skelli sér og sýni ömmu litla guttann. Það fer eftir veðri og vindum.

Þangað til næst…..

Erfið helgi að baki

Já maður er þokkalega búinn eftir þetta mikla ferðalag. Á fimmtudaginn lögðum við Viggi af stað einhverntímann eftir kl fjögur og hjóluðum áleiðis í Borgarnes þar sem Maggi og Ninni biðu eftir okkur. Svo fórum við í Bauluna og fengum okkur að éta hjá Kibba og Sigrúnu. Svo var brunað alla leið í Varmahlíð þar sem við tókum þátt í stærstu hópkeyrslu sem ég hef séð. Það kom meira að segja mynd af kallinum í mogganum á föstudaginn, bls 2 til að vera nákvæmur (fyrir miðju) Þar er kallinn að spóka sig á 35 km/h innan um eintóma hippa. Hinir úr klúbbnum voru þarna aðeins fyrir framan og náðust þar af leiðandi ekki á mynd.

Á föstudeginum 17 júní hjóluðum við til Húsavíkur og hittum öll ættmennin hans Magga. Þar buðu Unnur og Torfi okkur í köku og svo fórum við í kjúlla til Unnar og Trausta. Takk kærlega fyrir okkur segi ég nú bara. Þetta var alveg eðall og vel tekið á móti okkur.

Á laugardeginum hjólaði ég svo bara einn til Grundarfjarðar nánast í einum rikk. Stoppaði örstutt á Blönduósi og tók svo bensín í Baulunni. Ástæðan fyrir því að maður dissaði drengina svona var náttlega að maður saknaði Rúnu og lilla litla svo rosalega mikið. Enda var maður þokkalega lúinn á laugardagskvöldið eftir alla þessa kílómetra. Meikaði ekki einu sinni að skella mér á ball hvað þá meira.

Svo var bara brunaði í bæinn í gær í grenjandi rigningu. Þar fékk nýi mótorhjólagallinn minn sína fyrstu alvöru þolraun og stóðst hann hana með prýði. Hélt öllu vatni og vind frá líkamanum eins og vera ber og rann maður alveg skrjáfaþurr inná bílaplanið við blöndubakkann rétt tæplega sex í gær.

Þá hafði maður nokkrar mínútur til að búa til leikskýrslu og græja sig fyrir leikinn sem byrjaði 19:30 í gærkvöldi.
Leikurinn var mjög skemmtilegur og mikil barátta. Við í Vatnsberunum vorum klaufar að klára ekki dæmið. Þeir skorðuðu kolólöglegt mark í fyrri hálfleik enda sóknarmaðurinn þeirra einhverjum 4-5 metrum fyrir innan vörnina. Í seinni hálfleik jafnaði Hrannar leikinn eftir hornspyrnu frá Arnari. Mínútu síðar gerðum við aulamistök í vörninni sem kostaði okkur mark 2-1. þegar 10 mínútur voru eftir jafnaði Danni leikinn eftir hornspyrnu og staðan orðin 2-2. Allt stefndi í framlengingu en þegar 2 mínútur voru eftir náðu Bundes að skora eftir annað klúður í vörninni hjá okkur. Helvíti svekkjandi en svona er þetta bara.

Jæja, ég held að þetta sé komið nóg af bulli í bili

Þangað til næst……

Farinn

Ég er farinn norður ásamt fríðu föruneyti úr mótorhjólagenginu skítmóðugir. Skítmóðugir hyggjast hittast í Bgn of death um 17:00 og halda svo í Bauluna og éta hjá Kibbmeisternum.

Bon Voiage

Þangað til næst….

Letibloggari

Já, það má eiginlega segja að maður sé orðinn hálfgerður… tjah ef ekki bara heilgerður letibloggari. En svona er þetta. Það er nóg að gera hjá manni við að skipta á kúkableium þessa dagana. Lífið hjá okkur í Blöndubakkanum gengur bara mjög vel og er allt í gúddí. Ég er búinn að vera duglegur við að henda inn myndum af guttanum og verð örugglega skammaður hressilega þegar hann Soffi minn kemur til baka frá USA. Ætli ég sé ekki bráðum að verða búinn að fylla rótina.

Annars mega þeir sem eru alveg forfallnir aðdáendur Tommans kíkja á Vatnsbera síðuna ef þeir vilja lesa eitthvað eftir mig en ég er mun duglegri að láta gamminn geysa þar.

Ég byrjaði að vinna aftur í morgun og var það frekar skrítið. EJS búðin er í andlitslyftingu og það er nóg að gera. Samt var nú einhver deyfð yfir manni þarna niðurfrá og erfitt að komast í vinnugírinn aftur. Ingi verður bara að píska mig áfram ef hann vill fá einhverja vinnu út úr kallinum hehehe.

Iron Maiden tónleikarnir voru þrusu flottir alveg en ná nú samt ekki að toppa Metallica í fyrra. Gömlu kempurnar voru í þvílíku formi að það hálfa hefði verið nóg. Dickinson hlaupandi út um allt sviðið í þvílíkum gír og Harris með West Ham svitaböndin örugglega ennþá í alsælu eftir að hamrarnir tryggðu sig upp í úrvalsdeildina aftur. UP THE IRONS.

Þangað til næst…..

IRON MAIDEN HELL JE

Maiden í kvöld, sjitt hvað mig hlakkar til. Ég fór á þá í höllinni 92 en ég reikna með að þessir tónleikar eiga eftir að vera grilljón sinnum betri. Í denn þegar ég sá þá voru þeir að fylgja eftir Fear of the dark plötunni og spiluðu mestmegnis lög af henni. En núna eru það bara Early Days sem er í gangi. Jón Frímann googlaði playlistann hjá þeim og mæ ó mæ. Þvílík stemming sem þetta verður. Prowler, Remember Tomorrow, Hallowed be thy name og ég veit ekki hvað og hvað. Svo er það að sjálfsögðu Trooperinn sem kemur til með að hljóma sveittur í Egilshöllinni í kvöld. Það má svo geta þess að fyrir hvern leik Vatnsberanna förum við Jón Frímann á bílnum hans, setjum Trooperinn á fóninn og komum okkur í gírinn. Það er því hætt við því að Vatnsberarnir tapi næsta leik þar sem að Jón er farinn á sjóinn og ég held að það verði ómögulegt að hlusta á Trooperinn í öðrum bíl en rútunni hans Jóns.
En nóg um það, stemmingin verður í Egilshöll í kvöld and I’ll be there. Ég er einmitt að renna Early Days DVD diskunum í gegn as we speak. Gút stöff.

Svo að öðru. Vatnsberarnir eru on a winning streak. Búnir að vinna 3 leiki í röð sem hefur ekki gerst síðan…. tjah bara aldrei. Svo héldum við hreinu í síðasta leik sem hefur ekki heldur gerst síðan elstu menn muna. Hægt er að fylgjast með gengi vatnsberanna á gras.is og á síðunni okkar (linkar til hliðar).

Svo var ég að fjárfesta í nýjum mótorhjóla galla. Jón Pétur í DK græjaði þennan líka fína galla fyrir mig fyrir slikk og ingen ting marr. Uuuussss ég er honum ævinlega þakklátur. Við græjuðum þetta á fimmtudag eða föstudag og gallinn kom í gærkvöldi…. og svona líka smell passaði á kallinn. Enda ég og Jón Pétur af svipaðri stærðargráðu hehehe.

En þetta er orðið fínt í bili. Mér heyrist að klóninn hans Magga Jobba sé eitthvað farinn að rumska inní herbergi. Best að kíkja á það.

Þangað til næst…..

Sjúbbídú

Kallinn er kominn á blað í utandeildinni, Reyndar á móti slakasta liði deildarinnar en who gives, alltaf gamað að skora. Við í Vatnsberunum vorum að spila við Nató og unnum 13-4.

Annars er allt gott að frétta af okkur hérna. Maður er bara í fæðingarorlofi og reynir að vera duglegur í bleiuskiptingum á kantinum.

Aníhú þá bið ég bara að heilsa, þetta verður væntanlega fyrsta sjómannadagshelgin í mörg mörg ár sem að maður verður ekki í Grundarfirði. Adios

Þangað til næst…..