Áramótaspá Tommans

Jæja fólk, hérna kemur hin árlega áramótaspá Tommans fyrir árið 2006.

Árið 2006 já, Árið sem Tomminn hleypur á þriðja tuginn, Kristján Freyr dettur á 1 árið og Rúna verður hálf þrítug.
Fleira markvert á nú eftir að gerast og kemur það hérna ekki í neinni sérstakri röð….


Hljómsveitin Kvaðratrót gefur út sína fyrstu plötu sem óvænt slær öll met í sölu í Namibíu, því verður fylgt eftir með túr um Antartíku.


Rúna Jobba skrifar undir samning um að vaska upp og fara alltaf með ruslið út á sínu heimili ellegar að sæta harðri refsingu af hálfu sambýlismanni sínum. Refsingin fæli í sér fiður, tjöru og stórt prik.


Tommi Jobba verður ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn útbrunnum celebs, ákæran verður síðar felld niður vegna ófullnægjandi sönnunargagna.


Vatnsberarnir eiga eftir að koma öllum á óvart og vinna utandeildina sumarið 2006. Þeim verður í kjölfarið boðið að spila æfingarleik við Swindon sem þeir vinna sannfærandi 4-0


Ninni Dittu verður kjörinn bæjarstjóri á Akureyri þegar hann kemur með frumvarp um að löggilda sjálftæmandi ruslatunnur sem hann hannaði sjálfur.


Viggi Runna verður svo svekktur með að vera á minnsta mótorhjólinu í mótorhjólagenginu að hann ákveður að söðla um og fjárfesta í stærra 750cc hjóli, en verður svo ennþá svekktari þegar hann fattar að hann er ennþá á minnsta mótorhjólinu. Kemur bara næst Viggi minn.


Arnar Pétursson verður himinlifandi þegar hann fer í læknisskoðun og sér að hann hefur stækkað um 2 cm og kemst yfir mörkin um að vera löggiltur dvergur, hann fer svo í mál við heilsugæslu Reyðarfjarðar þegar upp kemst að mælingarstöngin var ólögleg og búin til úr gúmmíteygju.


Steini Jobba ákveður að söðla um og opna verslun með hjálpartæki ástarlífsins fyrir hesta. Kennir svo staðsetningu búllunnar um þegar hann húrrar með reksturinn á hausinn. En þess má geta að búllan hefði getað verið betur staðsett heldur en við hliðina á Litlu Kaffistofunni.


Soffi súri setur nýtt heimsmet þegar honum tekst að sofa í 126 klst samfleytt án þess að pissa.


Ellen E fjárfestir í fataverksmiðju sem sjálfkrafa sendir henni einn bol á dag. Ellen kemur út í plús eftir þetta ævintýri þar sem hún þarf ekki að kaupa sér boli lengur.

Fleira markvert sem gerist er að Baugur group fer á hausinn þegar að Jón Ásgeir gerist svo djarfur að kaupa stærstu sokkaverksmiðju í Úganda á trilljón gasilljón milljónir.

Grundarfjörður verður gerður að menningarbæ heimsins þar sem að stytta af Gísla göngutúr verður reist fyrir utan esso sjoppuna.

Kaffi 59 hefur tilraunastarfsemi með jarðarberjakaffi sem fer illa í kaffiþyrsta Grundfirðinga og endar með allsherjar uppþoti þannig að víkingasveit snæfellness verður kölluð út til að hafa hemil á mannskapnum. 3 verða handteknir og 5 manns slasast lítillega.

Vonandi hafið þið það gott yfir áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr

Þangað til næst….

Bújaka

Hæ. Nú líður að lokum þessa árs. Ég mun stikla á stóru yfir það sem hefur farið fram á þessu ári hjá okkur. Á morgun kemur svo spáin fyrir 2006 en þið getið smellt —HÉR— og scrollað alveg niður eða farið í “gamalt sjitt” hérna fyrir neðan og flett upp hversu sannspár kallinn var fyrir 2005.

Árið 2005 í hnotskurn:

Janúar:

Tommi stendur í ströngu við að reyna að redda miðum og hótelgistingu fyrir ferð sem hann og spúsan höfðu planað. Lífið gengur sinn vanagang. Spúsan ólétt. Kalt úti og Tomminn prumpast til og frá vinnu á micru hræi sem er oftast með frosnar hurðar á morgnana.

Febrúar:

Man Jú byrjar á að rústa Arsenal á Highbury 4-2, einkar ánægjulegt.
Rúna fær blóðtappa í löppina og kemst ekki með til útlanda. Dabbi frændi hleypur undir bagga og fer með Tomma litla til Englands. Rúna þarf í aðgerð út af þessu. Frekar spúkí. Tommi kaupir íbúð.

Mars:

Þessi mánuður hefst í London þar sem við Dabbi ráfum um með hor í nös í brunagaddi. Við Rúna mín fáum nýja íbúð og tökum til hendinni í henni, Fullt af fólki hjálpast að við að græja kofann.

Apríl:

Flytjum inn í íbúðina. Borga morðfjár fyrir að gera við mótorhjólið en það var þess virði því gripurinn svínvirkar eftir þetta. Mótorgjóla fiðringurinn kominn í mann.

Maí:

Það þarf nú ekkert að taka það fram að stærsti viðburður ársins í mínu lífi gerðist í maí en þá fæddist hann Kristján Freyr eingetinn sonur minn, nei hann var nú ekki alveg eingetinn, mamma hans tók nú stóran þátt í þessu ferli.

Júní:

Tomminn skorar mark í utandeildinni í 13-4 sigri á móti Nato… Lifi Vatnsberarnir, eina mark Tommans allt það sumar. Fór á Iron Maiden tónleika, hjólaði norður með strákunum og fór á Duran Duran hell je.

Júlí:

Var megnið af tímanum í fæðingarorlfi, Fór með Jóni, Ellen og Rúnu gullhringinn þ.e. Gullfoss og Geysir sem ég hafði aldrei séð áður. Rúna þarf aftur í aðgerð að láta laga æðarnar sínar.

Ágúst:

Stórt blað er brotið í sögu Tommans, Kallinn byrjar ágúst mánuð á að fjárfesta í bleikri skyrtu, eitthvað sem hafði ekki farið mikinn í litavali Tommans hingað til. Kristján Freyr var skírður í Grundarfjarðarkirkju. Fórum í bústað í eina viku í Bárðardal, fjarri öllu interneti, símum og þessháttar veseni. Tomminn var tekinn af löggunni við Akureyri á leiðinni heim úr bústaðnum, fyrsta sekt sumarsins.

September:

Lífið gekk nú bara sinn vanagang í September, ekkert þannig markvert sem gerðist. Jú reyndar var óþolandi böggandi sölumaður frá Allíanz að reyna að pranga einhverju uppá mann.

Október:

Kallinn sópar að sér verðlaunum í október. Tek eina PSP tölvu fyrir að selja vírusvarnir og svo eina X-Box vél fyrir að selja office pakka.
Kristján litli fer í ungbarnasund og skemmtir sér vel. Einhver dópistaræfill gerir allt vitlaust í blokkinni hjá okkur.

Nóvember:

Þessi mánuður byrjar yfirleitt á því að kallinn verður árinu eldri og árið í ár var engin undantekning á því.
Rúna sætasta splæsir í bassakvikindi handa kallinum. Svo toppar hún allt með því að skilja mig aleinan eftir í Reykjavík.
Það fer fram alþjóðleg rannsókn á dularfullu hvarfi hr Stjörnutorgs.
Önnur hljómsveitaræfing Kvaðratrótar fer fram í yfirgefinni skemmu.

Desember:

Man Ure dettur út úr Champ líg Tomma til mikillar armæðu. Jólin koma með tilheyrandi stressi og vitleysu.

Svona var árið í hnotskurn. Stay tuned fyrir spá Tommans yfir árið 2006.

Þangað til næst…..

Ó Reykjavík ó Reykjavík þú yndislega borg…..

Kominn aftur í borg óttans. Leiðist, langar aftur heim, leiðinlegt í Rvík. Þreyttur, búinn að borða of mikið, aleinn heima, ekkert konfekt til. Fullt af konfekti í Grundarfirði sniff.

En nóg um það. Jólin eru búin að vera mjög fín. Fékk fullt af glymrandi glæsilegum gjöfum. Þar ber hæst að nefna jakkaföt frá Rúnu, mömmu og Gústa og svo lítinn bassamagnara frá yndislegu systkynum mínum og Dagmar líka 😀

Ég náttlega át yfir mig í hverri einustu máltíð. Sit núna í vinnunni með bumbuna út í loft og er enn á blístrinu, spurning um að taka sig á.

Nennekki meir

Þangað til næst…..

Word

Heng í vinnunni, kl er rétt rúmlega átta um kvöldið. Ekki jack shit að gera. Var að renna niður síðustu pizzu sneiðinni. Helvíti fínt. Fyrir utan að þurfa að hangsa hérna til tíu.

Mæli með að þið kíkið á nöldurskjóðuna og lesi þar um sanna merkingu jólasveinanafnanna.

Nú eru bara nokkrir daga þangað til að þessi merkilegu “helgar”jól renni inn. Ég er búinn að sníkja mér frí þann 27 þannig að maður geti hangið aðeins lengur heima. Það verður nú svosem ágætlega ljúft. Rúna og Kristján Freyr eru á leiðinni vestur akkúrat í þessum töluðu orðum. Ég þarf að hanga hérna og fæ ekki að fara fyrr en á Þorláksmessu. En nóg af væli. Þar sem ég hef ekkert merkilegt að segja sem er ekki væl þá kveð ég að sinni…

Þangað til næst….

Jólapistill í boði Tomma

Hvað er málið með þessar helvítis sjálfsafgreiðslu bensínstöðvar??? Maður treður kortinu í þetta helvítis apparat. Stimplar inn c.a 5000 kjéll, svo er byrjað að dæla dýra vökvanum á drusluna, og það tekur heila eilífð að dæla þessu helvíti??? En hvað??? En hvað, svo þegar maður nuddar saman ísköldum höndunum af ánægju þegar dælan er komin upp í 4934 kr…. að þá tekur alveg jafn helvítis langann tíma að dæla síðustu helvítis 50 krónunum eins og það tók að dæla 4950 kr…. HVAÐ ER ÞAÐ???

Þangað til næst….

Flæin fökk

Föstudagur í dag, Jólin nálgast hraðar en mella með skitu nálgast kamarinn.

Það er að kólna í veðri hér í reykjavík. Þetta er búið að vera alveg snarundarlegt tíðarfar uppá síðkastið. Ekki óalgeng sjón að sjá Harley hippa bruna upp Grensásveginn og beint í Harley umboðið, væntanlega til að kaupa spes Harley bón á gripinn og svo beint aftur inní skúr þar sem er hamast á tuskunni.

En nóg um það. Er ekki kominn tími á smá slúður hérna á þessum síðustu og verstu…

Heyrst hefur….

að Ninni Dittu sé genginn í sértrúarsöfnuð sem sérhæfir sig í umskurði bænda

Ninni skipaði sjálfan sig æðstaprest í söfnuðinum og er hér að gera sig kláran í vígslumessuna

að Haddi Rutlu hafi ákveðið að ganga í söfnuðinn líka þegar Ninni hótaði honum umskurði í boði hússins.

Haddi slapp samt ekki við umskurðinn

að Rutla hafi svo verið gerður að heiðursumskerara.

Rutla var rosalega montin með vígsluna

að þeir einstaklingar sem reykja of mikið af njóla eiga á hættu að missa það.

Þetta unga fólk ætti að vera öðrum víti til varnar… NJÓLAVARNARRÁÐ

að Maggi Jobba sé nýbúinn að handsala samning um að auglýsa wonderbra brjóstahöld.

Maggi er hérna að pósa

að búið sé að opna portkonuhús í Hafnarfirði

Viðskiptin hafa ekki alveg blómstrað eins og búist var við

að Tommi Jobba hafi náð að sigra guttann sinn í magaæfingakeppni 4-3

Tæpt var það en rétt hafðist samt

að sumir séu gráðugri en aðrir þegar kemur að innbyrðun matvæla og þessháttar vara

þessi flaska sást aldrei aftur

Þangað til næst…..

Fimmtudagur

Nú er Ninni 24 ára og eins dags gamall, til hamingju með það Ninni minn, verst að ég átti ekki aðra tippamynd af þér til að deila með öllum.

Annars er bara afskaplega rólegt í vinnunni. Snillingurinn ég álpaðist til að breyta tölvunni minni í ryksugu í gær.
Málið er það að mér áskotnaðist nýtt skjákort sem að ég bætti í ofurtölvuna mína. Þetta var 256 mb Nvidia 6800 kort PCIe fyrir þá sem hafa vit á því. Svo plögga ég því í og ekkert ves fyrir utan að tölvan mín heimtar meira rafmagn. Kallinn klórar sér í hausnum yfir því að ofur Dell vélin mín höndli ekki eitt ofurskjákort ásamt 3 hörðum diskum. Daginn eftir heyri ég í strákunum upp á verkstæði sem koma mér á þá lausn að best sé að fá stærri aflgjafa. Jújú, ég panta eitt svoleiðis kvikindi af stærstu sort. 520 watta pwr supply með bláu ljósi og alles. Svo fer ég með þetta heim og tengi allt draslið í góðum gír, kveiki á vélinni… og eina sem gerist er að örgjörva viftan fer á hyper snúning og lætin eftir því, eins og í gamalli nilfisk ryksugu. Kallinum bregður náttúrulega nett við þetta og prófar að tengja gamla spennugjafann aftur við vélina eftir að hafa ráðfært sig í símann við tæknimenn. Svo þegar ég er búinn að tengja gamla 350w dell spennugjafann er bara sama sagan. Örgjörvaviftan á fullt.
Kvöldið ónýtt, dagurinn í dag ónýtur. Vélin liggur á borðinu á verkstæðinu… og ég sem hélt að ég væri skítsæmilegur tölvuhjassi.. eeeen neeeiii UUUUUUUUUUUURRRRRRRRRRR

Þangað til næst…..

Smá copy peist af því sem er í gangi….

Setjið nafnið ykkar í comments og þá geri ég eftirfarandi!!

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag og/eða bíómynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð eða lykt minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig

Koma svo allir með….

Þangað til næst…..