28 dögum síðar

Margt hefur á daga mína drifið síðan ég hamraði lyklaborðið hérna síðast. Man Jú hefur unnið heila 2 leiki, ég var einn heima með son minn eingetinn í meira en sólarhring, vélin mín var straujuð, ég tók þátt í fótboltamóti með Vatnsberunum, ég náði að spila í heilar 4 mínútur og 33 sekúndur, þá var sparkað í mig, ég er haltur í dag.

Annars er bara allt gott að frétta. Rúna fór alein til Grundarfjarðar á laugardaginn. Ég og Kristján Freyr vorum einir eftir. Þetta var í fyrsta skiptið sem Rúna fer eitthvað frá honum í heila 8 mánuði eða síðan hann fæddist.
Þetta gekk bara alveg hreint ljómandi vel. Reyndar þurfti ég að ráða Steina sem barnapíu á meðan ég keppti í þessu blessaða fótboltamóti. Sem bæ ðe vei við lentum í 4 sæti af 10 liðum. Líklega af því að ég spilaði bara 4 mín hehehe.
En eftir að ég kom heim þá var prinsinn minn bara sofnaður. Þegar við vöknuðum saman daginn eftir kl 7 um morguninn varð minn maður eitthvað pirraður og vildi ekki drekka af pela. Líklega bara of vanur brjóstinu. En hann tók nú pelann á endanum og sofnaði aftur pabba sínum til mikillar gleði. 2 dýrmætir tímar í viðbót í svefn. Svo vorum við bara eiturhressir það sem eftir var dags og allt gekk eins og í sögu. Ég sé það núna að Rúna hefur engan tilgang lengur þannig að hún má fara hvert sem hún vill. Við feðgarnir björgum okkur. Nei ég segi svona, auðvitað er hún Rúna mín alveg ómissandi. Veit ekki hvar við værum án hennar.

Var að frétta að Liverpool og Man Jú spila í FA bikarnum…. úff, hefði verið flott að fá þennan drátt seinna í keppninni en svona er þetta. Við erum ekki búnir að tapa fyrir LFC hingað til á sísoninu og förum nú varla að byrja á því núna ehaggi…..

Þangað til næst…..

Spinning

Kallinn skellti sér í spinning á þriðjudagsmorguninn. Átti svona 6 daga prufu hjá Hreyfingu og ákvað að skella mér með Dabba frænda og prófa þetta helvíti. Reif mig á lappir kl 05:50, þjösnast hálf ringlaður og klæði mig í föt, út í bíl og bruna niður í Hreyfingu. Þar bíður Dabbi og við skellum okkur í þetta. Undarleg lífsreynsla svo ekki verið meira sagt. Band brjálaður spinning kennari sem lætur mann þyngja og þyngja helvítis hjólið í gríð og erg. Ég stóð sjálfan mig oft að því að snúa í hina áttina enda ekki í besta forminu. Þetta var ótrúlega miklu erfiðara en ég átti von á.
Núna er ég með strengi í vöðvum sem að ég vissi ekki að væru til.
En ég mæti samt galvaskur í spinning í fyrramálið… je beibí je.

Þangað til næst…..

Man Utd – Liverpool 1-0

Dagurinn í gær já. Hann byrjaði í einhverju chilli, horfði á Chelski – Charlton með öðru auganu. Svo þegar líða tók á daginn fór hnúturinn í maganum á mér að versna. Man Utd – Liverpool var handan við hornið. Þetta lagðist einhvernveginn voðalega illa í mig. Var ekkert sérstaklega bjartsýnn á gott gengi minna manna á móti þessum bévítans púllurum sem voru búnir að vera á miklu skriði undanfarið. Svo þegar líður að leik skrepp ég yfir til Dabba til að góna á þessi ósköp. Sé staðfest byrjunarlið og vonleysið fyllir tilveru mína. Richardson, Giggs, O’Shit og Fleskið á miðjunni. Hvað eiga þeir að hafa í Alonso, Gerrard og Sissoko??? Er það von að maður spyrji sig með þessa pappakassa O’Shit og Fletcher í byrjunarliðinu… Enda kom það á daginn. United átti eitt skot á markið í fyrri hálfleik og það kom eftir 45 mínútna leik. Fergie virðist hafa rifið hausinn út úr rassgatinu á sér í hálfleiknum og tekið O’Shit út af og setti Saha inná í staðinn. Rooney fór á miðjuna og skánaði leikur United mikið í seinni hálfleik. Liverpool voru betri aðilinn framan af og voru óheppnir þegar Cissý brenndi af úr DAUÐAFÆRI rétt eftir að Rio hafði varið á línu frá Kjúvel. Hjartað tók aukaslag þarna og stoppaði svo í 7 sekúndur. Eftir þetta klúður hjá Cissý bökkuðu LFC aðeins og freistuðu að halda 0-0 en þeir hefðu betur sleppt því. United gekk á lagið og byrjaði að sækja meira, uppskáru meira að seigja sína fyrstu hornspyrnu þarna seint í leiknum. Svo þegar 90 mínútan rann upp þá fær nýi negrinn hann Evra aukaspyrnu við vítateigshornið. Giggs stillir sér upp og sendir boltann á hausinn á Rio Ferdinand sem stangar tuðruna í netið.
Allt trylltist, ég og Dabbi stukkum uppúr sófanum og stigum trylltan stríðsdans á stofugólfinu. Yeeeeeeeeeessssssssssss, hreinn unaður. Yndislegt alveg hreint.


Oh sweeeeeeeeeet

Þangað til næst……

Oooooooo jeeeeeessssss

Oh sweet lord

Hvað það var ljúft að raka sig. Ef þið greinið einhverja mottu á hægri myndinni að þá fékk hún að fjúka líka. Ég fékk víst engu um það ráðið. Konan neitaði að knúsa mig með svona auma mottu. Stefnan var nú samt sett á að stofna aðdáendaklúbb Tom Selleck og safna mottu, ég er viss um að Soffi myndi safna mottu með mér.

Þangað til næst…..

WTF

Ég veit ekki hvað það er en það er eitthvað við þessa mynd sem lætur mig skella upp úr. Smellið á hana til að stækka…

Þetta er svo cruel og fyndið eitthvað. Veit ekki hvað það er.

Annars er maður bara góður. Hlakka mikið til að raka mig í kvöld þegar Man Ure vinna fyrsta leikinn á árinu, enda bara formsatriði að klára þetta utandeildarlið. Ef þeir gera það ekki þá verð ég næsti Osama Bin Laden lookalike og get farið að skrá mig í þess háttar keppnir ofl í þeim dúr… taka upp myndbönd og senda til cnn og svoleiðis gút sjitt. En nóg um svoleiðis draumóra, eins og áður sagði þá býst ég við amk 6-0 sigri í kvöld og ekkert rugl, annað er hneyksli. Ég er reyndar búinn að fjárfesta í 1000 eyja sósu til að hafa með húfunni minni eins og soffi mældi með en hún verður bara brúkuð í eitthvað annað í staðinn. Á morgun verð ég með húfuna góðu á hausnum og nýrakaður í þokkabót HEEEEEEEEEEEEELLL JEEEEEEEEE.

Þangað til næst….

Úff

Enn einn mánudagurinn mættur til mín. Maður er nú hálf tussulegur í vinnunni, órakaður úldinn og haugmyglaður.

Skellti mér á Classic Rock bar á laugardagskvöldið. Þar voru styrktartónleikar Vals Höskuldssonar og Gústi Alex litli bró var að spila. Þetta var helvíti fínt hjá þeim og skemmtilega rólega nett og þægileg stemming á staðnum. Ég stoppaði nú samt frekar stutt. Sá Kung Fú vera með flott prógram og svo voru Gústi og félagar með svolítið rokkaðra sett og svo var einhver stórfurðuleg þjóðlagahljómsveit sem hét Gögl, frekar spes allt saman. Svo eftir þetta skutlaði ég bara sjálfum mér heim í rólegheitin.

Ég bara trúi ekki öðru en að ég fái að raka mig á miðvikudaginn þegar Man Utd spilar aftur við utandeildarlið Burton á Heimavelli. Ef að það klikkar eitthvað þá ét ég man utd húfuna mína og hana nú.

Þangað til næst…..

VETUR

Loksins kom eitthvað sem að virðist vera vetur, ég þurfti að dusta 20 cm lag af púðursnjó af bílnum í morgun. Svo meiga ekki falla nokkur snjókorn án þess að umferðin í Reykjavík fari á annan endann. Ég var c.a hálftíma á leiðinni í vinnuna vegna þessa. Yndislegt alveg hreint.

En svona er það nú. Man City – Man Utd á morgun og vonandi get ég skafið hýunginn af eftir vinnu… aaaah það yrði svooo ljúft.

Þangað til næst….

skegg

Ekki fékk skeggið að fjúka í gær sökum enn eins jafntefli sem Man Utd gerði í gær. Reyndar 1-1 í þetta skiptið. Þannig að það er alltaf séns næsta laugardag þegar Man U fer á City of Manchester Stadium og spilar við Man City. Ef ekki næst sigur þar að þá fer nú að verða illt í efni fyrir kallinn. Enda er maður hálfpartinn farinn að skammast sín hérna í vinnunni. Maður er eins og illa reitt hæna í framan, með einhverjar hárlufsur hingað og þangað um andlitið… damn. En ef Man U vinnur ekki á laugardag þá hljóta þeir fjandakornið að taka Burton á Old Trafford næsta miðvikudag, annars skal ég hundur heita.

En hvað haldiði að ég hafi þurft að gera í morgun? Eitthvað sem ég hef ekki gert í einhver 10 ár. Ég þurfti að taka helvítis gulan djöfulsins strætó ógeð… uuuuuuuurrrrrrr.

Byrja á því að vakna kl 07:46, truntast haugmyglaður á lappir og sting hausnum undir kalda sturtuna, fatta svo eftir 7 sekúndur að ég er með hausinn í klósettskálinni að sturta niður. En það skiptir ekki máli því ég vakna alveg jafn vel fyrir vikið. Svo er bara að drattast af stað, rölti þungum skrefun niður í mjódd og er með það á hreinu að ég þarf að taka vagn nr S3. Þvílíka slabbið úti og er orðinn hálf votur í lappirnar af þessu. Svo þegar ég nálgast mjóddina sé ég hvar leið S3 er að keyra af stað. Djöfull, þarf þá að bíða í fokkings tíu mínútur og borga helvítis 250 kr til þess eins að láta henda mér út á miklubrautinni þar sem að þetta bévítans nýja leiðarkerfi keyrir ekki lengur niður Grensásveginn heldur þyrfti maður að taka 2 vagna + meiri biðtíma til að fara út þar. En ég kaus að taka frekar einn vagn sem er nógu flókið fyrir mig en að vera að digga einhverja 2 vagna til að komast í vinnuna. Svo ég labba frá miklubrautinni og í vinnuna og öll þessi blessaða ferð tók mig helvítis 40 mínútur. Þetta þarf ég að gera á hverjum einasta fimmtudegi það sem eftir lifir vetrar þar sem að konan þarf að fara í skólann á bílnum DJÖFULL.

Þangað til næst….

Gott ráð

Ég er með brilliant ráð fyrir þá sem eru að baxa með frosnar læsingar í tíma og ótíma. Málið er nefninlega að ég hef oft lent í þessu á morgnana og þykir mér að miður skemmtilegt. Svo um daginn fór ég og keypti með 4 dúnka af lásaolíu, þegar ég segi dúnka þá er þetta nú ekki það stórt um sig, þetta geng ég með í vasanum dags daglega og viti menn, sama hversu mikið frost er, aldrei frýs læsingin. Hvort sem það er lásaolíunni sem ég sprautaði í læsinguna fyrir mörgum vikum eða bara sú staðreynd að ég geng ennþá með þessa 4 dúnka í vasanum ennþá. Ég held nefninlega að það sé síðari skýringin. Um leið og ég myndi setja þessa 4 dúnka af lásaolíu uppí skáp að þá myndi læsingin frosna með það sama. Þess vegna er ráð dagsins frá mér til þín (sem átt við þetta vandamál að stríða) að kaupa þér lásaolíu og ganga með hana á þér. Takk fyrir.

Nú að öðru. Konan er orðin alveg stjörnuvitlaus yfir hýungnum sem vex á hinu misfagra andliti mínu. Málið er nefninlega að eins og svo oft áður þá neita ég að skerða skegg mitt fyrr en Man Utd drullast til að vinna leik. Eins og staðan er núna hef ég ekki rakað mig síðan í fyrra. Síðan þá eru liðin 2 markalaus jafntefli, á móti Arsenal og Burton (já ég veit ha ha Burton).
Ég er svona að vonast til að Man Utd vinni Blackburn í kvöld því mig er farið að klæja ískyggilega í fésið. Ef allt fer vel get ég skafið hýunginn af í kvöld jeeeeeeeessssssss.

Þangað til næst…..