Rockstar

Maður var náttúrulega vakandi langt fram eftir öllu til að kjósa hann Magna kallinn, svo komst maður að því í morgun að það var aðal sportið að breyta tímabeltinu á tölvunni og kjósa langt fram eftir degi líka… Hnuss, upplýsingar sem hefðu komið sér vel í gær þeink jú verí mötsj

Núna er maður búinn að vera geispandi í allan dag eins og einhver hvalur, loftið nánast búið hérna í versluninni þar sem að Ingi er í sama ástandi og ég.

Geisp

Þangað til næst….

Góðir morgnar

Morguninn í morgun… Hann var spes. Rúna hafði verið á djamminu og ég og Kristján Freyr vöknuðum bara 2 saman. Eða reyndar vaknaði hann svona meira einn saman. Ég vaknaði nokkrum mínútum seinna við að hann var að sparka í andlitið á mér og þótti það alveg rosalega fyndið. Ég drattast hálf myglaður á lappir og tek strákinn fram með mér til að leyfa frúnni að sofa, enda var hún nýkomin heim. Ég ákveð að skella mér í sturtu og hef opið svo að ég geti nú talað við guttann og svona nokkurnveginn fylgst með honum… Mistök, þegar sturtan var búin voru eftirtaldir hlutir ofan í baðkarinu hjá mér… 3 stk sprittkerti, mismikið notuð, heimilissíminn, plastbolti, leikfangabíll og eitt snuð.
Honum finnst semsagt rosalega mikið sport að henda dóti í baðkarið. Note to self, kaupa læsingu á klósettsetuna.
Svo þegar sturtan er búin útbý ég hafragraut fyrir pjakkinn, gef honum að éta og svo er skipt á honum. Þarna er kl orðin hálf níu og farið að síga á seinnhlutann af þessu. Þá flýti ég mér að klæða hann, dríf hann svo í útifötin og út í bíl, frekar stressaður þegar ég bruna með hann fram hjá hverjum bakkanum á fætur öðrum þangað til að við komum að Leirubakka, Þar stoppum við og skellum okkur inn til dagmömmunnar sem nota bene ég er að hitta í fyrsta skipti. Þar er minn maður eitthvað súr og fer að gráta þegar hann skilur við pabba sinn… sniff, þetta er erfitt en þar sem að ég var orðinn of seinn í vinnuna þurfti ég að kveðja hann svona… grátandi.
En ég er pottþéttur á því að hann hefur verið fljótur að jafna sig þessi litli vargur.

matarvenjurnar eru nú ekki uppá marga fiska

En svona verða víst morgnarnir í vetur… úff, Ég er búinn að panta 10 nýja heimilissíma til að eiga á lager.

Þangað til næst….

F riðill

Man Utd
Celtic
Benfica
Köbenhavn

hver er með mér til Danmerkur á Köben vs Man Utd???

Annars vorum við Dabbi að borga ferðina á Old Trafford. Förum í lok sept að sjá Man Utd – Newcastle. Þetta verður eflaust svalt, enda Man Utd á toppnum núna hehehe 😉

Þangað til næst…..

Brrr

Er það bara ég eða var einhver smá svona haust fýlingur þegar ég fór út í morgun? Allavena virkaði andrúmsloftið eitthvað aðeins svalara en venjulega… hvernig sem stendur á því. Það er jú kominn 19 ágúst og sumarið að verða búið. Þetta fer bara kólnandi úr þessu.

Okkur vantar ennþá dagmömmu þar sem að samningar við síðasta umsækjanda (Rut) tókust ekki enda var hún með heimtufrekju og kvartaði yfir laununum… hnuss.

Myndasíðan er búin að vera svolítið sjeikí upp á síðkastið. Uppi, niðri, niðri, uppi, niðri og svo núna uppi. En það skiptir mig svosem litlu máli þar sem að ég hef verið latur að taka myndir því að fína myndavélin mín er í viðgerð. Alltaf gaman að eiga tækjaótt barn.
Í tilefni af því að myndasíðan er uppi núna kemur mynd af Jóni Frímanni að taka 100+ karlmann í kleinu… ég mæli með að þið smellið á myndina til að sjá stærra eintak:

Og eitt enn… —ÞETTA— er algjör snilld. Ógeðslega fyndið. Big Goj, þetta er möst fyrir þig.

Þangað til næst….

Langur tími enginn sjór

Djös blogg leti að hrjá mann, Fríið búið, vinnan framundan og að sjálfsögðu kemur úber mikil sól loksins þegar maður sest fyrir framan skrifborðið… Djöfull.

Hjólið mitt er til sölu ef einhver hefur áhuga. 800 kúlur eru settar á kvikindið. Selt af nauðsyn og ef ég sel þá sé ég gríðarlega mikið á eftir því… sniff 😦 enda snilldar hjól.

En að öðru… Ef einhver veit um góða dagmömmu fyrir veturinn má hinn sami endilega láta mig eða Rúnu vita. Allir leikskólar höfuðborgarinnar virðast vera þétt setnir og við erum í stökustu vandræðum með litla pjakkinn. Allar ábendingar skoðaðar.

Þetta voru auglýsingar og nú er komið að fréttum…
(Fréttastef KFC)

Í dag er miðvikudagurinn 16 ágúst og í fréttum er þetta helst…

Tommi Jobba aka Tommster aka Tomminho sást á skjánum í gær í Fréttum NFS og á RÚV, aðspurður kveðst Tommi ekki hafa búist við þessu enda órakaður og nett tussulegur á því.

Rífandi gangur er á kótilettusölu á Akureyri þessa dagana.

Hreinn Sv. Snædal framkvæmdastjóri Kótilettugerðarinnar sagðist undrandi á viðbrögðum nýjustu afurðar fyrirtækisins en þau eru farin að bjóða uppá rottulettur, sem eru unnar úr afgangsrottum úr togaranum Omnyu sem lá við höfnina í öll þessi ár.

Svo er það hið undarlegasta mál á alþjóða vegaeftirlitinu sem álpaðist til að gefa íslenska vegakerfinu 3 stjörnur af 4 mögulegum. Þetta er hið undarlegasta mál þar sem að vegirnir hafa nú ekki verið uppá sitt besta. Líklegasta skýringin er að vegaeftirlitsmennirnir hafi verið á röltinu og kíkt við hjá Daltónunum og komið út úr skakkir til baka og tekið út vegina…. Radical Duuuuude.

Og þá að íþróttum…

Ofur svali fótboltaklúbburinn Vatnsberar voru í gærkvöldi útnefndir fallegasti fótboltaklúbbur veraldar. Tekið var tillit til fegurðar leikmanna, limaburðar, klæðnaðar og atferlis.
Í dómnefnd sátu David Beckham, Claudia Schiffer, Tom Araya og Jessie Jeff and the Fresh Prince.
Það má svo geta þess að Jón Frímann var geymdur út á sjó á meðan dómnefndin var að störfum.

Þangað til næst….

Verslunarmannahelgin

Ég er nú staddur í íbúðinni hjá Ninna og Dagmar í góðu yfirlæti. Á Akureyri er þessi hefðbundna verslunarmannahelgarstemming. Við tókum rölt niður í bæ í gær… réttara sagt tívolíið, Úff, maður var nú ekki beint stemmdur í svona vitleysu. Kl var rétt rúmlega tíu og blindfullir krakkar út um allt. Stemmingin hjá mér var svona eins og ég væri á foreldravaktinni. Enda vorum við í rólegheitum bara. Fórum fljótlega heim að horfa á DVD.

Reyndar sit ég hérna núna og er búinn að opna fyrsta bjórinn. Planið er að taka eitthvað létt skrall. Ég og Viggi, aka Blundi aka Fuji aka Prinsinn aka Rúnkarinn erum í chillinu. Kristján Freyr er í góðum gír og segir öllum að hætta og nei í öðru hverju orði.
Planið er að virkja Bjöggmæsterinn í einhverja smá bjórdrykkju en síðast þegar fréttist var hann eitthvað daufur í dálkinn.

Og eitt enn. Mamma mín, hún Herdís Gróa Tómasdóttir á afmæli í dag og vil ég óska kellu innilega til hamingju með árin **

En eníhú, Rúna er komin með pizzuna og ég ætla að éta.

Þangað til næst….

Fréttir

Tómas Freyr Kristjánsson les fréttir og í fréttum er þetta helst:
(Fréttastef NFS)

Óstaðfestar fregnir herma að Viggi Runna hafi álpast til að stíga á bananahýði í bílskúrnum hjá sér og slengst á höfuðið út úr skúrnum þannig að hann lá óvígur eftir. Hann er nú á batavegi en liggur þungt haldinn í sófanum heima hjá sér með skyr.is í annari og pepsi max í hinni.

Af Vesturlandi er það að frétta að blíðskaparveður tryllir nú landann með tilheyrandi trumbuslætti og hamagangi, léttklæddar meyjar ganga um götur og dreyfa Hubba Bubba tyggjói í gríð og erg.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ofurmamman Rúna Jobba yfirgefið barn og karl og haldið í atvinnumennsku til Reykjavíkur. Aumur Tommi situr eftir í Grundarfirði á Snæfellsnesi og ber sig illa. Hann segir þetta vera jafnréttindabrot enda eigi hann ekki að þurfa að skipta á kúkableijum og svæfa börn í gríð og erg.

Og þá að íþróttum:

Hin alþjóðlega keppni í strand golfi fer nú fram á látrabjargi, þetta fer þannig fram að sá sem getur spilað upp bjargið í sem fæstum höggum vinnur. 4 keppendur hafa nú þegar látist í þessari hörðu keppni. 3 hröpuðu til bana og 1 fékk lunda egg í eistað.

Íslenski knattspyrnukappinn Tryggvi Hadda hefur verið seldur frá Víking Ólafsvík til Færeyska utandeildarliðsins Vi er Samkjynhneogd. Kaupverðið fékkst ekki staðfest en skv heimildum fréttastofu var það einn pulsupakki og kassi af kríueggjum.

Þá er þessum fréttalestri lokið og Fréttastofa SNF bíður góða nótt.

Þangað til næst….