
Davíð Smári Gudjohnsen
Þangað til næst….

Davíð Smári Gudjohnsen
Þangað til næst….
Þangað til næst….
Ég fékk að skreppa aðeins fyrr heim úr vinnu í dag, fór heim kl hálf fimm því Rúna var að elda dýrindis steik fyrir kallinn í tilefni af bóndadeginum. Ég kom heim á móti ilmandi lykt. Konan sveitt í eldhúsinu að útbúa kræsingarnar. Matnum hent á borðið og bornar á mig gjafir. Andlitskrem og DVD mynd. Hvað meinar hún??? Er ég orðinn hrukkótt gamalmenni sem þarf að nota andlitskrem??? Púlla American Psycho á þetta? Tjah.
En mikið andskoti var þetta gott hjá kellu… mmm, svo toppurinn á ísjakanum var heit súkkulaðikaka með blautum kjarna, smjatt.
Hún er snillingur þessi kona mín. En svo fór kella bara í vinnuna eins og ekkert væri og skildi okkur feðgana eina eftir heima. Nú er óargadýrið sofnað svefni hinna réttlátu og ég sit eftir með uppvaskið. Fínt og takk fyrir mig Rúna mín.
Og mikið djöfulli er Snow (hey oh) með Red Hot Chili Peppers ógeðslega flott lag.
Þangað til næst….
Gvendur í Byrginu
Stolið hjá Inga Birni sem stal þessu af 69.is
Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.
Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.
Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla…
En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla…
Þangað til næst….
Við Frímann erum að gera all hressilega uppá bak í þessum tippleik okkar. Nú þurfum við að rífa okkur upp og skeina hvor öðrum hressilega fyrir næstu umferð. 4 réttir í síðustu viku og 5 núna. Þetta er skelfilega skelfilegt. Við erum dottnir niður í 13 sæti eða eitthvað álíka. Og það sem verra er… Gæi Hadda er kominn uppfyrir okkur. Þetta mátti ekki gerast. En ætli við verðum ekki komnir fljótlega upp fyrir hann aftur ef við hættum að gera svona hressilega uppá bak því gæi gerir iðulega uppá bak líka… bara ekki svona mikið.
Þangað til næst….
Jæja… Þá er komið að fyrsta slúðri ársins og af nóg er að taka.
Heyrst hefur…
að aflakóngurinn Rúnar Magg hafi söðlað um og dembt sér út í hestamennskuna af fullum krafti. Rúnar keypti Skagfirskan gæðing fyrir metfé.

Rúnar og Faxi frá Hofi á góðri stundu
að Ninni Dittu hafi á dögunum ákveðið að brúka eitt gott skítelsi úti í guðsgrænni náttúrunni.
Ninni er hérna að klippa á síðasta hlessinginn.
að Dagmar og Rutla séu búnar að stofna pose.is klúbb sem sérhæfir sig í að pósa fallega í myndatökum

Eins og sést að þá er nóg vinna framundan hjá fýsunum.
að Viggi hafi fundið sér nýjan fararskjóta og er nú búinn að leggja rollunni margfrægu.

Viggi er hérna að leggja af stað til ólafsvíkur… hæ hó silver… awaaaaayyyyy
að Rúna Jobba sé búin að stofna kossaskóla sem á að hjálpa ungum meyjum að sinna karlviðinu

Hérna er svo hinn margfrægi koss
að Tommi og Viggi séu búnir að stofna ofurhetjuklúbb sem sérhæfi sig í að bjarga fáklæddum meyjum úr lífsháska

Hérna eru þeir félagarnir að æfa sig að fljúga eins og ofurhetjur
að Johny Holiday sé óvenju ástleytinn þessa dagana

Hérna er Frímann að gera sér dælt við 2 unga og saklausa drengi
að nýr kóngur hafi verið settur yfir Kverná. Hann mun ráða yfir allri sílaveiði við kvernárós og eiga 3 hirðfífl.
Kóngurinn frá Kverná er alltaf brosandi hress
að Big Goj hafi á dögunum fjárfest í forláta passamyndaklefa sem áður var staðsettur á Hlemmi.

Hérna er Big Goj að prófa klefann og er nokkuð sáttur þrátt fyrir smá hlandlykt.
að þetta sé orðið fínt í bili
Þangað til næst….
Aldrei bjóst ég við því að húsgögn gætu veitt mér svona mikla gleði… Fallega sæta konan mín fór með mig í gær að skoða borðstofuborð og skenk sem hún var búin að velja í Tekk company á útsölu. Ég hummaði þetta svona í gegnum búðina og alla leið að afgreiðsluborðinu þar sem að eitt stk sjónvarpsskápur var búinn að bætast við þetta. Núna erum við einhverjum þúsundköllum fátækari en þvílíkt og annað eins sem að það er öðruvísi að koma inní íbúðina. Aldrei bjóst ég við þessu. Ég segi nú bara eins og hommalingurinn hann Arnar Grauti… SÆLL
Þetta er svo þvílíkt flott að það hálfa væri nóg. Nú langar mig í meiri pening til að geta keypt fleiri húsgögn… Svona er nú lífið skrítið.
Þangað til næst….