Erfiðir tímar framundan…

Þá er ég ekki að tala um kreppuna eða neitt tengt henni heldur aðeins um mína persónulegu hagi. Málið er það að nú þegar maður er aðeins í einni vinnu þessa dagana og aðeins rýmra um mann þá skráði ég mig á 2 námskeið hjá Tölvu og Verkfræðiþjónustunni. Ég byrjaði á fyrra námskeiðinu í gærkvöldi og þetta verður ansi strembið. Þetta er hagnýtt bókhaldsnám og á ég að mæta tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum í tíma að Grensásvegi 16 og vera þar frá kl 19:30 – 22:30. Svo þarf maður að keyra heim. Fyrsti tíminn var í gær og ég var kominn heim kl 1 í nótt. Ég er pínu þreyttur í dag og þetta á örugglega eftir að verða svolítið þreytandi þegar líður á. Þessu námskeiði lýkur einhverntímann í apríl.
Hitt námskeiðið sem ég fer á byrjar 18 febrúar og það er á sömu dögum kl 16:15 til 19:15 þannig að ég verð samfleytt frá fjögur til hálf ellefu á mánudögum og miðvikudögum. Þetta verður líka eitthvað út apríl. Geisp segi ég nú bara en þetta verður nú vonandi þess virði.

Þangað til næst….

Rúúúúússst

Man Utd tók sig til að rassskellti puntdúkkurnar í Chelsea all hrikalega í gær 3-0. Ég verð að viðurkenna að mér leist ekkert á blikuna þegar ég sá byrjunarliðið, Darren Fletcher og Ryan Giggs inná miðjunni á móti Lampard, Ballack og Obi Mikel. En áhyggjur mínar voru óþarfar því að Fletcher og Giggs áttu miðjuna skuldlaust og léku eins og meistarar. Chelsea sáu aldrei til sólar í þessum leik og þetta voru nokkuð skýr skilaboð til hins taugaveiklaða Benitez sem hefur eflaust setið sveittur yfir sjónvarpinu og nagað sig í handarbökin yfir því að hafa drullað svona hressilega uppá bak.

Sigurvegari helgarinnar var klárlega Sir Alex Ferguson.

Bjáni helgarinnar var að sjálfsögðu Rafa Benitez fyrir að láta plata sig í eitthvað sálfræði stríð við meistarann sjálfan. Ég hugsa að það hafi hlakkað í Fergie gamla þegar hann sá yfirhraunið hjá spænska kleinuhringnum á föstudaginn. Svo toppar hann þessa vitleysu með því að gera 0-0 jafntefli við Stoke (þessi taktíski snillingur sem hann er) og þarf svo að horfa uppá United slátra Chelsea á Old Trafford.

Þetta verður spennandi barátta um titilinn það sem eftir er. Skjálfti uppá 5,3 á Richter mældist í Liverpool borg um sex leytið í gær enda Liverpool menn farnir að titra. Enda skemmti ég mér í gærkvöldi við að lesa spjallborðið á liverpool.is og kop.is Gott stöff…

Það er hægt að ræða þennan leik og allt það fram og til baka.
Eitt stendur upp úr, Rafa niðurlægði sjálfan sig með þessari vandræðalegu upplesningu um Ferguson, sérstaklega eftir að Man.Utd. valtaði yfir Chelsea.
Tekið af http://www.kop.is

Nú er meistari Mourinho að tala um hversu mikill as.ni Rafa var. Wenger er einnig hissa. Vonandi fer Rafa að gera eitthvað að viti. Tekið af liverpool.is

jæja nú virðist Rafa hafa gert sig af ****i. Jafntefli við Stoke eftir að hafa verið borubrattur. EF eða þegar Man Utd vinna sína leiki verða þeir á toppnum en Liverpool EKKI. Liverpool eiga samt eftir að fara á Old Trafford. Man Utd eru í betri málum en við og þetta viðtal hjá Rafa virkaði ekki betur en þetta því hann var skriðinn inn í skelina og tapaði fyrir okkur 2 stigum í dag. Tekið af liverpool.is

Fínasta helgi… Hefði verið Frábær ef Inter hefði drullast til að vinna Cagliari á laugardaginn.

Svo er hérna ein snilldarmynd í lokin.

Þangað til næst….

Fyrsti pistill ársins

Já fyrsti pistill ársins er við það að fæðast hérna í hausnum á mér…. 8 janúar 2009 verður fokking sögulegur fyrir þessar sakir.

Annars er maður búinn að vera í hálfgerðu móki síðan um áramótin. Erfitt að byrja þessa rútínu aftur. En þetta mjakast áfram eins og alltaf. Ég hef voðalega lítið að segja þannig að ég hef ákveðið að koma með myndasýningu. Hér fyrir neðan birtast uppáhalds myndirnar mínar sem ég tók árið 2008…


Þessi mynd er tekin í janúar 2008 inn Kolgrafarfjörðinn í afskaplega fallegu veðri. Eitthvað við hana sem heillaði mig þó svo að enginn sé skyldugur til að vera sammála mér. Smellið á hana til að stækka


Síldarævintýrið á Grundarfirði. Tekin 13 jan 2008. Mér finnst himininn afskaplega fallegur á þessari mynd og hann setur einhvern rómantískan blæ yfir myndina. Smelltu á til að stækka


Þessi mynd finnst mér líka afskaplega heillandi. Þetta eru Ninni og Dagmar að draga Kristján Frey á fögrum febrúardegi. Veifan hjá Ninna setur punktinn yfir i-ið hvað þessa varðar. Smelltu til að stækka


Afskaplega falleg mynd af Kirkjufellinu. Þessi mynd var lengi uppáhalds myndin mín í öllum heiminum. Hún er samsett úr þrem myndum teknum á mismunandi lýsingu. Smelltu til að stækka


Þessi finnst mér líka mjög skemmtileg. Gústi bróðir á flugi. Það sem heillaði mig við þessa var hvernig umhverfið er smá á hreifingu og Gústi og krossarinn í fókus. Smelltu til að stækka


Þetta hljómar asnalega en það er eitthvað við þessa mynd sem grípur mig. Þetta er kannski mynd af ómerkilegu og ryðguðu vegasalti en það er samt eitthvað við hana. Veit ekki alveg hvað það er. Litirnir kannski. Veit það bara ekki. Smelltu á til að stækka


Mistur og sólstafir yfir Snæfellsjökli. Þessi finnst mér vel heppnuð hjá mér þó ég segi sjálfur frá 😉 Smelltu á til að stækka


Rúna mín að blása sápukúlur í Kensingtongarði í London. Skemmtilegt myndefni og almenn góð stemming í þessu. Smelltu til að stækka


Þreyttir göngugarpar á toppi Snæfellsjökuls í Jónsmessugöngu síðasta sumar. Þessi mynd finnst mér vera óendanega kúl. Minnir mig alltaf á byrjunina í Band of Brothers þáttunum. Svona nett silouette stemming. Smelltu til að stækka


Tekin uppá Kirkjufellinu. Það er eitthvað við þessa sem er svona stórbrotið. Litlar mannverur horfa yfir himin og haf. Smelltu til að stækka


Skemmtileg mynd af Kristjáni Frey vera að leika sér í garðúðaranum hjá Gaua Ella. Smelltu til að stækka


Kristján Freyr á ströndinni og virkar eitthvað efins hvort hann eigi að láta sig vaða í ölduna. Smelltu til að stækka


Kristján Freyr og Rúna mín að vaða öldurnar fyrir neðan Garða í Staðarsveit. Fallegt skýjafar toppar þessa mynd. Smelltu til að stækka


Kirkjufellið í allri sinni sólarlags dýrð. Smelltu til að stækka


Mér finnst þessi nú bara skemmtileg því að ég var að prófa að fikta í multiplicity. Svaka stuð. Smelltu til að stækka


Þessi finnst mér vera ansi skemmtileg. Þetta er Maggi Jobba frá sniðugu sjónarhorni. Svo er þetta líka ein af fyrstu HDR myndunum mínum. Smelltu til að stækka


Maggi Jobba á flugi. Mér finnst þessi rosalega flott. Smelltu til að stækka


Rúna og Kristján Freyr hvíla sig við Dynjanda. Smelltu til að stækka


Selhagi í Borgarfirði. Bær sem að langafi minn byggði. Þessi er í svolitlu uppáhaldi hjá mér af persónulegum ástæðum. Smelltu til að stækka


Gústi og félagar í Draugabönum. Mér finnst þessi skemmtileg. Við vorum að reyna að ná Flags of our fathers stemmingu og tókst bara bærilega held ég. Smelltu til að stækka


Þetta er uppáhalds myndin mín þessa dagana. Ég held að ástæðan fyrir því sé þetta Lord of the rings útlit. Þetta minnir mig á Rivendale einhvernveginn. Smelltu til að stækka


Töff skýjafar yfir Kirkjufelli. Þessi mynd heillar mig. Kuldaleg og töff. Smelltu til að stækka


Þetta er lang vinsælasta myndin mín by far og ég skil það svo sem enda er ég frekar montinn af henni. Smelltu til að stækka


Grafan nálgast. Þessi mynd er tekin uppí skíðalyftu nú fyrir jólin. Mér finnst hún úber töff. Smelltu til að stækka

Þetta voru mínar uppáhalds myndir frá árinu 2008. Nú er spurningin hvað árið 2009 færir manni.

Þangað til næst….