Rugl dagsins er: Varð undir

Rugl dagsins er: Varð undir snjótroðara. Ungur maður frá Stöðvarfirði lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að lenda undir snjótroðara í fyrradag. Maðurinn sem vildi ekki láta nafn síns getið liggur nú frekar lemstraður á Landakotsspítala. Þannig var mál með vexti að maðurinn var að prufukeyra snjótroðarann hjá bílasölunni Ósvör og var að leggja í brekku en gleymdi að setja í handbremsu. Svo labbar hann framm fyrir troðarann og þá vildi nú ekki betur til en að snjótroðarinn rennur yfir hann. Það má því segja að maðurinn hafi hálfpartinn troðið á sjálfum sér hehehe.

Nú er hann Soffi minn farinn á sjóinn:

Puff, Tomminn var kallaður í vinnu í dag þar sem að hinn heimski Raggi þurfti endilega að fá drullu. Tomminn hefði nú alveg getað nýtt tímann í eitthvað gáfulegra eins og að vinna í Íslensku ritgerðinni sem kallinn á að skila í næstu viku. Það verður bara að reddast um helgina. Föstudagur á morgun og stuttur skóladagur. Tomminn ætlar að fara í ljós og ræktina eftir skólann og chilla síðan. Vonandi að þetta plan haldist bara aight. Svo var Ninni bróðir eitthvað að tala um að koma en það kemur bara í ljós á morgun.

Hehehe, hérna er mynd af afa mínum hehehe:

Og hérna er svo Jobbi pabbi hennar Rúnu:

Flottir kallar ekki satt.

Hérna eru svo ég og Ninni bróðir í London eye:

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Á McDonalds

Rugl dagsins er: Á McDonalds er hægt að kaupa franskar kartöflur, pæliði í því

Jæja, erfiður dagur er nú að kveldi kominn og eiginlega að nóttu líka. Tomminn byrjaði daginn á að mæta í skólann og fá þær skemmtilegu fréttir að hann hafi náð hæðstu einkunn í stæ 223 prófinu sem hann tók um daginn. Jamm hæðstur í bekknum með 8.1, alveg ásættanlegt. Svo var mætt í Efn 203 hjá fokking Nasista Leðurlesbíunni sem hatar allt sem hefur skeggrót nema þýska nasistakellinga kúluvarpara. Leiðindatími þar á ferð. Svo var það enska þar sem að Tomminn var í heimildaleit á netinu fyrir enskuverkefnið sitt.
Svo var haldið heim á leið og surfað á netinu heima í c.a 2 tíma þangað til að kallinn fór í ljós og svo í ræktina. Þegar heim var komið var hent einni 1944 sjávarréttasúpu í örbylgjuofninn og 2 brauðsneiðar með skinku og osti maulaðar með. Fínasta máltíð þar á ferð, Svo var glápt á fyrri hálfleik af Rangers vs Man Utd og svo kl 19:40 fór ég í bolta með Dabba frænda, og þar sprengdi ég mig gjörsamlega. pjúff marr, djöfull var þetta erfitt. Svo splæsti Dabbi pizzu og við fórum og horfðum á Chelsea vinna Lazio á brúnni 2-1. Fínt kvöld semsagt.
Gaui Svali
Tommi og Dabbi að horfa á leikinn
Tommi á rúntinum

Þangað til næst…….

Rugl dagsins er: Kárahnjúkaklúður: Sá

Rugl dagsins er: Kárahnjúkaklúður: Sá leiðinlegi atburður átti sér stað í gær að Imfretlíó, ítalska fyrirtækið sem sér um að byggja Kárahnjúkavirkjun villtist á leið sinni upp að Kárahnjúkum, þeir voru að ferja 5 stórvirkar vinnuvélar og enduðu við rætur Heklu. Tjónið ku nema 3 milljörðum króna. Forstjórinn skrifaði ávísun.

Þetta er einfaldlega fallegasti staður í HEIMI:

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Klepraði, ungur

Rugl dagsins er: Klepraði, ungur maður í sem var meðlimaður inn í félag ungra sjálfstæðismanna klepraði og dó á fundi með Dabba Feita Krull. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á http://www.dabbikrull.com/feitifeiti.

Tomminn er að fara að fjárfesta í stafrænni myndavél í dag, sjibbí, Tomminn náði nú að sníkja þetta út af foreldrum sínum sökum þess að gamli er að verða eldri eftir nokkra daga, djöfull.
Hérna fylgir svo mynd af Halla í góðum félagsskap.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Tomminn þjáist

Rugl dagsins er: Tomminn þjáist af heilastíflu og dettur ekkert rugl í hug.

Úff marr, Tomminn fór á djammið í gær í fyrsta sinn í langan tíma, Kallinn var staddur í Grundarfirði á laugardaginn þar sem hann horfði á Man Jú vinna Líds á Elland Ród með einu marki gegn engu og var það Keane fyrirliði sem skoraði markið. En nóg með það, Tomminn lagði af stað í borg óttans um hálf sex leytið til að mæta í skírnareftirpartý hjá Gæa og Rakel. Litla fallega prinsessan þeirra heitir nú Aldís Ylfa Garðarsdóttir. Hmm, hvar var ég? Já, í þessu skírnareftirpartý var Soffinn staddur og þar sem að allir aðrir sem þarna voru voru á leiðinni á eitthvað syndsamt fyllerí þá ákvað Tomminn að fara með Soffanum á tónleika með hljómsveitinni Mínus sem að Tommalingurinn hafði nú ekki mikið álit á, en það átti eftir að breytast svei mér þá. Þeir voru bara svona helvíti góðir og Tomminn fékk stundum gæsahúð.
Eftir tónleikana ákváðu Tomminn, Soffinn og frænka hans Soffa að skella sér bara á Breiðvang á ball með hljómsveitinni ÁMS. Hmm, þetta var dularfull lífsreynsla þar sem að við komumst öll á sjéns með sömu konunni. Mér sýndist nú samt frænkunni komast lengst með hana hehehe.
Þetta ball var búið kl 03:00 og þá rúntuðum við niður í bæ og fórum á þennan stað þar sem að Tomminn og Soffinn tóku til við að dansa alveg bláedrú, soldið sem Tommalingurinn er ekki vanur.
Þegar kl var c.a. hálf fimm var okkur Soffa nóg boðið og beiluðum á þessu. En Tommi var ekki lengi í paradís því að þegar heim var komið þá hringir síminn og af góðmennskunni einni saman rúntar Tomminn aftur niður í bæ til að skutla þremur frekar drukknum einstaklingum heim til sín. Já, það hefur sko sína galla að vera edrú og þar af leiðandi designated driver.

Jæja, þetta fer nú að verða ágætt þar sem að Tomminn er með smá hausverk eftir þetta allt saman, það er asnalegt að vera edrú en verða samt þunnur.

Þangað til næst……