Rugl dagsins er: Að handan.

Rugl dagsins er: Að handan. Siggi sleggja kíkti í heimsókn til Ruglukollsins í gærmorgun, ferðin var óvenjuleg að því leyti að Siggi sleggja er löngu dauður. Ruglukollinum leist ekkert á blikuna og hringdi í Þórhall Smiðil sem kom á vettvang ásamt hundinum Hengli sem fóru með seið og hröktu Sigga Sleggju aftur til síns heima.

Klám Klám Klám Porn Porn Porn Sex Sex Sex Hardcore Hardcore Hardcore

Hrmpf bara að gá hvort að teljarinn taki smá kipp hehehe.

Tomminn er staddur í Grundarfirði þessa stundina og líkar bara vel. Sylvía fóstursystir Tommans eldaði geðveikt góða ommilettu fyrir kallinn í hádeginu og Tomminn er í góðu yfirlæti. Málið er að Sylvía sér um alla eldamennsku á heimilinu þessa dagana þar sem að það er einhver kolefna eða kolvetna kúr þessa dagana. Það fellst í því að engin kolefni/kolvetni mega vera í matnum sem borðaður er. Semsagt engar kartöflur, hrísgrjón, pasta, brauð og svoleiðis dótarí. Bara fullt af ommilettum, beikoni, smjöri, kjöti og annað góðmeti. Sniðugur megrunarkúr þar sem að maður má hakka í sig beikon að vild en verður að láta hrísgrjónin vera. Hahaha og þetta helvíti virkar víst, Spurning um kransæðarnar en hvað gerir maður ekki fyrir kjörþyngdina.

Veðrið hér í firðinum er alveg frábært þessa stundina og fjörðurinn er spegilsléttur eins og svo oft áður. Tomminn stendur fast á því að þetta sé fallegasti staður í heimi. LIFI GRUNDARFJÖRÐUR.

Stórleikur Leeds vs Man Jú í fyrramálið. Spurning hvað nauðgararnir í Leeds gera á móti dópistunum í Man Jú.

Þetta verður væntanlega hörkuleikur eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast.

Spurning hvort að maður freisti gæfunnar aftur í Lengjunni hehehe

þangað til næst……

Rugl dagsins er: Fór bobbingavillt.

Rugl dagsins er: Fór bobbingavillt. Gunni Páls hvarf af yfirborði jarðar eftir að upp komst að hann hafi káfað á bobbingum nágrannans. Eiginkona Gunna er í yfirheyrslu as we speak.

Jamm og jæja, ég er greinilega í mikils metum hjá einhverjum einum aðila sem hefur farið inn á skoðanakönnunina mína og slett c.a. 30 atkæðum í að ég sé snillingur og efni í forseta hmmmm, það var ekki ég sjálfur ég sver það.

Svo er það bara langt helgarfrí, reikna með að fara til Grundarfjarðar á morgun og koma aftur á laugardaginn til að mæta til Gæa og Rakelar í skírnarveislu 🙂

Bon voiage segi ég nú bara

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Á skíðum

Rugl dagsins er: Á skíðum skemmti ég mér, hann Lubbi Blondkvist fór í fýluferð upp í Bláfjöll um helgina þar sem hann ætlaði á skíði, enginn var snjórinn þannig að Lubbi fór bara í berjamó.

Hún Rutla Soffasystir var með þetta skemmtilega próf. Fínt svona í morgunsárið aaiight.

Hér fyrir neðan eru 4 spurningar. Þú verður að svara strax.
Ekki gefa þér tíma .. svaraðu eins fljótt og þú getur.

Tilbúin?

BYRJA!!!

Fyrsta spurning: Þú ert þátttakandi í kappakstri. Þú tekur fram
úr bílnum í öðru sæti. Í hvaða sæti ertu?

Svar: Ef að þú svaraðir FYRSTA, þá hefurðu rangt fyrir þér.
Ef að þú tekur fram úr öðru sæti, þá ertu í öðru sæti.

Ekki klúðra næstu spurningu líka. Og ekki gefa þér
jafnlangan tíma og þú tókst þér í þeirri fyrstu.

Önnur spurning: Þú tekur fram úr bílnum í síðasta sæti. Þá ert þú í …
?

Svar: Ef að þú svaraðir næst-síðastur, þá hefurðu aftur rangt fyrir þér.
Segðu mér … hvernig er hægt að taka fram úr bílnum í SÍ?ASTA sæti.

Þarf aðeins að leiðrétta snillinginn sem fann upp þessar spurningar
svarið er : jú í 1.sæti þar sem þú ert að hringa síðasta bílinn!!!

Þú ert ekkert sérstaklega klár í þessu greinilega.

Mundu að nota bara hugann við næstu spurningu.
Enga vasatölvu eða neitt þessháttar, eða skrifa niður.

Þriðja spurning: Taktu 1000 og bættu 40 við. Bættu öðru 1000 við. Bættu
núna 30 við. Bættu núna 1000 við. Og núna 20 við. Núna öðru 1000. Og
núna 10 við.

Skrollaðu niður til að sjá svarið …

Fékkstu 5000? Rétta svarið er nefnilega 4100.

Þetta er greinilega ekki þinn dagur.

Kannski nærðu næstu spurningu. Mundu að hugsa hratt!!

Pabbi Maríu á fimm dætur: 1. Nana, 2. Nene, 3. Nini, 4. Nono, hvað
Heitir þá sú fimmta?

Svar: Nunu?

NEI!! Auðvitað ekki. Hún heitir María, lestu spurninguna aftur.

HAHAHA

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Fór úr

Rugl dagsins er: Fór úr límingunum. Það óheppilega atvik átti sér stað um helgina að Knútur Barkarson fór úr límingunum þegar Þýskaland og Ísland áttust við. Þannig var mál með vexti að Knútur var að bölva prússneska dómaranum þegar hausinn á honum datt af. Farið var með Knút í skyndi upp á Landsspítala og hausinn límdur aftur á, en því miður öfugt

Helvítis heimsku og fúlu mánudagar. Af hverju getur vikan ekki bara byrjað á þriðjudögum, svona fjögurra daga vinnuvika a la Jón Travolta hehe. Nei, þá væru þriðjudagarnir líklega bara enn þá verri. Tomminn vann í boltanum hehehe og í lengjunni eins og áður hefur komið fram hehehe.

Rakst á þessa heimasíðu þegar ég var að vafra um veraldarvefinn og þar á eftir á þessa. Alltaf gaman að rekast á Grundfirðinga á netinu. Ætli það sé ekki best að skella þessu skrítna fólki inn í linkasafnið.

Tomminn þarf að gera eitthvað hópverkefni í ensku næstu vikurna. Verst er að ég og félagi minn sem er með mér í þessu vitum bara ekkert hvað við eigum að skrifa um, allar hugmyndir eru vel þegnar. Gaurinn sem er með mér í þessu er 19 ára snjóbretta töffari sem heldur með Lifrapúl. þannig að áhugamálin passa jafnvel saman og mörgæs með skitu sem er að reyna að para sig við holdsveikann hund. Reyndar höfum við báðir verið á sjó og spurning hvort það sé eitthvað vit í að skrifa um það, andskotinn ég nenni ekki að pæla í þessu. Þarf að læra undir 2 stæ próf, sull.

Og hvaða tíska er það að setja upp einhvern fokking 100 liða lista um sjálfan sig??? ég er búinn að sjá þetta hjá tveimur bloggurum núna, og önnur þeirra var Ísdrottningin sjálf.

jæja nenni ekki meir.

Þangað til næst…..

Ekkert rugl núna, Tomminn er

Ekkert rugl núna, Tomminn er glaður

Jamm þó svo að úrslitin í dag hafi verið slæm þá voru þau nú samt sem áður góð. Ísland er úr leik fyrir EM 2004 en Tomminn náði að skrensa út 30.000 kr úr lengjunni 🙂 Óskið mér til hamingju í commentakerfinu eða í dagbókinni

Góður dagur í dag hehehe

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Tóti tönn

Rugl dagsins er: Tóti tönn kallaður í landsliðið. Já hinn kunni knattspyrnumaður Tóti tönn hefur verið kallaður inn í Íslenska hópinn vegna fjöldafráfalls varnarinnar. Tóti svaraði neyðarkalli Bláskers Sigurvonssonar og Loka Gólafsonar játandi. Tóti sem er 58 ára og lék á árum áður með knattspyrnufélögunum Fal og Afturábak.

Jamm þá er Tomminn að blogga í vinnunni því að það er fokking ekkert að gera, jú það kom einn gamall maður sem var í vandræðum með tölvuna sína. Tomminn þurfti að hlusta af mikilli athygli á gamlingjann skýra út að tölvan væri biluð. blablabla zzz zzz zzz, eftir fimm mínútna tuð og bull um ekki neitt komst Tomminn að því að Gamli hafði eytt út nokkrum mikilvægun winxp fælum og tölvan startaði sér ekki upp. Þetta þýddi að það þurfti að strauja vélina upp á nýtt og setja inn xp aftur. Gamalt fólk og tölvur!!!

Minnir mig reyndar á skondna sögu sem ég heyrði í sumar, þannig var mál með vexti að einn öldungurinn í Grundarfirði ákvað að kaupa sér tölvu. Hann hafði nefninlega svo ógurlega gaman af því að leggja kapal og spila bridge og fannst tölvukaup því tilvalin leið til að eyða ellilífeyrnum sínum. Gísli Móa heitir þessi heiðursmaður og hann var vanur að hringja í hina og þessa þegar eitthvað bjátaði á hjá honum. Svo dag einn fær Þór nokkur Geirsson sem er pabbi hans Hemma Geirs félaga míns hringingu. Þá er það Gísli Móa alveg í vandræðum með nýju tölvuna sína. Tóti mætir á svæðið til að athuga með kallinn og finnur þá gamla sveittann yfir tölvunni með spilastokk í hendinni að velta fyrir sér hvar í andskotanum spilin ættu að fara inn í þetta skrapatól. HAHAHAHA Gamalt fólk og tölvur HAHAHAHA.

Það er kannski þetta sem er þess valdandi að kollvik Tommans eru að hækka þessa dagana, hver veit?

Svo er það bara landsleikurinn á eftir og spurning hvernig þetta fer alltsaman. Tomminn tippaði og ef allt fer illa þá fer allt vel fyrir Tommann og hann verður 30 þús. kr ríkari, en ef allt fer vel þá verður Tomminn 2000 kr fátækari en samt sæll og glaður 😉

ÁFRAM ÍSLAND

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Jebeibíje Úff

Rugl dagsins er: Jebeibíje

Úff hvað Tommalingurinn er eitthvað þreyttur eftir þessa blessuðu ræktarferð í dag. 140 magaæfingar liggja í valnum og Tomminn er kominn með harðsperrur á skrítnum stöðum.

Annars er Tomminn búinn að vera að hlusta á nýja diskinn með Muse þessa dagana og þvílík andskotans snilld. Muse eru alveg ótrúlega góðir og fá atkvæði Tommans í bestu hljómsveit heims.

Jæja þá er best að fara að sulla í sig sjávarrétta súpu frá 1944,

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Í frelsis

Rugl dagsins er: Í frelsis leit um miðja nótt. Pála Púrra smjattpatti með meiru fór ásamt fríðu föruneyti sem samanstóð af Tomma Tómat, Lúlla Lauk og Billa Brómberi í frelsisleit. Smjattpattar burt flúðu fljótt, í frelsisleit um miðja nótt, þau fundu þarna allt til alls, í friðsælum garði. Þarna Pála Púrra er, Petru maður líka sér…..

Enn er vikan skróplaus þó svo að Tomminn hafi mætt eilítið of seint í morgun, 26 ára kennarasleikjan kom því í kring að hann fengi engan punkt þó svo að kallinn hafi mætt 20 mínútum of seint hehehe. Tomminn eyddi gærkvöldinu í myndagláp. Þannig var að Tomminn ákvað að brasa aðeins við að tengja tölvuna við heimabíóið og sjónvarpið hans Gaua litla til að geta horft á allskyns dótarí í sjónvarpinu. Þetta gekk svona næstum því áfallalaust fyrir sig og Tomminn var byrjaður að glápa á S.W.A.T um sex leytið. Helvíti fín ræma og Colin Farrell er einhver sá flottasti í bransanum í dag. Svo skellti Tomminn The Italian Job í gang og þar var á ferðinni önnur fín ræma með hinum væmna Mark Wahlber a.k.a Dirk Diggler í aðalhlutverki. Myndin skartaði líka 2 af uppáhalds leikurum Tommans, þeim Edward Norton og Jason Statham sem er eins og alltaf óendanlega mikill töffari með skalla. Kollvik Tommans eru farin að hækka eylítið og því horfir Tomminn vonaraugum á menn eins og Jason Statham og Arnars Gunnlaugssonar sem bera skallann með prýði.
Eftir The Italian Job skellti Tomminn myndinni Wrong Turn af stað, frekar slæm mynd með fyrirsjáanlegum söguþræði. Tomminn mælir ekki með henni en mælir samt hiklaust með hinum tveim.

Ríó Ferdinand virðist vera í djúpum skít, eða Enska landsliðið. Nú segjast menn bara ætla í verkfall til að mótmæla meðferðinni á Ríó. Drifnir áfram af Júnæted mönnunum Butt, Scholes og Neville systrunum er allt enska landsliðið búið að hóta verkfalli. Mikilvægasti leikur Englinga er framundan á móti Tyrkja Guddu og félögum og spurning hvernig þetta mál þróast.

Svo er það bara ljós og ræktin þar sem að Tomminn þarf að halda áfram að þyngja sig hrmpf.

Þangað til næst……