Rugl dagsins er: Fann Flétturima:

Rugl dagsins er: Fann Flétturima: Ungur Keflvíkingur, Aron Leifs var búinn að ráfa um Grafarvog síðan í febrúar í leit að Þorrablótspartýi sem hann var búinn að boða komu sína í. Partýið átti að vera í Flétturima 4 en aldrei fann Aron staðinn. Það var ekki fyrr en í gær að hann rakst á símaskrá sem innihélt götukort að hann gat mætt á staðinn. Kannaðist þá enginn á staðnum við neitt partý enda íbúarnir nýfluttir. Aðspurður sagði Aron að það gengi bara betur næst.

2 dagar búnir af skólavikunni og Tomminn ekkert búinn að skrópa. Enda þurfti kallinn að snúa blaðinu við og gengur það bara ágætlega ennþá. Tomminn fór í bolta á sunnudag og mánudag og tapaði í bæði skiptin, nú er kallinum hætt að lítast á þetta og þetta er ekkert fyndið lengur. URRRRR, líklega verður einhver glottandi plebbinn sparkaður niður í næsta tíma. Nei segi nú bara sona.

Flúmpar ekki lengur.

Tommalingurinn er búinn að þyngjast um heil 2 kíló síðan þetta blessaða ræktar átak byrjaði og er Tomminn að vona að það séu 2 kíló af massa en ekki fitu.

Og eitt enn…. Sleggja, þú ættir nú að fara að róa þig í þessum klósett/túrtappa/kúkogpiss bröndurum þínum. Manni er bara hætt að lítast á blikuna með þessi mál þín. Vita foreldrar þínir af þessu??? Ég held þeir ættu þá að flétta aftur upp í uppeldisbók Hemma Gunn og skoða hvað klikkaði með þig. Nei segi bara svona, þú ert ágæt.

Þangað til næst…..

Hamingjuóskir: Gæi nokkur Hadda og

Hamingjuóskir: Gæi nokkur Hadda og Rakel spúsan hans eignuðust litla prinsessu aðfaranótt laugardags, krílið var 14 merkur og 50 sentimetrar við fæðingu og óskar Ruglukollurinn þeim og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju 🙂

Stundum þegar maður vaknar eftir of mikinn svefn er eins og maður sé barasta þunnur, það er kannski ekkert vit í því að hætta að drekka hmm ef maður er hvort eð er alltaf þungur í hausnum og asnalegur, djöfuls óréttlæti.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Híf opp

Rugl dagsins er: Híf opp sagði karlinn, inn með trollið inn, hann er að gera haugasjó inn með trollið inn

Tomminn er mættur aftur í borg dauðans og er sestur fyrir framan skjáinn. Þetta var mjög svo dularfull ferð vestur, sérstaklega fyrir kisa litla sem skemmti sér engan veginn. Tomminn þurfti jú að ferja litla krílið til Grundarfjarðar fyrir Rúnu. Kötturinn var engan veginn að fýla þetta og vældi statt og stöðugt alla leiðina, mér og ferðafélaga mínum honum Hlíðkvist til mikils ama. Svo þegar við vorum að nálgast afleggjarann inn í Hvalfjörð nær Borgarnesi þá gýs upp þessi þvílíka djöfulsins skítafýla að mér og Hlíðkvist leist bra ekkert á blikuna. Við stoppum bílinn, opnum kassann sem innihélt kisa og sáum þennan líka rosalega lort í kassanum og eitt stk brjálaðan kisa. Dabbi Hlíðkvist byrjar að kúgast og hoppar út að æla, Tomminn hendir kassanum á eftir honum og við ákváðum bara að skilja kassa helvítið eftir í vegkantinum og allt sem í honum var (nema köttinn að sjálfsögðu). Svo var bara gefið í og drifið sig til Grundó áður en kisa yrði aftur mál að drulla.

Þegar til Grundarfjarðar var komið var kettinum komið fyrir á nýja heimilinu sínu og svo kíkti Tomminn á Kaffi 59 og fékk sér kaffi á meðan strákarnir voru að fá sér bjór. Tomminn nennti nú ekki að hanga lengi þar og fór heim að horfa á sjónvarpið. Vaknaði svo kl ellefu á laugardags morguninn og kíkti á leik Lifrapollsins og Asnenal þar sem að helvítis Nallarni fóru með sigur af hólmi eftir glæsimark frá Róbert Píres.
Svo horfði Tomminn á Júnæted vinna auðveldan og fyrirhafnarlítinn sigur á Börmingham sití þar sem að markmanni Börmingham var vikið af leikvelli á 36 mín.

Svo er það bara ræktin í fyrramálið og ekkert rugl.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Jógúrt framleiðsla.

Rugl dagsins er: Jógúrt framleiðsla. Hafliði Engilbertson, atvinnulaus 120% öryrki stendur í ströngu þessa dagana. Hafliði er nefninlega að hefja eiginframleiðslu á jógúrt í kjallaranum hjá sér. Hann er búinn að fjárfesta í einni belju og gengur til mjalta tvisvar á dag. Aðspurður segir hann nú að framleiðslan sé nú bara í þrjá morgunmáltíðir á viku en einhverstaðar verða menn að byrja er það ekki. Hafliði er bundinn við hjólastól og nærist í gegnum rör.

Nú segir hinn áreiðanlegi fréttamiðill The Sun að “saklausi” aðilinn í nauðgunarmálinu sé leikmaður Chel$ki en ekki Harrí Kjúvell eins og Tomminn var búinn að ákveða. Spurning hvaðan hinir plebbarnir séu.

Tommalingurinn hyggur á sveitarúnt í dag en fyrst ætlar kallinn í ljós og ræktina.

Tomminn horfði á ansi skemmtilegan þátt á S1 í gær þar sem að Þorsteinn Guðmundsson fóstbróðir fer með aðalhlutverkið, þátturinn ber nafnið Atvinnumaðurinn og þar fer Þorsteinn í hinar ýmsu starfskynningar oft með spaugilegum afleiðingum. Í þættinum í gær prófaði Steini að fara á sjóinn á netabát Tommanum til mikillar skemmtunar þar sem að Tomminn kannaðist við slíkar veiðar þar sem að Tomminn var á þessum skítakopp. Þorsteinn stóð sig EKKI með prýði og varð sjóveikur karlanginn og var ekki harður á goggnum. Svo um daginn var Atvinnumaðurinn í kennarastarfinu þar sem að hann pissaði í buxurnar fyrir frama 10 bekk og kvaðst vera Skúnkesíu-sjúklingur hvað sem það nú er. Tomminn mælir með Atvinnumanninum.

Annars er þetta málið hjá Tommanum þessa dagana og þarf gamli að fara að róa sig í þessu og fara að einbeita sér meira að skólanum. Tommanum barst bréf í pósti þar sem hann var hvattur til að bæta mætingun all verulega og hyggst Tomminn bregðast við því á jákvæðan hátt.

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Fór á

Rugl dagsins er: Fór á sjúddirarirei. Ung kona frá Siglufirði lenti í skemmtilegri reynslu um síðustuhelgi þar sem að hún var stödd í höfuðborginni, málið var að hún var að bíða eftir leigubíl á Lækjargötu og fékk loksins bíl þar sem að söngvarinn góðkunni Gylfi Ægisson var við stýrið. Það skipti engum sköpum nema að Gylfi fer með henni á Sjúddirarirei sem er Vesfirskt orð fyrir að rúnta.

Tomminn náði sér í svona skoðanakönnun og gestabók og hvetur lesendur til að taka þátt í þessari vitleysu. Svo bætti ég Soffa félaga mínum og hljómsveitar meðlim í hljómsveit Tommans inn á linka safnið.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Hinir margrómuðu

Rugl dagsins er: Hinir margrómuðu íslensku drengir sem mynda hljómsveitina Pappar ætla að halda tónleika og bingó í dvalarheimilinu Fellaskjól. Allir velkomnir

Tomminn fór í Þjóðmenningarhús Íslands í dag, þetta var bara fínt upplifelsi og Tomminn sté mun fróðari út heldur en hann var þegar hann gekk yfir þröskuldinn. Mjög svo merkileg handrit sem eru þarna til sýnis og merkilegir hlutir úr sögu íslands. Þar ber hæst Konungsbók og Flateyjarbók sem eru einhver dýrmætustu handrit Íslinga. Tommanum fannst þetta bara stórmerkilegt og hinn ómenningarsinnaði Tommi er bara hæst ánægður og hvetur alla sem ekki hafa kíkt á þetta að gera sér ferð þangað. Stóra hvíta húsið við hliðina á Þjóðleikhúsinu.

Tomminn eyddi gærkveldinu í leiðinda fótboltagláp og varð bara pirraður fyrir vikið. Heimska Júnæted lið. Og heimsku Chelski að leyfa ekki Eidda okkar að spila.

Tomminn hyggur á Grundarfjarðar ferð um helgina þar sem að hunda helvítið hennar múttu gömlu var að eignast fimm stk af hvolpum og langar því Tommanum að kíkja á þessi dúllugrey, tveir þeirrra eru seldir og ef einhver hefur áhuga þá eru hinir þrír falir fyrir c.a. 100.000 kr. Einhver sem mér dettur í hug að vanti hund, bara svona “of the top of my head” er Sössi. Mannkvikyndið er búinn að vera einhleypur ansi lengi og svo er Járni að flytja út frá honum. Kannski að Sössinn hafi nú ekki alveg efni á svona hundahelvíti en hann getur nú alltaf farið og fengið sér einn ókeypis í dýraathvarfinu. Hunda helvíti eru jú sögð vera besti vinur mannsins og Sössanum veitir ekkert af því þar sem að hann heldur ekki í mennsku vini sína sem flytja út frá honum í hrönnum.
Þannig að Hund fyrir Sössann og allir verða sáttir, nema kannski hundurinn.

Nú eru menn farnir að hallast að því að það séu Njúkastel menn sem séu meintir aðilar í þessu nauðgunarmáli. Mín kenning er sú að Harrí Kjúvell hafi hösstlað eina 17 ára píu og farið með henni upp á hótel herbergi. Kjúvell sem er jú fyrrverandi Lídsari og er væntanlega félagi þeirra Lí Báíers og Djonaþan Vúdgeits sem spila með Njúkastel, hefur hringt í þá og boðið þeim í partý, þeir hafi komið sjö saman og hent Kjúvell út (líklega fyrir að hafa farið til Lifrapolls) og nauðgað 17 ára gellunni allir saman á meðan Kjúvell (sem er líklega saklaus af þessu) hefur verið grenjandi á hurðinni. Síðan hafa þeir dottið í það og hent gellunni út og hún í svekkelsi sínu fyrir að fá ekki að vera í partýinu hefur ákveðið að kæra þá alla.
Þetta er nú bara mín kenning og kemur þetta væntanlega allt í ljós síðar.

Þangað til næst…..