Lag dagsins er: Speculum með

Lag dagsins er: Speculum með Adema

Tomminn var að koma úr afmælisteiti hjá Steina Jobba og var þetta barasta helvíti fínt. Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna.

Aumingja Jón Frímann er það eina sem Tommanum dettur í hug, jú og kallinn komst að því af hverju Bibba brjálaða er kölluð Bibba brjálaða hehehe.

Hérna eru nokkur sýnishorn:

Þangað til næst……

Lag dagsins er: You’ll never

Lag dagsins er: You’ll never walk alone með some geek

Þetta er aldeilis hmm ha.




I’m Chandler Bing from Friends!
Take the Friends Quiz here.
created by stomps.

Tomminn og the Chan man eiga sitthvað sameiginlegt.

og já, Lifrapollurinn tapaði á heimavelli í dag, bara svona ef einhverjir væru búnir að gleyma því, Gaui minn, Járni, Halli, Sössi, Blobbi, Júlli J og allir hinir púllaraandskotarnir sem ég man ekki eftir, það gengur bara betur næst hehehe

Þangað til næst……

Lag dagsins er: You’ll never

Lag dagsins er: You’ll never walk alone með einhverjum aula

Það má svo geta þess að Man Jú vann nágrannaslaginn á Old Trafford með 3 mörkum gegn 1 og komst þar með í toppsætið í Úrvalsdeildinni. Svo töpuðu Chel$ki á heimavelli fyrir Bolton 1-2 og Lifrapollurinn tapaði svo líka á Antfíld fyrir Sáþamton hehehe til að toppa daginn

End júll neveeeer get ei djob, Júll neveeeeerrr get ei djob (tileinkað Húlla feita) FOR ME TO POOP ON

Það má svo bæta því við að Raggi Lobbster er skítþunnur í vinnunni í dag hehehe gott á hann

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: New Born

Lag dagsins er: New Born með Muse

Vá er orðið sem er Tommanum hugfallið núna, Vá er eina sem maður getur sagt við þessari snilld. Tomminn var semsagt að koma af tónleikum með bresku hljómsveitinni Muse og þvílík andskotans snilld. Þetta var rosalegt. Mínus byrjaði að hita upp og þeir voru rosalega góðir og stóðu sig vel. Mikill fýlingur þegar þeir tóku Romantic Exorcism, My name is Cocaine og The Long Face. Þeir semsagt hituðu mannskapinn upp en það var ekkert miðað við það sem fólkið átti í vændum.

Þegar Muse steig á sviðið var eftirvæntingin orðin mikil og ekki varð maður fyrir vonbrigðum, þvílík hljómsveit, Tomminn á barasta engin lýsingarorð til að lýsa þessu. Þessir tónleikar fara pottþétt á topp 3 listann yfir þá tónleika sem Tomminn hefur sótt. Hver slagarinn rak annan og Tomminn skríkti eins og smástelpa á milli þess sem hann kláraði raddböndin í að syngja með. Hérna kemur smá sýnishorn en myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna.

Þangað til næst…..

Lag dagsins er: The Whole

Lag dagsins er: The Whole World með Outkast

Jæja, Tomminn var að koma úr prófi í íslensku og gekk það barasta bærilega, eftir prófið var farið að fá sér í gogginn og svo í ljós og chillað, restin af deginum fer í ekki neitt, reikna með að koma liðinu mínu í FIFA 2004 upp um deild eða bara hanga í CM fram eftir degi og horfa svo á Man Utd vs Stuttgart í kvöld.

Var að vafra inn á Innu og ath með einkannir og svoleiðis og sá þá að mér sýndist að snillingurinn hann Guðlaugur væri bara strax búinn að fara yfir prófið og viti menn, Tomminn var með 7 í vetrareinkunn og 7 í prófseinkunn þannig að lokaeinkunin hans var 7, einnig fann ég lokaeinkunina í Stæ 223 og reyndist hún vera 8 sem er barasta fínt. Tomminn rambaði einnig á einkunina í EFN 203 og vil sem minnst tjá mig um það en það fór sem Tomminn hafði spáð, vægast sagt illa. Lægsta einkun í skólasögu Tommans 😦

Svo má líka geta þess að það eru 99kr dagar í Hagkaup þar sem að Tomminn gerði góð kaup og keypti 3 kippur af pepsi hehehe

Þangað til næst…….