Liverpool aðdáandi dagsins er: Big

Liverpool aðdáandi dagsins er: Big Goj

Well well well, allir á Shell……

Fór á djammið í gær með mæ meit Soffi únd his kjútipæ Signý, það var fínt, drukkum Kaffi á Cafe París og sugum kók á Vegamótum hehehe að vísu frá Vífilfell.

Á síðustu myndinni má sjá Þórhildi Gísla og Eyrúnu Björk ef vel er að gáð.

Annars er maður búinn að vera í góðum gír undanfarið, fór út að éta á Aski Suðurlandsbraut um daginn og verð ég hreinlega að mæla með þeim stað. Ekki svo dýr (svipaður verðflokkur og Ruby Tuesday) en samt mjög góð þjónusta og snilldar matur.

Ég lenti í dularfullum aðstæðum á föstudaginn í skólanum. Þannig var mál með vexti að ég var í eyðu eftir fyrsta tímann og var bara að drepa tímann með því að rölta upp á bókasafn eins og ég geri oft. Ég þarf að skvetta úr skinnsokknum og ákveð því að bomba mér á kamarinn í leiðinni. Þegar ég er farinn að nálgast skíthúsið sé ég að svona eldri maður (c.a. 45 – 55 ára) er að ferja vatn í afskorinni líters pepsi flösku yfir í blómapott sem er staðsettur á ganginum fyrir framan klósettið. Ég geng bara fram hjá honum eins og ég sjái hann ekki, legg skólatöskuna á gólfið og fer að míga. Þar sem ég stend þarna við eina pissuskálina og er að láta leka úr honum þá sé ég útundan mér að gamli skápurinn nálgast til að míga líka (svona eins og gengur og gerist). Þarna stöndum við báðir, aleinir inná karlaklósetti og míga og það myndast svona vandræðaleg þögn, sem er allt í lagi mín vegna því maður lendir ansi oft í svona aðstæðum. Þá finnur hann sig greinilega knúinn til að upphefja einhverjar asnalegar umræður.

Eldri maður: “Já maður verður nú að gefa blómunum líka að drekka”
Tommi annars hugsi: “hmm ha?”
Eldri maður: “Ég sagði að maður verður nú að gefa blómunum að drekka líka, það má ekki láta þau skrælna”
Tommi svarar svona fyrir kurteisis sakir: “ha, já þau mega ekki skrælna litlu krílin”
Eldri maður: “nei nei, þau mega það ekki hmm”

Tommi líkur sér af og þögnin verður ennþá vandræðalegri fyrir vikið. Þvæ mér um hendurnar, tek upp skólatöskuna og byrja að labba út og þegar ég er eiginlega alveg kominn út þá heyrist innan af klósetti: “Heyrðu takk fyrir spjallið og við sjáumst”.
Af einhverjum ástæðum greikka ég sporin og tek tvær tröppur í skrefi upp á bókasafn. “Hvað í andskotanum átti hann við með þessu” hugsaði ég á meðan ég nálgaðist bókasafnshurðina. Var þetta svona ægilega einmana gamall karl sem átti ekkert líf annað en að þvælast á karlaklósettunum í framhaldsskólum landsins og vökva blómin??? Verð ég kannski svona??? Hvað meintann með “sjáumst”??? Ætlast hann kannski til þess að ég hitti hann á klósettinu aftur á morgun til að vökva blómið??? Djíses kræst, ég hugsa mig sko tvisvar um næst áður en ég fer aftur inn á þennan kamar.

Markmiðið með þessari sögu er að vekja athygli á því að klósett geyma allskyns fólk og geta verið stórhættuleg.

Þangað til næst……

Fugl dagsins er: Hermikráka Hann

Fugl dagsins er: Hermikráka

Hann Logni vinur minn var með þessa skemmtilegu mynd inná heimasíðunni sinni þannig að ég varð bara að hnupla henni tíhíhíhí.

Kannast einhver við telpuna???

Hún er ansi lík einni ákveðinni söngkonu sem hefur gert garðinn frægann hérna á skerinu, ég nefni engin nöfn en fyrsti stafurinn í nafninu er Birgitta, úbbs.

Annars skellti ég mér í bankann í dag sem væri ekki frásögum færandi nema að þetta var blóðbankinn. Ég mæli eindregið með því að fólk leggi leið sína þangað á 3-4 mánaða fresti og styrki gott málefni því maður veit aldrei nema að maður þyrfti að nota sullið sjálfur sem þarna er meðhöndlað. Svo er manni boðið í kaffi og með því eftir blóðgjöf, mjög gott fyrir fátæka námsmenn að mæta þangað og taka hraustlega til matar síns. Svo er maður líka svo hress í nokkra daga á eftir, þarf minni svefn og soliz. Og svo þarf ekki að minna stelpurnar á að þið missið c.a. hálft kíló á tíu mínútum 😉 Bara gott mál.

Svo er bara verið að glápa á Bolton rúlla yfir Aston Villa. Þeir eru komnir í 3-0 eftir 17 mínútur, gott hjá þeim.

Inter var að styrkja sig í dag með því að fá Adriano til sín í dag, Snilld því hann er þvílíkt góður, rétt að verða 22 ára strákurinn.

Lúði Saha er líka svo gott sem kominn til Júnæted og ekki veitir þeim af eftir úrslit síðustu leikja, ég er ennþá órakaður en reikna með að geta tekið hýunginn á sunnudaginn því að þeir hljóta bara að vinna 3 deildar lið Northampton þó að á útivelli séu.

Þangað til næst……

Maður dagsins er: Lognið Var

Maður dagsins er: Lognið

Var að skipta um commenta kerfi, nú ætti að vera hægt að skilja eftir comment hjá mér án teljandi vandræða Æ HÓP. Þetta ömurlega sját át var engan veginn að gera það fyrir mig þannig að ég lét það sigla sinn sjó. Vonanid að haloscan eigi eftir að reynast mér betur aight.
Mæli með að bumburnar geri slíkt hið sama.

Þangað til næst…..

Glas dagsins er: Manchester United

Glas dagsins er: Manchester United bjórkannan mín

Sjitt hvað mig hlakkar til:

Þarna verða allar helstu Survivor hetjurnar mínar í gegnum tíðina. Ethan Z er þar fremstur í flokki ásamt fríðum hóp af hetjum, þar má nefna hinn eiturharða Lex, Nafna gamla geitabónda, Colby og að sjálfsögðu Rupert sem fór flatt á því í síðustu keppni. Þeir hefðu nú samt mátt bæta hinum lævísa Johny Fairplay úr síðustu seríu. Hann fór í taugarnar á flestum en maður hafði nú samt lúmskt gaman af honum hehehe.

Þangað til næst……

Skaphundur dagsins er: Tommi hinn

Skaphundur dagsins er: Tommi hinn ógurlegi

Djöfull fékk ég mikla úrvals þjónustu nú í kvöld. Haldiði ekki að Gaui og Þóra hafi ekki bara eldað fyrir kallinn, maður fékk þennan fína pastarétt, verst að Tomminn át náttúrlega yfir sig og fór svo í fótbolta og skíttapaði með miklum mun hnuss, að sjálfsögðu varð Tomminn frekar fúll og ósáttur við sitt hlutskipti og varð æstur eftir því, ANDSKOTINN


Gaui og Þóra myndarleg í eldhúsinu hehehe

Þangað til næst……

Maður dagsins er: Sigursteinn Hrólfsson

Maður dagsins er: Sigursteinn Hrólfsson fyrir að vera farinn að blogga ansi reglulega

Jæja gott fólk. Tomminn er mættur aftur fyrir framan skjáinn eftir fína helgi (ekki fótboltalega séð). Hanna systir kom á laugardagskvöldið og gisti hjá mér, við fórum bara snemma í háttinn því að við þurftum að vakna kl átta á sunnudagsmorgninum, jú jú, það gekk bara bærilega að vakna og skutluðumst við Hanna svo niður á Hlíðarenda því hún var að fara að keppa í fótbolta.

Eftir fótboltamótið fórum við á skauta í skautahöllinni þar sem að Tomminn vann það einstaka afrek að detta á rassinn eins og fífl því að maðurinn kann ekkert á skauta. Svo var það keiluhöllinn þar sem að allt fótboltaliðið spreytti sig í keilu.

Um kvöldið fór Tomminn í fótbolta sem væri ekki frásögum færandi nema að maður þarf aðeins að fara að róa sig í þessu, maður var upptjúnnaður allan tímann, öskrandi á mann og annann og þrumaði svo aumingja saklausum Atla upp í vegg. En maður fékk nú smá útrás eftir pirringsleg úrslit helgarinnar en vil samt biðja þá sem eiga afsökun skilið frá minni hálfu afsökunnar.

Jæja, ég er að spá í að hætta að vera með Lag dagsins og vera bara með “eitthvað” dagsins, núna er það maður dagsins og fellur það í hlut Sössa að vera maður dagsins. Svo kemur þetta til með að vera bara það sem mér dettur í hug, Lag dagsins, Rugl dagsins, Hommi dagsins, Fífl dagsins, bloggari dagsins og svo mætti lengi telja. Jú gett mæ drift aight.

Ég vil líka benda á að ég tók fullt af myndum af fótboltamótinu og skautaferðinni ef einhver hefur áhuga. Myndirnar eru komnar á myndasíðuna.

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Eitthvað ömurlegt

Lag dagsins er: Eitthvað ömurlegt lag með ömurlegum homma

Fokking great, frábær helgi fyrir Tommann:

– Man Jú tapar fyrir skítaliði
– Asnenal vinnur skítalið og kemst þar með á toppinn aftur
– Inter tapar á heimavelli fyrir skítaliði

Það sem vegur upp á móti:

– Lifrapollurinn tapar líka þannig að pressan frá púllara félögum minnkar eilítið
– Kominn með nýjan harðann disk
– Er ánægður með lífið
– Litla systir mín kom í heimsókn

Kannski var þetta bara ágætt.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Y’all Want

Lag dagsins er: Y’all Want A Single með KoRn

Þannig fór með sjóferð þá. Úlfarnir skelltu mínum heittelskuðu Man Utd mönnum á Múllinox vellinum í dag, Úlfarnir skoruðu eftir að Vessi Brúni rann á rassinn og missti King Kenny Milljóner framhjá sér.

Ég er búinn að gefa það út og gera það hér með opinberlega að skeggið fær ekki að fjúka fyrr en Man Júnæted vinnur næst og fjandinn hafi það.

Það er þó smá bót í máli að í þessum töluðum orðum er Lifrapollurinn að tapa þannig að það ætti að vera líft í boltanum á morgun ef Lifrapollurinn tapar líka, ég vona bara það besta, en uppsker líklega það versta. Mig dreymdi í nótt að Úlfarnir myndu vinna 1-0 og þar reyndist ég vera berdreyminn, því miður.

Andskotinn andskotinn andskotinn, síminn fékk flugferð, stofuborðið fékk að finna fyrir því ogso gleraugum mín og rúmið fékk líka nokkur vel valin högg. Ég verð að fara reyna að hemja mig aðeins. En maður er jú svolítið blóðheitur og kannski ekkert skrítið að blóðið fari á smá hreyfingu við svona fúl og óréttlát úrslit ehaggi.

Jæja, nenni ekki að pirra mig meira á þessu, boltinn á morgun og sá sem reynir að pirra mig á úrslitum dagsins fær tæklingu ala Keane aight, ye be warned.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Mad World

Lag dagsins er: Mad World með Gary Jules


Jæja, svo að Kalli kom sá og sigraði Idolið á Íslandi. Gott hjá honum.

Þetta var bara helvíti fínt hjá honum, Anna Trýna hélt áfram að vera með þessa raddbresti þannig að samkeppnin var aðallega á milli Kalla og Jóns og þar hafði Kalli betur með fínni frammistöðu.

G-strengurinn mætti hérna með lufsuna og horfðu á Idolið með mér, Rúnu lufsu, Gaua og Þóru. Svínasúpan vakti lukku en stundum er eins og þeir séu ekki alveg að finna sig í þessu þó vissulega séu þeir góðir.

Rólegheit á morgun, varð því miður að neita Agli um að vinna fyrir hann þar sem að ég var búinn að plana fínan letihaugadag sem innihélt fótboltagláp og samverustundir með ástinni í lífi mínu (tölvunni). Reikna svo með að vinna á sunnudag.

Bjarni Guðjóns kominn til Cöventrí á Englandi til að sparka tuðru, gott hjá honum þar sem hann var ekkert að gera neinar rósir í nasistalandi dauðans.

Fór í banka ekki banka.

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Out Of

Lag dagsins er: Out Of Control með Hoobastank

Tomminn fjárfestir: Já kallinn var að fjárfesta í nýjum hörðum disk þar sem að það var orðið eitthvað lítið um pláss hjá mér. 200 Gb farin. Keypti WD 160Gb disk 7200 sn með 8mb buffer og fékk hann á góðum prís í gulumúsarbúðinni hehehe. Þá getur maður haldið áfram að dánlóda klámi endalaust hehehe. Nei segi sona.

Nú er plássið í hræinu mínu 360Gb og verður það fyllt af allskyns drasli tíhíhíhí.

Svo er það bara ædolið í kvöld og ekkert bull, áfram Kalli segi ég nú bara ehaggi.

Eitthvað er g-strengurinn að væla yfir veðri og vindum og slæmri spá, ég pissa nú bara á svoleiðis bull og kippi mér ekkert upp við þetta. Það er mín skoðun að eftir að hafa verið 2 og hálfan vetur á Akureyri þá er þetta nú bara piss sem er hérna á suðvesturlandinu. Það er löngu hætt að koma einhver snjór að ráði hérna á Íslandi fyrir utan þetta smá skot sem er búið að vera núna undanfarið. Ég man þegar maður var gutti í Grundarfirði að á veturna voru snjóruðningarnir í húshæðum eftir götunum og nokkrum sinnum sást bara rétt svo í toppinn á stóru rútunum þegar þær voru að keyra eftir Grundargötunni, skíðalyftan var opin í 4-5 mánuði á ári og endalaust mikið af snjó. Maður gat búið til heilu snjógöngin út um allt og allir krakkarnir söfnuðust saman og gerðu virki og heilu snjóhallirnar og fóru svo í stríð, en það var í gamla daga. Nú til dags er það gósen tíð ef að skíðaliftan er opin í 4-5 daga á ári og manni finnst bara vera ófært ef að snjórinn nær manni upp í ökkla, helvítis bull. Það er hætt að vera vetur á Íslandi og legg ég til að við látum þetta sker heita Sódómuland aight.

Eitthvað er hróp útið að stríða manni í þessu helvítis bloggi og spurning um að fara að skipta yfir í haloscan eða eitthvað skemmtilegra, gef þessu smá séns í viðbót.

Þangað til næst…….