Lag dagsins er: I Hate

Lag dagsins er: I Hate Everything About You með Three Days Grace

Svo virðist sem Tommi og Bigfoot séu lentir aftur í vandræðum sökum hlandfýlu af kamrinum, það versta er að helvítis skítdollan er beint á móti herberginu mínu og lyktin ætlar allt að trylla. Ilmsteinninn sem ég fjárfesti í um daginn er uppurinn og nú eru góð ráð dýr. Ætli það endi ekki með því að við þurfum að þrífa helvítis skíthúsið andskotinn hafi það.

Annars var ég duglegur í gær og í dag, í gær tók ég mig til og vaskaði upp 2 vikna uppsafnaðann stafla. Svo í kvöld tók ég mig til og eldaði fyrir Bigfoot dýrindis steik. Ég keypti appelsínusteik úti í búð, tilbúið kartöflugratín og sullaði svo saman sveppasósu og bragðaðist þetta þvílíkt vel alveg hreint, ég er í þessum töluðum örðum alveg pakksaddur fyrir framan Trinitron skjáinn minn, piff.


Eitthvað er karlmennið á þessari mynd að væla vegna þess að ég bað hann ekki um að vera með í fótboltamótinu um daginn. Gæi minn, það þýðir ekkert að fara út á sjó og ætlast til þess að maður reikni með þér í bolta út um hvippinn og hvappinn hmm ha? ha?

Skólinn fer vel af stað hjá mér og leggst þetta bara helvíti vel í mig. Er ennþá með 100% mætingu og ætla ég að reyna að halda því þannig eitthvað frameftir vetri. Ég lét leðurlessuna sigla sinn sjó og skráði mig í Spænsku í staðinn fyrir þýsku. Þar er kennarinn ýfið mikið öðruvísi en vinkona mín hún leðurlessa, hún heitir Carmen og er frá Bólivíu og leggst þetta vel í mig eins og áður sagði. Snillingurinn Guðlaugur kennir mér Félagsfræði og nú er ég með nýjann kennara í Stærðfræði og Íslensku, Helga og Kolbrún, þær virka svona fínt, allavena svona fyrstu dagana.
Svo er ég í dönsku 212 líka og djísús kræst marr, ég hef ekki verið í dönsku síðan ég var á Skaganum í skóla fyrir 10 árum eða eitthvað. Fyrsti tíminn byrjaði nú ekki gæfulega þar sem að það var einhver gestakennari frá Baunalandi að röfla þetta helvítis hrognamál allan tímann og aumingja Tommi sat bara og klóraði sér í hausnum og skildi ekki bofs. Helvítis danska.

El Ninnio er að koma á morgun til að fjárfesta í rúmfleti til að hvíla lúin bein. Ætli maður kíkji ekki með honum að velja einhverja ameríska dýnu með einangruðu gormakerfi og 2000 gorma á fermeter og bla bla bla zzz zzz zzz…..

Jæja, best að fara að kíkja í háttinn svei mér þá.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Still haven’t

Lag dagsins er: Still haven’t found what I’m looking for með Kalla Idol

Verð aðeins að minnast á sjónvarpsdagskránna í gærkvöldi, kvöldið hjá mér og Big Goj byrjaði á smá CM spilun og Simpson með öðru auganu. Svo var glápt á Idolið þar sem að minn maður og fyrrverandi bekkjarfélagi úr Grundarfirði hann Kalli kom sá og sigraði einu sinni enn, en það var ekki málið. Jón 500 kall byrjaði og stóð sig vel með Elton John slagara. Næst á svið var Ardís Ólöf og söng hún bara svona la la eins og venjulega (aldrei verið hrifin af henni fyrir utan að mér sýndist nú votta fyrir smá “camel toe” hjá henni í gærkveldi). Næstur var Kalli eins og áður sagði og svo kom sjarmatröllið hún Anna Katrín, jesús minn, ég og Big Goj horfðum bara á hvern annan og skildum bara ekki hvað hún var að gera þarna, aumingja stelpan var það eina sem við hugsuðum og innan í okkur báðum myndaðist svona “ég skammast mín” tilfinning fyrir hennar hönd. Hún var vægast sagt ekki að gera góða hluti og þetta var alveg hræðileg útgáfa að annars mjög fallegu lagi, það var eins og þetta blessaða sjarmatröll væri að verða raddlaus greyið og No Doubt lagið Don’t speak féll alveg í skuggan af þessum brestum í röddinni hjá henni.
Eftir þetta kom svo Svínasúpan skemmtilega og verð ég að segja að loksins er kominn einhver skemmtilegur íslenskur grínþáttur þar sem ekki er verið að gera grín að Dabba Odds og Óla grís. Svínasúpan er snilldar þáttur í anda Fóstbræðra enda er Skari Skrípó helvíti seigur og fyndinn gæi. Við Bigfoot hlógum mikið og vel.
Svo var komið að úrslitunum í Ædol. Það kom okkur ekki á óvart að Kalli og Jón voru öruggir áfram og valið stóð á milli Ardísar og Önnu Katrínar, og viti menn, þjóðin kaus litlu sjarmakjötbolluna áfram. Eitthvað sem ég skil engan veginn því hún var alveg hræðileg og er búin að vera það undanfarið. En Ardís fór heim sem er nú líka svo sem ágætt því hún var ekkert spes en í þetta skiptið átti hún það engan veginn skilið.
En maður verður líklegast að horfa á Önnu Trínu gera sig að fífli einu sinni enn þó vissulega sé hún með spes rödd, hún verður bara að læra að nota hana. Hún á ekki skilið að vera í topp 3. En ég held að hann Kalli litli eigi alveg skilið að vinna þetta þó að ég sé pínu hlutdrægur hehehe.

Þangað til næst……

Lag dagsins er: Jibbí jei,

Lag dagsins er: Jibbí jei, jibbí jibbí jibbí jei með Rokklingunum

Var að koma af djamminu, var að sjálfsögðu edrú og á bílnum en minnstu munaði að ég hefði keyrt á tvisvar sinnum í kvöld sökum hálku hrmpf. Annars var þetta bara fínt. Fór fyrst heim til Dabba Hlíðkvist í partý sem var reyndar líka heima hjá Rebekku og Dodda en Hlíðkvist leigir víst með þeim. Heima hjá þeim var eitthvað lið, Maggi Jobba, Rúna Jobba, Ellen Gellen, Heisi, Tryggvi og að sjálfsögðu Dabbi, svo var eitthvað af vafasömu liði þarna, til að mynda nokkrar glærar gellur í g-strengs brók.

Dabbi fór á undan okkur út og stuttu eftir að hann var farinn þá kom náunginn úr íbúðinni á móti frekar fúll sko, hann var þá búinn að hringja á lögregluna út af hávaða en þetta var um það leiti sem að við vorum að tæma íbúðina af lýð. Þá kom í ljós að þessi annars ágæti náungi átti dóttur sem heitir Harpa Þórunn og var í MA með Rúnu og Ellen og allt féll í ljúfa löð að lokum þegar við sögðum honum að við værum landsbyggðar pakk og skildum vel þessa gremju í honum.

Eftir þetta spjall fórum við á Sólon og svo Felix. Þar var tjúttað og dansað eitthvað frameftir og svo var haldið heim á leið. Semsagt allt í gúddí. Ég rakst á Sigga, Járna g-streng og frænda á Sólon, þeir voru allir hressir að vanda og báru mér þá sögu að Bumburnar tvær Halli og Sössi hefðu ekki komist í bæinn sökum drykkju, gott hjá þeim hehehe.

p.s. Þú sem keyrðir á bílinn minn fyrir jól, ef þú lest þetta þá máttu rotna í helvíti þarna helvítis auminginn þinn. Það er ljóti aumingjaskapurinn að keyra á kyrrstæðan bíl og stinga svo af. Ég vona að þú fáir gyllinæð og drullu og harðlífi ofan á það. FOKK JÚ

Þangað til næst…..

Lag dagsins er: Countryroad með

Lag dagsins er: Countryroad með John Denver

Jæja, um daginn fórum við strákarnir í sleðaferð, já sleðaferð, en þessi sleðaferð var ekki eins og aðrar sleðaferðir, málið var að við redduðum forláta Stiga sleða sem við bundum aftan í eðalvagninn hans Steina Jobba. Svo var ekið af stað með einn af okkur hangandi í sleðanum á 40 – 90 km hraða, sem er bæ ðe vei er ansi skerí þegar þú ert á stiga sleða. Ég gekk hálfpartinn í barndóm aftur því þetta var svo gaman.

Nú áðan var ég að koma af fótboltamóti í sporthúsinu. Þannig var mál með vexti að ég fékk e-mail frá Sporthúsinu á þriðjudaginn þar sem mér var boðið að smella saman einu keppnisliði í knattspyrnu og skráði ég mig strax til leiks. Reglurnar voru þannig að aðeins máttu vera 6 manns í hverju liði og 4 inná í einu. Spilað var í 2 riðlum og voru 4 lið í hverjum riðli. Við mættum þarna galvaskir, ég, Dabbi, Ívar Karl, Kalli, Atli og Egill. Þetta var helvíti gaman fyrir utan að við töpuðum fyrsta leiknum 4-2 þar sem undirritaður skoraði skallamark eftir glæsi sendingu frá Agli og Ívar Karl setti hitt markið, þetta var í rauninni úrslitaleikurinn í riðlinum því liðið sem vann þennan leik vann alla leikina í riðlinum. DJÖFULL. Næst spiluðum við leik við einhverja plebba og unnum 6-3 þar sem að ég skoraði 2 mörk og Ívar, Atli og Kalli sáu um hin. Síðasti leikurinn var við einhverja vesalinga sem sáu aldrei til sólar í þessu móti og unnum við þá frekar auðveldlega 7-0 með mörkum frá Agli, Atla og Kalla að mig minnir. Við enduðum í öðru sæti í riðlinum og misstum þá af tækifærinu að spila úrslitaleikinn um vegleg verðlaun, sem voru út að borða á Argentínu steikhús. DJÖFULL.

Þetta var samt helvíti gaman bara. Ég minni svo fólk á að taka þátt í “Þekkiru Tomma” prófinu og könnununum hér til hliðar, einnig að vera dugleg að skilja eftir comment hjá mér aight.

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Rainmaker með

Lag dagsins er: Rainmaker með Iron Maiden

Jæja, Tomminn er mættur aftur í höfuðborgina eftir dæmalaust fínt jólafrí. Það vottar hreinlega fyrir smá heimþrá núna því að ég hafði það svo fínt fyrir vestan. Nú þarf maður að fara að hugsa um sig sjálfur og þvo þvott og svoleiðis vesen, bévítans vitleysa.

Ég var að öppgreida “þekkiði Tommann” könnunina og ég strokaði út fyrri skor, þannig að endilega látið reyna á Tomma kunnáttu ykkar hehehe

Þangað til næst…..

Lag dagsins er: So Far

Lag dagsins er: So Far Away með Staind

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Tomminn óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á komnu ári.

Gríðar stemming á áramótaballi í Grundarfirði í gær. Ég tók fullt af myndum sem eru nú þegar komnar inn á myndasíðuna.

Þar sem að ég var edrú eins og endra nær þá tók ég að mér að vinna á áramótaballinu og það var bara helvíti fínt. Skrítin upplifun að vera edrú á áramótunum en samt skemmti ég mér bara helvíti vel. Tabú var að spila á Kaffi 59 og stóðu fyrir sínu. Reyndar þurftu þeir að notast við gesta gítarleikara þar sem að gítarleikarinn þeirra var vant við látinn. Ekki var nú síðri snilli sem kom í hans stað, enginn annar en Gítartarfurinn úr Quarashi hann Smári Jóseps. Ballið fór mjög svo friðsamlega fram og engin voru lætin. Eftir ballið fórum við Þórhildur og Rúna heim til Rósu í samlokuveislu. Síðan fórum við ásamt Smára í teiti til Simma Idolstjörnu og var þetta bara helvíti fínt. Eins og fyrr sagði þá eru allar myndir komnar inn.

Veriði svo dugleg að commenta á bloggið mitt og taka þátt í könnununum og skrifið í gestabókina. Svo getiði commentað á myndirnar líka aight.

Þangað til næst…..