Mynd dagsins er: Þessi Jæja,

Mynd dagsins er: Þessi

Jæja, kallinn er ennþá veikur og maður taldi nú bara ráðlegt að dúsa bara heima í dag, er búinn að vera að dunda mér við að lesa Den forsvundne fuldmægtig fyrir dönskuprófið á fimmtudaginn og gengur það bara bærilega fyrir utan að ég veit ekki hvað den forsvundne fuldmægtig þýðir, en þetta hlýtur að reddast ehaggi?

Þegar ég var að fletta í gegnum Moggann í morgun rakst ég á mynd af Kirkjufellinu fagra í vetrarskrúða, sem væri ekki frásögum færandi nema að fréttin var um puttalinga á ferð í febrúar. WTF Hvað er í gangi, er fólk orðið alveg ga ga??? Þessir Frakkar, je minn eini. Reynandi að brosa á þessari mynd með grýlukerti hangandi úr nefinu, kappklædd í einhverjum gaddi. Ég held að það væri nú meira vit að vera bara heima hjá sér. FREAKS.

Þá gæti þetta átt ágætlega við hmm ha?

Væri ekki skárra að hafa plötuumslögin bara tóm, ég bara spyr, þetta er alveg skelfilegt, sérstaklega Zip Zap Rap og hann Tino, þeir hafa líklega ætlað að meika það feitt hehehe. Rakst á þetta í gegnum Batman og stóðst ekki freistinguna.

Nokkrar valentínusarmyndir fyrir ykkur hehehe

Þessi síðasta er sérstaklega góð aight

Þangað til næst……

Dráttur dagsins er: Man Utd

Dráttur dagsins er: Man Utd vs Fulham/West Ham í FA bikarnum

Það var nú ekki skemmtilegur morgun hjá mér í morgun, vaknaði eiturhress kl 07:00 og henti mér í sturtu og græjaði mig í skólann, þá fór ég að finna fyrir einhverju flökurleika. Er búinn að æla nokkrum sinnum í morgun og sleppti því að fara í skólann. Er bara heima að lesa dönsku 😦 ÖMURLEGT

Veit ekki hvort að ég kemst í bolta í kvöld, efast einhvernveginn um það eins og mér líður núna en ætla að halda því opnu eitthvað frameftir degi.

Helgin var róleg eins og alltaf, laugardagurinn fór bara í fótboltagláp þar sem að ég horfði á mína heittelskuðu Man Utd menn taka granna sína í Man Sjittí í karphúsið 4-2, Utd skoruðu 3 mörk einum færri því hinn fríði Gary Neville var rekinn út af fyrir að skalla ljóta púllarahommann hann Stíf Makkmannamann sem spilar nú með Sjittí. Árni Grautur átti góðan leik í markinu og er ekki sekur um þessi mörk. Um kvöldið var lítið gert. Ætlaði á Vegamót með Rúnu og fórum í röðina kl 01:52. Þegar kl var 02:28 nenntum við ekki að bíða lengur í röðinni því við höfðum ekki færst áfram um einn cm og fórum bara heim. Fúlt djamm það.
Sunnudagurinn var síðan bara ljúfur með tilheyrandi fótboltaglápi. Horfði á Asnenal vinna Chel$ki 2-1 þar sem að nýja hetjan á Highbury fór á kostum, ég er auðvitað að tala um Jose Antóníó Reyes sem skoraði bæði mörk Nallana.

Svo kom að leik Lifrapolls og Portsmáþ og horfði ég á hann með Lauga og Big Goj, Þeir kumpánar voru frekar fúlir því að Lifrapollnum gekk nú ekki sem skildi í þetta og gerðu bara 1-1 jafntefli og þurfa því að mæta Portsmáþ aftur.

Svo var dregið í dag fyrir næstu umferð og þar dróst Man Utd á móti Fulham/West Ham.

Svo fórum við félagarnir, ég, Laugi og Big Goj í keppni í FIFA 2004 í útsláttarkeppni. Þar sló viðvaningurinn hann Laugi Big Goj út úr keppninni í vítaspyrnukeppni, en leikurinn fór 1-1 eftir að Laugi hafði fengið vafasaman vítaspyrnudóm snemma í leiknum. Verið er að rannsaka hvort að óeðlilegar greiðslur hafi verið millifærðar til dómaratríósins.
Þar með var eftirleikurinn auðveldur fyrir mig þar sem að ég sló ðe tjítin Lauga út úr keppninni og stóð svo upp sem sigurvegari. TIL HAMINGJU ÉG.

Svo fórum við í bolta þar sem að mætingin var mjög góð. 12 manns létu sjá sig og til allrar lukku vann liðið mitt sem samanstóð af Mér, Lauga, Big Goj, Íbba, Agli og Rikka. Bara létt ehaggi.

Nenni ekki að röfla meira, þar að fara æla í baðkarið sökum hlandfýlu í klósettinu. Þori ekki fyrir mitt litla líf að stinga hausnum þar ofan í.

Þangað til næst…….

Súkkulaði dagsins er: Prince Polo

Súkkulaði dagsins er: Prince Polo þökk sé Mæsunni

Fórum við fjórða mann til Hveragerðis í gær til að sjá leik Hamars og Snæfells. Snæfell vann þennan leik og stóðu þeir sig bara helvíti vel, strákarnir á nemanum eiga lof skilið, sérstaklega McGunnerinn sem átti helvíti fín tilþrif á gólfinu á milli þess sem kallinn strauk rauða skeggið og þurrkaði undan skósólunum sínum. Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna.

Og eitt að lokum, Nonni Mæju er snarundarlegur fýr

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Beautiful Day

Lag dagsins er: Beautiful Day með U2

Já eitt hérna, Gústi Alex litli bróðir minn átti afmæli í gær, peyinn varð 16 ára. Shit, ég man þegar ég varð 16 ára og fannst ég vera tilbúinn í allt. Djöfull er tíminn fljótur að líða, mér finnst nú ekki svo langt síðan að maður var oft að passa Gústa í Söðulsholti, en svona er þetta marr, uusss.
jæja, allavena til hamingju með daginn í gær Gústi minn.

Þetta minnir mig reyndar á söguna um alverstu skítalykt sem ég hef á ævinni fundið. Ekki tengja það samt neitt við Gústa Alex nema að þetta gerðist á þeim tíma sem að hann var pínku ponsu lítill.

Lífið í Söðulsholti gekk yfirleitt sinn vanagang, vorin voru yfirleitt mjög skemmtilegur tími, skólinn að verða búinn og sumarið framundan, mig minnir að ég hafi verið svona 12 – 13 vetra og Ninni bróðir 5 árum yngri. Við vorum mikið saman eins og gefur að skilja enda ekki mikið um félagsskapinn í sveitinni. Ekki það að Ninni hafi verið slæmur félagsskapur langt því frá. Við brölluðum margt skemmtilegt saman. Svo var það einn vordaginn að gesti bar að garði í Söðulsholtið, þetta fannst okkur bræðrum ákaflega spennandi enda skemmtileg tilbreytni að fá gesti í heimsókn. Gestirnir í þetta skiptið voru frá Grundarfirði, einhvað hestafólk sem ég man ekki alveg hverjir voru fyrir utan einn sem kemur við sögu hér, mig minnir að Kjarri Jéra og Bjarni Eyjólfs hafi verið í þessu föruneyti en vegna gloppótts minnis og margra ára gæti mér skjátlast. En eitt man ég að Rögnvaldur gamli frá Grundarfirði var þarna með. Fyrir þá sem ekki vita er Rögnvaldur gamli mjög sérstakur gamall karl. Grundfirðingar vita nú allt um hann og hans sögu en fyrir þá sem vita það ekki þá er hann mjög stór maður, allavena fannst okkur bræðrum það enda ungir að árum og litlir miðað við aldur.
Þegar allir gestirnir eru komnir inn í andyrið vekur Rögnvaldur strax athygli okkar bræðra, ekki veit ég af hverju það var en það gæti hafa spilað inn í að karlinn virtist eitthvað hálf slappur. Þegar inn var komið fóru allir inn í eldhús, nema Rögnvaldur, hann laumar sér inn á klósett. Enginn gefur þessu neinn gaum nema við Ninni, enda þurfti Ninni að mig minnir að nota klósettið. Svo líður tíminn að því er virtist óra lengi og aldrei kemur karlinn út af kamrinum. Ninna var hætt að lítast á blikuna enda bara eitt klósett í kotinu. Svo líður og bíður og loksins, já ég segi loksins, heyrist einhver umgangur af klósettinu. Við Ninni öndum léttar enda á þessum tímapunkti farnir að hafa áhyggjur af því að karlinn væri hreinlega dauður og við fengjum aldrei að nota klósettið aftur. Sáum fram á að þurfa að létta á okkur út í skurði eða eitthvað álíka.
Loksins opnast hurðin og Ninni stekkur af stað í átt að klósettinu og mætir Rögnvaldi gamla í dyrunum, ég horfði svona á eftir honum og sá viðbrögðin þegar hann mætti Rögnvaldi, það er svolítið erfitt að lýsa þessu, en það var svona svipað og að Ninni hefði stungið hausnum upp í rassgatið á rotnandi hesti sem hefur legið í 6 vikur ofan í rotþró. Skelfingarsvipurinn á stráknum var rosalegur, hann hvítnaði allur upp og sneri við í snarhasti. Ekki liðu nema svona 4 sekúndur þangað til ég komst að því, ðe hard vei, af hverju viðbrögð Ninna voru svona allsvakaleg. Skítalyktin breiddist um húsið eins og eldur í sinu. Rögnvaldur sá greinilega viðbrögð okkar enda var engin leið fyrir okkur að leyna þessum ósköpum, gamli karlinn rölti bara fram hjá okkur eins og ekkert hefði í skorist á meðan við vorum þarna í dauðateygjunum að reyna að gaspra í súrefni. Við sáum okkur þann kostinn vænstan að flýja hreinlega út úr húsinu til að fá loft, jesús minn, verri lykt hef ég aldrei fundið um ævina.
Ekki hættum við okkur inn aftur fyrr en gestastóðið var farið af bænum og þá ennþá vottaði fyrir helvítis lyktinni.

Ástæðan fyrir þessari sögu er bara sú að mér datt þetta í hug í Félagsfræði tíma í morgun. Vissulega eru einhverjar ýkjur vegna misminnis en grunnurinn er nokkurnveginn réttur.

Svona eru bernskuminningarnar skrítnar, poppa bara upp þegar síst varir, það lá við að ég hefði fengið hláturskast í tíma en sem betur fer náði ég að halda niður í mér hlátrinum og forðaði mér frá því að hafa mig að fífli, finnst betra að gera það hér á blogginu hehehe.

Jæja, nóg í bili.

Þangað til næst……

Vonbrigði dagsins eru: Manchester United

Vonbrigði dagsins eru: Manchester United með Wesaling Clown og Deddlí Díegó fremsta í flokki

Jæja, enski fór ekki eins og maður hefði nú viljað í kvöld. Asnenal komið með 5 stiga forystu í deildinni og hafa ekki tapað leik. Júnæted hefur tapað 5 leikjum og í 3 síðustu leikjum hefur liðið fengið á sig 8 mörk. Greinilegt að Ferdinand hefur skilið eftir stórt skarð sem Wes Brown er engan veginn að fylla. Eitthvað róttækt þarf að gera áður en Tomminn reitir síðustu hárlufsurnar að kollinum og fer í flokk með Dr Gunna og Sobba frænda hvað hárprýði varðar.

Járni mætti á svæðið með kók og snakk til að horfa á Chel$ki leikinn. Tommanum grunar nú að það hafi hlakkað í g-strengnum þegar Júnínjó kom Miðjubóró í 2-0 en hann hélt sig nú á mottunni, annað en Haraldur Bumba sem gerði Sigurði nokkrum Hermannsyni lífið leitt á pöbbnum þar sem að þeir horfðu á Júnæted leikinn. Aumingja Siddi því maður hefur nú oft lent í honum Haraldi þegar þessi gállinn er á honum. En svona er þetta bara og nú er bara að stoppa í vörnina fyrir Líds leikinn, spurning hvort að Alan Smiþþ og Mark Vídúka verði með sitthvora þrennuna hmmm.

Var í Íslenskuprófi í morgun, fékk 9 sem er ásættanlegt ehaggi.

Dúvadirídirídammdirídomm singing dúvadiridiridammdiridumm sjí lúks fæn sjí lúks gúd sjí lúks fæn end it rilí blúv mæ mænd jebeibíje

Þangað til næst…….

Skinka dagsins er: Ali Smá

Skinka dagsins er: Ali

Smá spurning, Hvað er eðlilegt að líði langur tími á milli þess að maður heyri í félögum sínum sem eiga heima í öðrum landshlutum???

Ástæðan fyrir að ég spyr að þessu er sú að einn góður kunningi minn frá Akureyri hringdi í mig á laugardaginn og við vorum svona að spjalla um daginn og veginn og svoleiðis, og þá segir hann svona upp úr þurru að hann sé nýorðinn pabbi, ég varð alveg gáttaður, var virkilega svona langt síðan ég heyrði í honum síðast?? Úff barasta meira en níu mánuðir og Tomminn alveg clueless. Ég óskaði honum náttúrulega til hamingju með þetta enda var hann hinn ánægðasti.

For The Love Of The Game

Þetta er ég á góðri stundu hehehe

Hvað er Ísdrottningin að gera???

Þangað til næst…..

Lag dagsins er: Glow með

Lag dagsins er: Glow með Alien Ant Farm

Jæja, vandræðasaga Tommans hélt áfram, Tölvan tók upp á því að slökkva á sér þegar henni bara datt það í hug, frekar pirrandi. Ég þurfti að punga út fimm þúsund og fimmhundruð krónum fyrir nýjum spennugjafa sem var 550 w. Það virðist hafa gengið upp því að hræið er ennþá gangandi.

Helgin fór bara í pirring út af tölvunni þannig að ekkert var farið út á lífið í þetta skiptið. Maður sat bara með andlitið ofan í tölvukassanum að grúska í þessu drasli.

Svo er það bara bolti í kvöld og ekkert bull.

Í síðustu viku mælti Tomminn sér mót við Gæa nokkurn Hadda og af því tilefni var smellt mynd af kallinum.

Þangað til næst……

Markmaður dagsins er: Árni Gautur

Markmaður dagsins er: Árni Gautur Arason fyrir snilldar frammistöðu í gær

Það eru bara góðir hlutir að gerast þessa dagana, Árni Gautur átti stóran þátt í endurkomu ársins ef ekki aldarinnar þegar hann hjálpaði Man Sjittí að vinna Tottenham 4-3 eftir að vera 3-0 undir í hálfleik og manni færri. Peter Schmeichel sagði í þætti Gary Liniker að þetta væri markvarsla ársins þegar Árni varði aukaspyrnu í slánna og tók svo skallann frá Poyet sem fylgdi í kjölfarið. Uuuuussss, þetta var rosalegt.

KoRn á leiðinni á klakann sem er algjör snilld og engin spurning um að maður láti sjá sig í höllinni þann 30 maí næstkomandi. Gústi Alex lillibró ætlar enn og aftur að standa í röðinni fyrir eldri bræður sína þannig að maður ætti vonandi að geta orðið sér út um nokkra stúkumiða. Við skulum allavena vona það.

Svo er líka tölvan öll að koma til. Það var skjákortið eins og mig hafði grunað sem var eitthvað að stríða mér og ég arkaði með það niður í BT, þar þurfti ekki að spyrja að liðlegheitunum því að ég labbaði inn með GF 4200 Ti 128mb en labbaði út með GF 5700 Ultra kort sem voru sko alls ekki slæm skipti. Nú þarf maður bara að græja sig upp aftur þegar maður er orðinn nettengdur aftur. Sjitt hvað hún er smúþþþ, je beibí je.

Jæja, best að fara að vinna í þessu rusli.

Þangað til næst……