Súkkulaði dagsins er: Pipp Júbb,

Súkkulaði dagsins er: Pipp

Júbb, slapp ómeiddur frá æfingaleiknum í gær, eins og allir í liðinu, úrslitin voru skömminni skárri heldur en síðast þar sem að við töpuðum aðeins 3-2 núna, við sjálfir skoruðum sjálfsmark á síðustu mínútunni og töpuðum leiknum, frekar fúlt. Ég spilaði á hægri kantinum í þetta skiptið sem er mín uppáhaldsstaða, var ágætur í fyrri hálfleik en í þeim síðari var maður alveg búinn á því, það voru nefninlega engvir skiptimenn þannig að maður var tilneyddur til að spila allan helvítis tímann, gat lítið hlaupið í síðari hálfleik sökum þreytu og hælsæris en þetta stendur allt til bóta.

Lítið um Tæger þessa dagana, djös vesen, þarf að fokking læra of mikið andskotinn hafi það. En þetta hlýtur að reddast einhvernveginn, var að fatta að það er ekkert allt of mikið eftir af skólanum og allt of mikið eftir að gera. Þarf virkilega að taka mig á í Stærðfræði og Spænsku. Nóg að gera semsagt.

Benni og Iðunn eru búin að koma sér fyrir á Miðvangi í Hafnarfirði og lítur þetta bærilega út hjá þeim.

Svo eru líka komnar örfáar myndir frá sigri Snæfells á Hamri í Hveragerði síðasta laugardag.

Svo er líka þessi óborganlega mynd af sambýlingnum hehehe

Þangað til næst…….

Lag dagsins er: Fade to

Lag dagsins er: Fade to black með Metallica

Úff, long tæm nó sí, Fótbolti er stóóóóóóóóór hættuleg íþrótt, ég var að fjárfesta í hnéhlíf eftir að ég slátraði hægra hnénu fyrir 2 vikum og er að fara keppa á morgun. Dabbi frændi er líka með brákað rifbein eftir sunnudags æfinguna eftir að hafa lent í nánum samskiptum við Sigga, og svo er hann Atli rifbeinsbrotinn eftir sama leik og ég slasaði hnéð mitt. Uuuusssss og svei.

Annars er maður bara að taka sig á í skólanum. Skróplaus vika í fyrsta skipti í langan tíma. Mætti kl 8 í gærmorgun og kl 8 í morgun, þvílík harka að annað eins hefur bara ekki sést. Hef notað eiðurnar í að læra, var í eðlisfræðiprófi í morgun, gekk bærilega held ég. Kemur allt í ljós.

Kaffibollar drukknir í dag 4+
1/2 líters kókflöskur 2
samloka 1
drykkjarjógúrt 1

Jæja, hef varla tíma í meira röfl, Tæger Vúdds á hug minn allan þessa dagana og maður heyrir hann kalla í mig. PS2 tölvan er í gangi og Tæger bíður.

Þangað til næst…….

Bókasafnsfræðingur dagsins er: Dr Guðjón

Bókasafnsfræðingur dagsins er: Dr Guðjón

Jæja, föstudagsslúðrið er aðeins seinna sökum annríkis í dag, var sko að hjálpa önkel Benz að flytja í nýja einbýlishúsið sitt í Hafnarfirði.

Heyrst hefur……

að hreint uppvask hafi sést einn daginn á Álfhólsveginum góða.

að Rúna Jobba sé byrjuð í nýju heilsu átaki sem ber heitið Rokkað í roki með loki

Tommi stoltur með nýja bílinn

að Tommi hafi fjárfest í nýjum eðalvagni og gert kostakaup við Ingvar Felguson ehf

Tommi og samlokan góða

að Tommi hafi gert kostakaup þegar hann borgaði kr 6789 fyrir ofursamloku í Nóatúni um síðustu helgi.

Ninni og nýi vagninn

að Ninni Dittu hafi farið að ráðum píparans, keypt sér húsbíl og flutt út frá mömmu sinni.

að óvænt sníkjudýr hafi gert sig heimakomið í Vesturbæjarlauginni og fólk er farið að kvarta yfir útlimamissi og 10-12 cm djúpum skrámum hér og þar.

að Soffi ætli að gefa skít í sjómennskuna og einbeyta sér að því að stofna hænsnabú austur í Mývatnssveit.

að Laugi Mjónasi hafi verið clueless síðasta þriðjudag.

að Dabbi Hlíðkvist ætli sér stóra hluti í framtíðinni og sé nú búinn að kaupa hlutabréf í söluturninum Kósý

Viggi stoltur með fyrstu kökuna

að Viggi Runna sé búinn að opna kökuverksmiðju við Smiðjustíginn.

að Júlli Jobba sé genginn í fleskimó módels

að Tóta hin frækna sé búin að fá vinnu við að prófa sígarettur hjá Marlboro fyrirtækinu fræga, aðspurð sagðist Tóta vera mjög sátt með þær 27 kr sem hún fær á tímann.

að Maggi Jobba sé nú farinn að huga að flutningum yfir í sinn nýja hjall og segist nú þegar vera búinn að fara tvær ferðir yfir í næsta garð með búslóð, ekki fékkst uppgefið hvað það var sem hann flutti í þessum tveim pappakössum.

að Mæju Bet hafi ofboðið svo þegar hún horfði á Passion og Christ að hún hafi stappað niður vinstri fætinum 4 sinnum

að Bjössi Kolla sé nú farinn að snúa sér að hinu kyninu eftir vægast sagt lítinn áhuga frá kvenþjóðinni. Aðspurður sagði hann að hann væri nú bara nýbyrjaður á þessu og bara búinn að hnoða í einn en sú reynsla hafi verið einstaklega fín og ætlaði hann að halda áfram á sömu braut.

að Bjössi Kolla sé kominn með nýjann undir arminn.

að leikarahópurinn í Grease 4 sé ekki að gera góða hluti

að kötturinn Beckham hafi fengið tilboð um að leika í sjampó auglýsingu fyrir Wella

að Maggi J hafi unnið verðlaunin þrengsti bolurinn á árshátíð farandvélvirkja sem haldin var á Hótel Húna í Stökulsfirði.

að Jónas Kafteinn hafi kjöldregið alla áhöfnina fyrir að hafa sett of mikinn sykur í kaffið.

Lognið og Palli pulsa voru gladlig að finna hvorn annan

að Lognið hafi um daginn fundið löngu týndann tvíburabróðir sinn í Danmörku, miklir fagnaðarfundir voru af þessu tilefni.

Þangað til næst…….

Tæger Vúdds snillingar dagsins eru:

Tæger Vúdds snillingar dagsins eru: Ég og Big Goj

Stórfrétt, Skjár 1 gerði sér lítið fyrir og keypti sjónvarpsréttin á enska boltanum á 220 millur, það má lesa um þetta hér

Spurning hvað Sýnar menn gera núna, Ætli þeir verði ekki að dusta rykið af ítalska boltanum eins og hann Dabbi frændi minn orðaði svo nett. Ekki lifa þeir bara á Champ líg og spænskum kvöldleikjum. Ég er nú samt hlynntur þessu ef Sýn fer að sýna ítalska aftur, mikill sjónarsviptir af honum, þó að margir segjast ekki nenna að horfa á 0-0 leiki en persónulega finnst mér ítalski boltinn mjög skemmtilegur og eru kvöldleikirnir á Ítalíu oft bráðfjörugir. Leikir eins og Lazio – Roma, Milan – Inter, Juventus – Torino. Allt gríðarlega skemmtilegir nágranna slagir, ég hef nú meira að segja gerst svo frægur að fara á völlinn á Ítalíu en ég og mæ broþer Ninns fórum á Milan – Inter í mars 1998. Þar urðum við vitni að bráðskemmtilegum leik þar sem að mínir menn í Inter rassskelltu Milan 3-0 þar sem að Diego Simeone og Ronaldo skoruðu mörkin. Í sömu ferð sáum við líka leik Parma og Juventus sem endaði 2-2, einnig þræl skemmtilegur leikur. Upp með ítalska og niður með auðvaldið.

Þangað til næst……..

Vonbrigði dagsins er: Man Ure

Vonbrigði dagsins er: Man Ure

Þannig fór um sjóferð þá……

Man Utd dottnir út úr Champions League og líklega síðasta vonin um einhverja dollu fokin út í veður og vind. Maður er ekki að sjá Arsenal tapa fyrir Man Utd í FA cup miðað við gengi liðanna upp á síðkastið.

Leikurinn við Porto var ömurlegur og United áttu alveg skilið að detta út, þeir þurfa að fara að gera eitthvað róttækt ef þeir ætla ekki að enda eins og Liverpool eða eitthvað þaðanafverra miðlungslið sem lepur dauðann úr skel í UEFA bikarnum og gera sig ánægða með fjórða sætið, andskotinn hafi það.

Rússa dómarinn sem dæmdi löglegt mark af Hemma okkar Hreiðars í landsleiknum á móti Þýskalandi lék sama leikinn aftur, reyndar var það línuvörðurinn en þeir dæmdu fullkomlega löglegt mark af United vegna rangstöðu sem sést greinilega að maðurinn er langt frá því að vera rangstæður. Línuvörðurinn verður líklega með hiksta út vikuna og er það bara gott á hann því ekki óska ég honum neins góðs, stupid russian prick.

Jæja, nenni ekki að pirra mig á þessu helvíti lengur, er farinn að sofa og vona að allt verði gott og blessað þegar ég vakna í fyrramálið.

Þangað til næst…….

Kennari dagsins er: Gustavsberg Vitiði

Kennari dagsins er: Gustavsberg

Vitiði hvað þetta er???

Jú, mikið rétt, þetta er stefnið á Titanic sem liggur nú í sinni þöglu votu gröf einhverstaðar í Atlantshafinu. Bráðum á að sýna Ghosts of the Abyss sem er einhver 3D mynd eftir James Cameroon sem fær víst mjög góða dóma á imdb. Þetta er heimildarmynd og ég held hún verði athyglisverð. Þetta er bara eitthvað sem vekur áhuga minn en svona er ég bara.

Ég hef það á tilfinningunni að þessi 59 mínútna langa heimildarmynd verði kúl, allavena fyrir þá sem hafa áhuga á slíku, je beibí je.

Annars er ég í eyðu í skólanum núna, hundfúlt, klukkutími og korter í næsta tíma þannig að maður verður bara að hangsa á netinu og bulla eitthvað aight.

Hvað er málið með þennan Bústaðaveg??? Í gær keyrði ég fram á 3 umferðarslys á þessum blessaða vegi. Fyrst um morguninn hafði flutningabíll og fólksbíll rekist saman í brekkunni þar sem maður fer af Kringlumýrarbraut yfir á Bústaðaveginn. Svo síðdegis keyri ég fram á annan árekstur á nákvæmlega sömu gatnamótum, tók nokkrar myndir af því sem koma seinna. Svo klst síðar þegar ég var á leiðinni heim þá er annar árekstur á næstu ljósum, nær Perlunni. WTF er kominn einhver vorfiðringur í bílstjóra bæjarins eða?? Spurning um að fara aðeins varlega í traffikinni aight. Annars ætti ég svosem ekkert að vera að messa eitthvað um öryggi í umferðinni þar sem að maður hefur nú nokkrar hraðasektir á samviskunni og radarvarinn minn góði hefur nú oftar en einusinni og oftar en tvisvar komið manni til bjargar hrmpf. En sam fóks, dræv seif end bí alört in da traffikó ok.

Þangað til næst……

Uppvaskari dagsins er: Rúna Jobba

Uppvaskari dagsins er: Rúna Jobba

El Ninnio mætti í borg óttans í gær og aumkvaði sér yfir eldri bróður sínum sem á ekki fyrir bót á rassinn og bauð mér á KFC og svo á School of Rock í bíó. Helvíti fínt, tókum smá rölt í kringlunni þar sem að Ninna tókst á óskiljanlegan hátt að troða sér inní Snoopy bíl sem ætlaður er fyrir krakka sem ná ekki yfir 105 cm, það má gata þess að Ninni er vel yfir 180 cm.

Verð svo að koma með myndir af ofursamlokunni sem Big Goj bjó til fyrir mig um daginn, uuuussss þvílíkt lostæti andskotinn hafi það marr.

Jæja, best að fara að æfa sig í Tæger Vúdds leiknum svo að maður hafi eitthvað í Big Goj því kallinn er búinn að liggja í þessum snilldarleik alla helgina og er kominn með rauðar setubólur á rassgatið hefur hann tjáð mér.

Þangað til næst……..

Mynd dagsins er: Passion Of

Mynd dagsins er: Passion Of Christ

Andskotinn sjálfur, það var rétt í þessu verið að draga í undanúrslit ensku bikarkeppninnar og að sjálfsögðu drógust Arsenal á móti Man Utd, maður var nú að vonast til að þessi lið myndu mætast í úrslitunum en í staðinn fáum við úrslitaleikinn aðeins fyrr, frábært. Liðið sem vinnur þennan leik mætir svo fyrstudeildar liði í úrslitaleiknum sjálfum, FRÁBÆRT eða þannig.

Þangað til næst…..