Leikur dagsins er: Tiger Woods

Leikur dagsins er: Tiger Woods leikurinn sem Baldur lánaði mér

Jæja gott fólk, nú hef ég ákveðið að koma með smá slúður af því að það er nú einusinni föstudagur aight.

Heyrst hefur……..

að Tomminn hafi fundið ástina á ný og sé nú einstaklega hamingjusamur í sambúð með sinni heittelskuðu

að Tomminn hafi nýverið skrifað undir 6 ára samning við Man Utd því Ferguson vildi fá arftaka Davids Beckham á hægri kantinn. Ferguson lét síðar hafa eftir sér að þetta væru hans stærstu mistök og líklega þurfi hann nú að segja af sér.

að Haraldur Horfagri hafi verið gripinn í landhelgi við að selja dvergum fullorðins klám. Þetta er með öllu alveg bannað skv 14 grein hegningarlaga og fékk Haraldur skamm fyrir frá löggunni sem gerði allt klámið upptækt.

að matseðillinn á Grillhúsinu innihaldi nú gorkúlusteik með ansjósum og lauk

að Kalli Barni ædol stjarna hafi sést í fylgd vafasamra náunga í Færeyjum. Aðspurður sagðist Kalli, óskabarn þjóðarinnar vera að taka löngu tímabært frí frá frægðinni.

að Micran hans Ninna Dittu hafi þurft á smurþjónustu að halda í síðustu viku.

Sössi að störfum

að Sigursteinn Hrólfsson aka Sössi bumba hafi loksins látið gamlan draum rætast. Hann fór nefninlega í víking til englands til að vera atvinnumaður í knattspyrnu. Sössi fékk hlutverk sem Hassi hæna hjá Tottenham Hotspurs og stendur sig að eigin sögn gríðarlega vel

að Big Goj sé farinn að hanna kort fyrir landmælingar í frítíma sínum.

að Gummi Ammoníak og Soffi Naglasúpa séu ekki bara góðir vinir og klefafélagar heldur leggi þeir líka gríðarmikla vinnu í að rækta samband sitt á æðra sviðinu eins og þeir félagar vilja orða það svona nett.

að Tomminn hafi verið ráðinn sem ærlegur ráðgjafi Sven Goran Erikson og segist Tomminn ætla að taka enska knattspyrnuheiminn með trompi.

að Rúna Jobba hafi misst saur við að hitta goðið sitt, David Beckham. Hún varð frekar svekkt þegar henni var tjáð að þetta væri einungis vaxmynd af kappanum og hefur Rúna nú gert 3 ára samning við Pampers fyrirtækið.

Tommi og Kylie á meðan allt lék í lyndi.

að Kylie Minouque hafi sparkað Tommanum þegar hún frétti að Tomminn væri kominn með nýja undir arminn (sjá að ofan) og hóti nú að fara í mál og heimtar helminginn af jarðneskum eigum Tommans. Aðspurður sagði Tomminn að hún mætti alveg fá neðri helminginn af ameríska rúminu sínu og 4 sokkapor, annað ætti hún ekki skilið.

að Járni og spúsan hafi haldið upp á 17 ára hjúskaparafmælið sitt með því að fá sér ís.

að Ninni Dittu hafi verið hengdur út til þerris eftir að hann hafi verið “að sulla” niðrí fjöru.

Bræðurnir fyrir utan nýju íbúðina

að Ninni og Tommi hafi fjárfest í nýrri 5 herbergja íbúð í Grafarholtinu.

að Ninni Dittu hafi greinst með njálg um daginn.

að Blobbi Jobba sé nú búinn að stofna gengi í Grundarfirði. Gengið gengur undir nafninu Bjórkollarnir og svífast einskis í að ná yfirráðum á Kaffi 59

Hrotti með fyrsta viðskiptavininn

og að lokum að Hrotti Pálsson hafi stofnað verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í bleijuskiptingum jafnt sem fyrir ungabörn og gamalt fólk.

Þetta var slúður dagsins og vona ég að þið njótið vel. Ég vil aftur benda á að þeim sem hyggja á málsók á hendur Ruglukollinum er bent á að tala við Þórólf Indriðason Vaxtaréttarlögmanns í síma 894-KILL.

Þangað til næst……

Hetja dagsins er: Ekki ég

Hetja dagsins er: Ekki ég

Var að koma af fyrsta leik mínum með FC Fist og ekki gekk okkur vel, töpuðum 6-1 fyrir bikarmeisturum síðasta árs, FC Hjörleifi. Þeir gjörsamlega yfirspiluðu okkur í þetta skiptið og rúlluðu yfir okkur. Ég var látinn spila striker sem er ekki mín uppáhaldsstaða því ég vill helst vera á hægri kantinum. Fékk 2 hálffæri en því miður náði ég ekki að setjann í þetta skiptið. Gengur bara betur næst. Dabbi Frændi var að spila í markinu og ekki er nú hægt að kenna honum um þessi 6 mörk því liðið var engan veginn að spila vel. En svona er þetta bara og það gengur bara betur næst…. Vonandi.

Ég lenti í samstuði við markmanninn hjá þeim og fékk leiðinda högg á hnéð, kælispreyið var brúkað í gríð og erg og kallinn fór eldsprækur inná aftur, spurning hvernið þetta verður á morgun, gúlp. Efast einhvernveginn um að maður geti mætt í bolta á sunnudaginn en maður sér til.

Ég spilaði í treyju nr 20 ala Sólarskerið okkar, fínt númer.

Hérna er svo Big Goj í essinu sínu hehehe

Þangað til næst…….

Setning dagsins er: Málmur og

Setning dagsins er: Málmur og gler uppí rassinum á þér.

Var að horfa á slæma mynd, Deathwatch, mæli ekki með henni heldur tommustokk bwahahahaha, slæmur þessi, well fokk it, ég er með andlega munnræpu. Best að fá sér kóksopa….

aaaahhhh helvíti gott kók, eins og þeir segja nú í Ameríkunni: Kókið er ekki sopið þó búið sé að opna dósina.

KoRn miðarnir komnir í hús hjá mér og Big Goj, því miður ekki í stúku eins og ég hafði vonað en svona er þetta, jú kent vinn em ol.

Kominn með uppþvottatuskusleikju inn í íbúðina, hún gerir ekkert gagn ennþá, reikna með að losa mig við hana fljótlega.

Opnir dagar eru að byrja í Iðnskólanum. Veit ekki hvað maður á að gera af sér í tilefni þeirra. Reikna með að fara í fyrramálið og horfa á hina dönsku Bebettes gæstebud þar sem að ég þarf fljótlega að gera ritgerð uppúr þessari bók. Svo eftir hádegi er kynnisferð upp í Tækniháskóla sem ég hef hug á að skella mér í. Sjáum til hvernig þetta verður.

Verð að hryggja Múra með því að maður kemst ekki á leikinn á laugardaginn en þá eigast við Valur B og UMFG. Múri er búinn að lofa 40+ stigum og svo hefur heyrst að Blobbi Jobba sé búinn að taka fram skóna að nýju og aldrei að vita nema Hemmi Geir nái heilum 5 sekúndum í þetta skiptið.

svona verð ég á svipinn þegar ég sé þetta:

hehehe Big Goj á mikið hrós skilið fyrir að halda mér svona síkátum alla daga enda óvenju fyndinn og skemmtilegur fýr.

Þangað til næst…….

Lúserar dagsins er: Inter Jæja,

Lúserar dagsins er: Inter

Jæja, helgin liðin enn á ný með blóm í haga. Fór í eitthvað bévítans staffapartý á laugardaginn. Hundleiðinlegt, allir fullir, nema ég að sjálfsögðu. Fínn matur og allt svoleiðis en mér hundleiddist samt. Kom mér heim við fyrsta tækifæri. Tók slatta af myndum sem eru komnar inn á myndasíðuna.

Fór í bolta í gær, hefði betur sleppt því, löppin á mér er engan vegin orðin nógu góð og því mun ég ekki skella mér í bolta í kvöld. Var samt frekar pirraður í boltanum í gær og vil hér með biðja einn ákveðinn einstakling afsökunar, vona að ég hafi nú ekki slasað hann alvarlega, ein fleyg setning kemur nú upp í huga minn sem stórvinur minn Vinnie Jones lét nú einhverntímann hafa eftir sér við svipaðar aðstæður, “I went for the ball”.

Snæfell deildarmeistarar í fyrsta sinn. Snilld og aftur snilld og óskum við Big Goj strákunum á nemanum sem og öðrum Snæfells aðdáendum innilega til hamingju með þennan stórgóða árangur.

Mynd dagsins:

Þangað til næst……