Jæja fjósaliðið mitt, þá er nú runninn upp fagur og fallegur flöskudagur og því ekki seinna vænna en að koma með ferskt slúður úr lífi smáborgarans.
Svo vil ég líka benda á að Júróvisjón er á morgun og því ekki seinna vænna en að kjósa í könnuninni í hvaða sæti Júró Jónsi lendir í, en hann verður hluti af slúðrinu í tilefni dagsins.
Heyrst hefur…..
að Tommi hafi tekið Ninna Dittu í einkakennslu í tölvunotkun og að sögn gangi það gríðarlega vel. Ninni kann nú þegar að opna Internet Explorer og fara inn á thehun.net, hann segist ekki þurfa að læra meira en þrjóskur Tomminn vill nú líka kenna honum á msn.
Ninni var sáttur með að komast inná http://www.spankmegood.com
að Soffi hafi á dögunum klikkast ærlega þegar hann hugðist taka flug til Vestmannaeyja. Soffi fékk að eigin sögn heiftarlegt einkenni af geðklofaflughræðslu og reyndi ólmur að naga sig í gegnum gólfið á vélinni.
Þessi mynd var tekin þegar Soffi var orðinn örmagna af þreytu eftir að hafa nagað sig ofan í farangursrýmið
að Soffi hafi seinna borað í nefið af mikilli list.
að Soffi beri heldur enga virðingu fyrir hinum eldri.
Einn gamlinginn fær hér fyrir ferðina
að Rutlan hafi farið á stefnumót með Gísla Marteini og drepleiðst allan tímann.
Eins og sést hérna var Rutlunni ekki skemmt
að Rutlan hafi seinna um kvöldið farið á fyllerí og föndrað sér forláta húfu úr gamalli jólaseríu.
Rutlan fór á mikið flipp eins og sést hér
að Soffi og Signý hafi kynnt sér ástaratlot simpansa og iðki þau af mikilli list.
Þetta er simpanskur blaut koss
að Tryggvi Hadda hyggi á mikinn frama í píkusleikingum og sé nú í æfingabúðum hjá Ron Jeremy.
að Hönd dauðans sé snúin aftur, reyndar aðeins eldri og krumpaðri en áður og því telst ekki mikil hætta af henni.
Höndin var lúin eftir að hafa reynt að murka líftóruna úr litlum kettling. Kettlingur slapp með skrámur
að Rutlan hafi á dögunum höstlað sér eldri mann, Maðurinn kom rosalega kunnulega fyrir sjónir en ég kem honum bara ekki fyrir mig… Þeir sem gætu haft upplýsingar um þennan mann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Norðupólnum.
að Jónsi sé ekki við eina fjölina felldur í geitarmálum
Jónsi var sveittur eftir að þessi hafði keyrt hann út
að Rósa og vinkona sem vildi ekki láta nafn síns getið séu búnar að stofna fyrirtækið mömmukoss ehf. Þær eru með heimsendingu og opið allan sólarhringinn.
Ljósmyndari keypti einn tvöfaldann og sá ekki eftir því
að Rósa og co hafi fengið harða samkeppni og að samkeppnisaðilarnir séu með mun betri þjónustu, þær heita blautir mömmukossar ehf.
Ljósmyndari var 16 mínútur að þurrka slefið af kinninni á sér
að Blobbi og Tommi hafi á dögunum kynnt til sögunnar nýja íþróttagrein sem ber nafnið flísabolti. Æfa drengirnir nú af miklu kappi fyrir fyrsta Íslandsmeistaramótið í Flísabolta sem hefst nú um miðjann júní.
Drengirnir við æfingar í Smáralindinni, þeir brutu aðeins 4 glugga og 5 ljósakrónur sem verðu að teljast vel sloppið
að Laugi Jónasar hafi tekið inn einhverja ólyfjan og snúi nú öfugt. Þetta er að hans sögn frekar óþægilegt þar sem að hann kemst ekki út úr húsi nema að vera í bandi.
Laugi var óvenju hress miðað við aðstæður
að Big Goj aka maðurinn með þúsund andlitin hafi farið í andlitslyftingu og sé nokkuð sáttur með árangurinn eins og sést hér. Augabrýrnar lyftust um 12 cm.
Eins og sést hér þá náðist gríðarlegur árangur með þessari litlu 12 tíma aðgerð
að Viggi og Elsa hafi loksins fattað af hverju rassakinnarnar duttu af Hafnfirðingnum með skrúfjárnið.
Bjánarnir hlógu samfleytt í 4 klst þegar þau föttuðu þetta loksins
að Maggi Jobba hafi loksins unnið þann eftirsótta titil “sterkasti maður sólvalla” en Maggi hafði árangurslaust keppt í þessu síðan hann var sjálfur á Sólvöllum sem barn.
Maggi hnykklar vöðvana montinn
að Hrotti hinn mikli hafi downlódað yfir sig og liggi nú þungt haldinn á bráðamóttöku Landspítalans
Hrotti rétt fyrir áfallið en hérna er hann að stæra sig af því að vera að ná í áttaþúsundasta terabætið sitt
að Gæi Hadda sé farinn að selja Hörbalæf í frístundum.
Gæi er gríðarlega ánægður með árangurinn og hyggst halda áfram að selja Hörbalæf grimmt
að Rúna Jobba hafi eitthvað misskilið leirbaðs hugtakið.
Rúna var ósátt með að fá engan árangur af leirbaðinu
að rakaðir karlmannsleggir séu að komast í tísku.
Tomminn lætur ekki þessa tískubylgju fram hjá sér fara
að Sleggjan sjálf hafi villst af leið þegar hún ætlaði að rölta niður í miðbæ Parísar. Hún komst nú samt til byggða aftur nokkuð hrakin.
Sleggjan sló þessu bara upp í grín og leyfði ljósmyndara að smella af einni mynd
að Rúna hafi skellt sér í brjóstastækkun en læknarnir hafi aðeins misst sig í geðveikinni.
Rúna er komin með heiftarlega bakverki af þessu
Jæja, er þetta ekki orðið ágætt í bili, vil samt benda fólki á að vera duglegri að taka myndir svo ég geti verið duglegri að stela myndum aight.
Þangað til næst…….
Takk maður! Veit að það er alltaf hægt að treysta á þig….