Ó MÆ GOD

Fórum í le Blú Lagún í kvöld sem væri nú ekki frásögum færandi nema að þegar ég kom heim þá fer maður svona að vafra um netið og soliz gút sjitt og rekst þá á ÞESSA FRÉTT þar sem segir frá því að ungur drengur hafi bara drukknað nokkrum klukkustundum áður. Ekki var það að merkja í bláa lóninu að nokkuð hafi verið að þarna því allt gekk sinn vanagang að manni sýndist. En hei hell nó marr uuussss. Enda fékk maður svona vægt sjokk þegar maður las þessa frétt. Frekar krípí sjitt.

Þangað til næst…..

Fríkí frædei

Wazzup, bloggið búið að liggja niðri í gær en auðvitað lagar soffezka allt svoleiðis dótarí. Eníveis þá er föstudagur eins og flestir vita þannig að þið vitið hvað það þýðir….

Heyrst hefur….

að Dabbi Hlíðkvist sé ávallt reiðubúinn að borga físum einn þússara á kjaft til að hanga með sér


Dabbi segist gera þetta til að viðhalda pimp reppinu sem hann hefur áunnið sér

að Viggi Runna noti nýstárlegar aðferðir við að þvo á sér eyrun.


Maggi er hér að klára hægra eyrað á Vigga

að Ninni Dittu hafi fundið ástina á ný sé hamingjusamari en nokkru sinni fyrr


Hér má sjá í baksvipinn á Ninna þar sem hann ber nýju dömuna á háhest

að listamaðurinn Maggi Jobba hafi mótað fullkomna eftirmynd af hinu fræga listaverki “hugsuðurinn” á Akureyri á dögunum.


Maggi er hér að leggja lokahönd á verkið

að Tudda Jónasar þyki hundasúrur ekki svo góðar á bragðið.


Tudda var hér búin að riðja í sig 8 hundasúrum í einu

að Viggi hafi brostið í grát þegar hann uppgvötvaði að Tomma hjól var kraftmeira en hans hjól.


Tommi er hér nýbúinn að segja Vigga frá hestaflamuninum

að Rúnu Jobba dreymi um að fá SingStar í PS2 í jólagjöf.


Rúna er alltaf að æfa sig og hér tekur hún Sjíbabbalúla sjís mæ beibí

að Viggi Runna sé oftast með eitthvað fast í tönnunum.


Eins og sjá má hérna þá er þetta verulega slæmt

að Ellen E og Rúna J hafi ákveðið að koma út úr skápnum í tilefni af Gei Præd dögunum.


Þær stöllur eru ansi nánar

að Viggi hafi fengið blístrandi bóner við að þukla á sér.


Það þarf ekki mikið til

að Viggi og Tommi bregði oft á leik saman


Ekki veit ég hvað er í gangi hérna

að einhver aðskotahlutur sé að vaxa út úr hálsinum á Magga. Aðspurður sagði Maggi að þetta hefði byrjað sem lítil bóla en á endanum orðið þessi viðbjóður sem sést hérna á myndinni.


Maggi ætlar að láta fjarlægja “bóluna” við firsta tækifæri

að Sumir einstaklingar þurfa að íhuga sinn gang hvað varðar drykkjuskap.


Þessi festi tunguna ofan í flöskunni þegar hann reyndi að sleikja úr botninum

Jæja, finn ekki fleiri myndir að sinni. Njótið vel.

Þangað til næst……

Helgin

Hér kemur Helgin í grófum dráttum…

Föstudagurinn:

Fékk að fara fyrr úr vinnunni því Viggi var orðinn svo stressaður í Grundarfirði út af slæmri veðurspá. Hittumst í Borgarnesi þar sem Viggi var búinn að bíða eftir undirrituðum í 1 klst. Pínu hvasst á leiðinni en samt allt í góðu. Þaðan lá leið okkar í Bauluna til Kibba og Sigrúnar þar sem við létum elda fyrir okku kótilettur, bestu letturnar í sveitinni og þótt víðar væri leitað. Stoppuðum þar í dágóða stund og fórum svo í Staðarskála, Blönduós, Varmahlíð og svo loksins Akureyri.
Þegar þangað var komið var farið á Greifann og fengið sér að éta með Magga og Þuru sem í þann mund fékk viðurnefnið Tuddi, veit ekki af hverju.
Um kvöldið var kíkt aðeins á tjaldsvæðið og svo smá í bæinn.

Laugardagurinn:

Þegar við vöknuðum á laugardeginum var haldið á Bautann þar sem við fengum okkur í gogginn. Svo fórum við í sund með Soffa og Signý og svo fórum við Viggalingurinn á rúntinn. Fórum upp í Kjarnaskóg og spiluðum fótbolta í mótorhjólagöllunum í 20 stiga hita, frekar heitt sko. Svo rúntuðum við aðeins og svo var farið heim til Tuddans og hinir fengu sér í glas. Svo fóru hinir í Sjallann á Skítmó og Í Svörtum Sokkum en gáfumaðurinn ég seldi minn miða og fór bara á rúntinn með Soffa mínum. Enda pikkuðum við Vigga upp af götunni nær dauða en lífi þar sem hann hafði svitnað hverjum einasta dropa úr líkamanum inní Sjallanum. Skutluðum kallgreyinu bara heim og fórum svo fljótlega í háttinn sjálfir.

Sunnudagurinn:

Vöknuðum og fórum á Greifann, again, og fengum okkur að éta. Svo var ákveðið að skella sér til Húsavíkur í heimsókn til ömmu og afa þeirra Rúnu og Magga. Ég og Viggi fórum að sjálfsögðu á hjólunum austur eftir og vorum frekar snöggir á því. Lentum í grillveislu a la Bárður Rabba og átum yfir okkur. Fórum svo aftur á Akureyri og vorum sneggri. Tomminn fékk viðurnefnið Hell Boy og Quasimodo (spyrjið Vigga). Svo fórum við á djammið á Kaffi Akureyri í góðum gír og svo fórum við Viggi bara snemma í háttinn (ekki saman sko).
Hitti fullt af skemmtilegu fólki og þetta var í heildina bara fínasta helgi. Firsta edrú verslunarmannahelgin mín og þótt ótrúlegt megi virðast að þá er maður bráðum búinn að vera edrú í heilt ár. 19 ágúst semsagt.

Fínasta helgi.

Þangað til næst……

Jæja

Þá er þessi helgi liðin með tilheyrandi umferðarveseni og því um líkt. Helgin var góð þar sem að veðrið spilaði stóran hluta af því. Búinn að henda inn öllum myndunum sem teknar voru. Blogga meira seinna aight.

Þangað til næst…..