Piff

Þvílíkur mánudagur gott fólk að það hálfa væri mikið meira en nóg. Búinn að vera fokking veikur alla helvítis helgina og þar af leiðandi lítið hægt að brasa.
Horfði reyndar á allsvakalega fjallgöngumynd sem heitir Touching The Void. Uss, það sem líkaminn getur þolað marr uuuussss.

Star Wars að koma út á DVD sem er að meðaltali svalt. Must buy fyrir Tommus.

Þeir sem lesa þetta og eiga eftir að borga boltann þá er um að gera að redda því strax. Gæi, þetta á bara við um þig hehehehe

Þangað til næst…..

Því miður

Er kallinn veikur núna og þess vegna er ekkert slúður, enda er þetta farið að verða svona meira…. annan hvern föstudag. Það er nú bara ágætt ehaggi???

Ég ætla að láta mér batna áður en eitthvað meira verður aðhafst.

Þangað til næst…..

Bæringsstofa!

Ég er búinn að vera að renna í gegnum myndirnar frá Bæringsstofu og þvílíka snilldin sem þetta er. Þarna má í rauninni sjá sögu Grundarfjarðar í myndum. Og þarna sér maður líka hversu ofboðslega góður ljósmyndari hann Bæring Heitinn var, maður bara gerði sér ekki grein fyrir þessu þegar maður var gutti. Manni fannst bara fyndið hvað kallinn sem var alltaf með myndavélina um hálsinn var spaugilegur. En það sem þessi maður skildi eftir sig er ómetanlegt finnst mér.

Mæli með að allir kíkji á þessar myndir —HÉR— og skoði úr sér augun.

Hér koma svo nokkrar merkilegar myndir sem ég fann hehehe. Smellið bara á þær til að sjá stærri útgáfur.


Hérna má sjá nokkra Grundara í eighties fýlingnum og þar á meðal Benna frænda, Össa og Ragga Alfreðssyni og svo Gumma Mundu ofl hehehehe


Hérna má sjá Ísdrottninguna sjálfa ásamt foreldrum sínum á árum áður. Svo má sjá Jóa Ödda þarna í bakgrunninum


Hérna má svo sjá Vigga Runna fyrir c.a. 10+ árum í góðum gír. Gott ef það glittir ekki í Helgu P þarna líka svei mér þá


Hér er svo önnur mynd af Vigga fyrir c.a. 20+ árum ásamt Dodda Ragnheiðar og að mér sýnist Gumma Þorra


Og ef mér skjátlast ekki að þá er þetta Rutlan hérna að taka sporið


Hérna er svo hann Guðmundur Hinrik Guðmundsson eða Gvendur á Skerðingsstöðum heitinn en Ninni bróðir er skýrður í höfuðið á þessum heiðursmanni


Þetta er svo uppáhaldsmyndin mín en hérna má sjá Pabba minn alveg hellaðann áðí ásamt fleirum kunnum andlitum hehehe

Mæli með að allir kíkir á Bæringstofu og skoði fleiri skemmtilegar myndir.

Þangað til næst….

Tommi snillingur

Það má geta þess að ég er óhræddur við að segja aulasögur af sjálfum mér sem ég get alveg hlegið að sjálfur. Yfirleitt læt ég allt flakka þó að það komi ekkert vel út fyrir mig, það var nefninlega eitt mjög svo aulalegt atvik sem henti mig í gærkvöldi.

Þannig var að ég og Viggi vorum búnir að vera að hjóla allt kvöldið og svo þegar ég kem heim þá vind ég mér úr hjólagallanum og í forláta Inter stuttbuxur sem ég fann inní skáp. Leggst uppí sófa með lappann hennar Rúnu og horfi á leik Charlton vs Southampton og spila CM með öðru auganu. Restin af kvöldinu leið svona og kallinn var sáttur. Svo var kominn tími fyrir Tommann að halla sér og kallinn gerist svo gáfaður að stinga tiltölulega nýja Nokia 6100 símanum mínum ofan í buxnastrenginn á stuttbuxunum og vind mér svo bara inn á klósett til að gera mínar hefðbundnu kvöldþarfir. Bursta tennurnar og tek úr mér linsurnar. Fer svo fyrir framan klósettið svona eins og gengur og gerist þegar menn þurfa að míga, lyfti setunni upp og ríf svo slátrið út úr buxunum og geri mig klárann fyrir “bununa”. Þá heyri ég bara eitthvað dularfullt skvamp sem heyrist nú ekki vanalega nema þegar ég sný hinum endanum að kamrinum. Ég lít niður og sé þar glitta í…. jú jú nýja Nokia 6100 símann minn ofan í helvítis klósettinum. Það skipti bara engum togum um nema að Tomminn þrumar hendinni á sér ofan í skítaskálina og rífur símann upp aftur á u.þ.b. 7,4 sekúndubrotum. ANDSKOTINN. Ríf símann í sundur, gríp tiltækann hárblásara og byrja að þurrka helvítið af miklum móð, læt hann svo liggja á ofninum það sem eftir lifir nætur. Fer þungur á brún upp í rúm og á erfitt með að sofna út af þessum heimskupörum mínum. Sé fram á 20 þús kr útlát sem ég hef ekki efni á eins og er.

En viti menn, morguninn eftir prófar Tomminn að setja símann saman aftur og kveikja á honum þá er bara eins og ekkert hafi gerst. Ótrúlegt. En það er nú bara liðinn einn dagur síðan þetta gerðist og við eigum nú eftir að sjá þetta betur á næstu vikum. Reyndar eru einhverjir furðulegir blettir á skjánum en hú givs. Þetta hefði getað verið verra ehaggi???

Furðuleg tól þessir símar. T.d. á Jóhann Haukur síma sem lá ofan í vatni í nokkra klst en samt var hægt að þurrka hann og nota hmmmm, mjög dularfullt.

Þegar öllu er á botninn hvolft þá er barasta allt í lagi að henda símanum sínum ofan í klóakið.

Þangað til næst…..

Úff

Af hverju eru mánudagar bara ekki á þriðjudögum???

Annars byrjaði Sporthúsboltinn í gærkvöldi fyrir einhverja alvöru og þar mættu 9 manns í góðum gír. Gæi nokkur Hadda mætti ásamt Tryggva bróður sínum og fór Gæi mikinn. Tryggva karlanganum var eitthvað illt í bibbanum og gat ekki spilað þannig að 8 voru eftir. Ég og títtræddur Gæi vorum saman í liði og svoleiðis skíttöpuðum með stæl. Tuð var í algjöru lágmarki þannig að þetta lofar bara góðu.

Annars er bara allt gott. Fórum á völlinn að sjá KA tapa í gær frítt og alles. Það var ágætt.

Þangað til næst…..

New Toy mæ men

Keypti nýtt dót í dag. Mp3 spilara til að nota á hjólinu og viti menn. Þetta er snilld. Vera bara að hlusta á Kesí end ðe sönnsjæn bend á miklubrautinni í góðum gír. Úúúújjeee.

Annars fór ég með Soffa á djammið í gær. Fórum á Gaukinn á Jack Live kvöld Xins þar sem að Ensími tróð upp. Helvíti öflugir guttarnir í Ensími, það verður ekki annað sagt. Verst að þetta var pínu klúðurslegt þar sem að þeir voru alltaf að leyta að tuner og svo var bassinn að detta út annað slagið en fyrir utan það þá voru þeir helvíti þéttir á því.

Nenni ekki meir. Kíp itt ríl

Þangað til næst…..

Föstudagur hmmm

Jæja, fríkí frædei í dag. Það er nú meiri klósettsetuhelgin framundan. Fáir sem komu með uppástungur í kommentakerfið um hinn tilvonandi mótorhjólaklúbb.
En nóg um það, best að reyna að henda upp smá skúbbi sem mér hefur áskotnast í vikunni.

Heyrst hefur……

að Júlli Jobba hafi fengið sykursjokk og farið í blakkát í 45 klst.


Júlli var steinhissa þegar hann vaknaði heima hjá Leoncie

að Big Goj hafi orðið frekar foj á því þegar Tomminn bað hann um peninga.


Big Goj og Tomminn eru hér að ræða um lán á 150 kr

að Laugi Mjónasi hafi skellt sér á Demolition Derby á dögunum þar sem hann horfði sorgmæddur á VW Polo klessubílakeppni


Laugi er hér að sjá 97 árg af Polo verða að kleinu

að Íslenska landsliðið í Grashoppi hafi staðið sig afskaplega vel í heimsmeistaramóti lamaðra á dögunum.


Eiðum Smái bar af öðrum

að Signý Soffa hafi hannað vél sem framleiðir rafmagn til að knýja nýja laptoppinn sinn áfram.


Signý er hér að reyna að opna Oulook Express

að Maggi Jobba hafi heldur betur slegið góðann díl þegar hann keypti forláta Triumph hjól árg 64″ á 980 þús um daginn


Maggi er hér stoltur nýbúinn að skrifa undir afsalið

að Soffi magnifico hafi sagt Magga Jobba skrýtlu, sem verður að teljast athyglisvert í því ljósi að Soffi er afskaplega alvarlegur maður.


Magga var ekki mjög skemmt

að nýjasta séð og heyrt parið sé Karate Kid og Corky


Ástin blómstrar

að Sögustund með Tomma sé afar vinsælt hjá fólki þessa dagna. Kemur af því tilefni út DVD diskur með smellnum sögum fljótlega.


Big Goj hlustar hér af mikilli athygli á söguna um Randver grís

að Laugi Jónasar hafi á dögunum vaknað upp við vondann draum þegar hann fattaði að hann hafði ekki farið í klippingu í 5 mánuði.


Laugi var umsvifalaust rekinn úr hnakkaklúbbi íslands

að Steini Jobba sé orðinn forfallinn maltisti því eina sem drengurinn vill drekka er Malt.


Hérna er Steini að sporðrenna fjórtándu maltflöskunni í röð

að þilfarinu á Grundfirðing hafi verið breytt í dansgólf um síðustu helgi þar sem að margt var um manninn og mörg sporin tekin.


Hérna eru tveir af hásetunum á Grunda í feikna fjöri

að Kokkurinn á Grunda hafi á dögunum kokkað gamlann marbendil sem festist í skrúfunni hjá þeim


Hérna bullar og kraumar í öllu hjá Logninu

að nýjasta tíska í lífrænum höfuðfatnaði sé að slá í gegn


Þessi var stoltur með nýja krabbahattinn sinn

að Haraldur hárfagri og Siddi Súpa hafi á dögunum handsalað samning þess efnis að ef hvorugur þeirra væri giftur um fimmtugt þá ætli þeir að giftast hvor öðrum


Reyndar voru drengirnir vel við skál þegar samningarnir voru handsalaðir

Jæja, þetta er orðið gott í bili. Vill hrósa Logninu fyrir að fjárfesta í nýrri myndavél og fyrir að vera duglegur að taka myndir.
Haldið svo áfram að koma með uppástungur á nýja mótorhjólaklúbbinn.

Þangað til næst……

Jæja

Vikan hálfnuð. Allt í gúddí ennþá. Maður er nú samt hálf slappur eitthvað hérna megin á kantinum. Úúúújeeee. Gærkvöldið fór í upprifjun á CM3 sem var ekki leiðinlegt marr uuussss. Rúna var líka svo sæt að elda fyrir mig 5 gúllasbita og eitt hvítlauksbrauð.

Annars eru tunglararnir í Hunangstunglinu þakklátir Tommanum fyrir að benda þeim á mynd sem hún Rúna náði af ákveðinni hjólhestaspyrnu eins Tunglarans. Nokkuð nettur á því hann Gee enda fer kallinn hamförum í að lýsa þessu á heimasíðunni sinni. Nokkuð merkileg lesning þar.

Hér er svo þessi fræga mynd. Smellið á hana til að stækka:

Magnuso El Jobbo hyggur á bæjarferð í dag til að versla sér eitt stk mótorhjól og hana nú. Gott hjá honum, nú þarf hann bara að fara að drífa sig og taka prófið svo hann geti farið að hjóla með okkur Vigga, úúúújeeee. Alltaf gaman þegar það bætist í klíkuna. Það er spurning um að stofna bara mótorhjólagengi hmmm.

Hér með efni ég til samkeppni um nafn á nýjann mótorjólaklúbb sem mun verða starfræktur frá Grundarfirði. Allar ábendingar skulu skrifaðar undir nafni í commenta kerfið og það nafn sem mun verða valið hlýtur vegleg verðlaun.

Þangað til næst……

Jú wimps hú hef jett tú pei mí for ze fúsboll pei or spei jú moþþerfokkers aight.

Þeir taka þetta til sín sem eiga það. Þið hin…. æ lov jú still.

Þeir sem ekki náðu þessu geta bara átt sig ok

Þangað til næst……

Geisp

Mánudagsþreytan liggur eins og skuggi yfir vötnunum hérna hjá EJS. Tomminn situr þreyttur fyrir framan skjáinn og geispar þreytulega. Enda erfið helgi að baki.

Víkingur Ól gerði sér lítið fyrir og þrumaði sér bara upp í fyrstu deildina eins og að drekka vatn í gær, og talandi um vatn að þá rigndi eins og hellt væri úr fötu á meðan á leiknum stóð en áhorfendur létu sér fátt um finnast og hörkuðu þetta af sér. Enda var Rósa Smára með stærstu regnhlíf í heimi sem að ég, Kári og Heisi nýttum okkur til fullnustu. Takk Rósa mín hehehe. En Víkingur vann Leikni 2-0 þar sem að Hemmi Geir skoraði síðara mark Víkinga og 1 deildin staðreynd þar á bæ. Gott hjá þeim.

Það gekk ekki eins vel hjá Tommanum eins og lesa má um hér að neðan og ætla ég ekki að fara nánar út í þá sálma nema að aumingja Tomminn er að drepast í hnénu eins og er og rétt svo limpast áfram. Þetta hlýtur að lagast fyrir næsta fótbolta tíma.

Eitthvað er Fanney Dóra að tala um mæðraskoðanir og svoleiðis gút sjitt á blogginu sínu og er með þessu kannski bara að segja okkur fréttir ha? hmmm, ég krefst útskýringa sem fyrst.

Íslenska landsliðið….. Tjah best að segja sem minnst en ég er ósáttur við að borga 3500 kr fyrir svona KRRRRAAAAAPPPPPP. Eini sem stóð undir væntingum var Brynjar Björn, enda væntir maður þess að hann fái amk eitt gult spjald í hverjum leik og þarna fékk hann tvö hehehe.

Fór svo á djammið með Soffa mínum á laugardagskvöldið. Byrjaði reyndar í innflutningsteiti hjá Jóni Árna en svo var haldið á fund Soffans og byrjuðum við á Kaffibrennslunni þar sem að þreyttur Tomminn þambaði þrjá bolla af fjósakaffi og var svo tilbúinn í slaginn. Fyrst var það Gaukur á stöng, eitthvað Tekknó sjitt sem við vorum ekki að digga.
Svo var það Glaumbar, seim sjitt diffrent dei.
Næst kom svo Felix því okkur langaði svo að hitta hann Heisa litla. Hitti þar einnig Dabba edrúistawannabe sem er ekki edrúista wannabe fullan á kantinum. Þar mátti einni sjá Raggsterinn sem vinnur með mér hérna í EJS, Þóra Lind kom og sló mig í hnakkann og svo glitti þarna í Hilla BT jaxl á gólfinu.
Næst lá leið okkar á de Búmmkikker en okkur leist ekkert á blikuna þar þannig að við ákváðum að skella okkur á Viktor í staðinn, piff… skítapleis.
Svo kom að því að okkur langaði að kíkja á Jón Forseta, mesta gei bar íslands. Og viti menn, hann stóð alveg undir nafni. Fínt að kíkja þangað fyrir forvitnissakir og þeim til hróss þá fékk maður kóka kóla úr 2 lítra flösku en ekki úr krana eins og annarsstaðar. Gott hjá þeim hehehe.
Svo enduðum við Soffi þennan djammrúnt okkar á Palace því við fréttum af Sössa slummandi einhverja drottningu þarna. Þetta varð ég bara að sjá en þegar ég kom á Palace þá var Sössinn bara á bak og burt því miður.
Svo kíkti ég á Holtið þar sem hún Rúna mín var að vinna. Svo var það bara bælið.

Ég er búinn að setja inn fullt af myndum en þetta eru nú svona mestmegnis fótboltamyndir þannig að… whatever.

þangað til næst……