Uuuusssssss

Var að keppa áðan. Og að sjálfsögðu töpuðum við einu sinni enn. Okkur virðist alveg vera fyrirmunað að vinna helvítis leik. En svona til að gefa okkur pínu kredit þá var hann Bjarmi (Scholes) rauðhaus rekinn útaf fyrir ekki neitt í byrjun síðari hálfleiks. Þá vorum við 2-1 yfir og vorum búnir að vera miklu betri. Helvítis vesen. Þeir jöfnuðu fljótlega eftir þetta en við komumst svo í 3-2 einum færri en svo vorum við bara búnir á því. Helvítis prump. Tomminn fékk 3 góð færi til að setjann en í fyrsta færinu skaut ég yfir eftir óbeina aukaspyrnu, svo fékk ég góða fyrirgjöf frá Gísla en þurfti að teygja mig í blöðruna og skóflaði helvítinu rétt yfir. Og svo skallaði kallinn í stöngina. Fjandinn sjálfur. En svona er þetta nú einu sinni. Gengur bara betur næst.

Fór á djammið í gær. Ég og Soffi kíktum á Jón Forseta og viti menn, ég fer EKKI þangað aftur. Djííí, en ég get allavena sagst hafa komið þangað hehehe. Æm gonna teik jú tú ðe gei bar jeeeee.

Þangað til næst……

Lítið activity

Hér hefur lítið gerst síðustu daga. En það má rekja til þess að símastarfsmenn í Stykkishólmi eru vanhæfir en það er önnur saga.

Óska pabba mínum til hamingju með daginn en hann átti einmitt afmæli þann 2 september síðasliðinn.

Ég fór upp í Borgarfjörð í gærkvöldi á hjólinu í rigningarsudda en það var samt helvíti fínt. Ninni og Rúna komu svo á bíl en tilefnið var 50 ára brúðkaupsafmæli hjá ömmu minni og þetta var nú svona surprize partý því amma hafði ekki hugmynd um þetta. Það var svaka veisla, Ingi Reynis var sveittur allt kvöldið að sneiða niður lambalæri ofan í svangann lýðinn og mátti hafa sig allan við. Mikið var hlegið og bara þvílíkt gaman að þessu.

Ekkert slúður í gær sökum netleysis en við finnum eitthvað út úr því næsta föstudag ehaggi???

Svo eitt enn….. Sleggja, ég veit þú ert kominn heim og ég veit þú saknaðir mín rosalega mikið en viltu samt plís sleppa því að hringja 10 sinnum á nóttu í mig. Við eigum eftir að hittast einhverntímann við gott tækifæri.

Þangað til næst…..

Shrek mættur á svæðið

Jæja, þá er þetta orðið staðfest. Man Jú borguðu offjár fyrir vinningshafann í Shrek lookalike keppninni:

Gunnþór vinur minn er örugglega ekki sáttur núna. Allavena svaraði hann ekki smsinu sem ég sendi honum í gær á meðan allt var í gangi. Enda er Gunnþór einn mesti Everton aðdáandi sem fyrirfinnst á Íslandi. En svona er þetta bara. Rúní kominn til Júnæted og á vonandi eftir að gera einhverjar rósir þar.

Vil endilega hvetja fólk til að mæta á síðasta leik FC Fist í laugardalnum næsta sunnudag. Svo er líka gríðarlega mikilvægur leikur hjá Víking Ólafsvík á næsta sunnudag kl 2 gegn Leikni uppí Breiðholti. Hvet alla til að mæta þangað líka þar sem það er að duga eða drepast fyrir Hemma, Tryggva og félaga.

Annars er það bara písát mömmusleikjur

Þangað til næst….