Update á heilsu Tommans:
Tomminn er ennþá handleggsbrotinn punktur.
Tomminn vill samt koma fram þökkum til allra sem sýnt hafa samhug í verki og commentað hjá Tommanum.
Þar sem að það er frekar leiðinlegt og pirrandi að vélrita einhentur þá ætla ég nú að hafa þetta stutt í dag aight.
Kallinn mætti í vinnuna á mánudaginn. Hálf svona uppdópaður af parkódíni og soliz. Raggi sendi mig nú bara heim klst síðar sökum vosbúðar og slaks ástands á kallinum. Ég hef ekkert mætt síðan enda ennþá að drepast í fokking hendinni. Ég á að fara til læknis á föstudaginn þar sem statusinn verður tekinn á þessu sjitti.
Jæja, nú er maður orðinn nokk þreyttur, best að fara að spila CM sem eiginlega það eina sem maður gerir þessa dagana.
Handleggsbrotni maðurinn kveður að sinni.
Þangað til næst…..
Passaðu þig á að dúndra ekki hinni hendinni í eitthvað þegar illa gengur í tölvunni!
Djöfull ertu grófur marr hehehe