Siggalafó

Rigningarsuddafokkingmánudagshelvíti

Leiðinda veður, leiðinda dagur, leiðinda árstíð og leiðinda kjötsúpa

Fórum vestur ég og lufsan um helgina og tókum frk E.E með okkur. Það er nú eiginlega ævintýri útaf fyrir sig að ferðast með frk E.E og taka hana með sér á staði. Frk E.E er skemmtilegur ferðafélagi. T.d er frk E.E einstaklega hrædd við hunda þó að hún sé komin vel á þrítugsaldurinn. Ég og Rúna fórum heim til mömmu þar sem eru 2 litlir sætir dúllu hundar. Ég geng fyrstur inn um hurðina og á eftir fylgir Rúna og svo frk E.E. Hundarnir byrja að gelta á frk E.E og aumingja frk E.E fær þetta líka litla sjokk. Grípur þéttingsfast í Rúnu og felur sig á bak við hana og í leiðinni rekur hún hausinn í vegginn og fær kúlu. Svo er frk E.E alveg eins og kleina á meðan á heimsókninni stendur. Ég gat bara ekki hætt að hlæja að henni, þetta var allt of fyndið.

Set myndir inn við fyrsta tækifæri hehehe.

Þangað til næst……

T.G.I. Friday

Jæja pakk, hér er eitthvað til að maula með kexinu aight.

Heyrst hefur…..

að Heiðar Geirmundsson sé farinn að vinna á leikskóla í ungbarnadeildinni


Aðspurður sagðist Heisi vera að komast í samband við innri konuna í sér

að Viggi Runna hafi lent í 84 sæti í keppninni herra Grundarfjörður en fyrir ofan Vigga voru menn eins og Gísli Göngutúr, Trausti Daltón og Sverrir Karls.


Viggi var ósáttur með sjálfan sig og ákvað að fara í litun og plokkun í sárabætur

að félagarnir Iggi og Aggi hafi skráð sig í tvífarakeppni FM957


Félagarnir eru alveg sláandi líkir

að Soffi hafi beðið páfann um að lána sér fimmhundruðkall en hafi verið synjað


Soffi var mjög sár enda var hann sígarettulaus

að G.Alex hafi tekið allt allt of stórann skammt af President í nefið


G.Alex varð hverft við

að Rúna Jobba hafi farið í nefréttingaraðgerð og árangurinn hafi látið á sér standa


Rúna var ósátt við árangurinn

að sumir bræður eru meira skrítnari en aðrir


Furðulegir fírar

að Soffi hafi beðið rokkguðina um miskunn þegar hann var staðinn að því að hlusta á Britney Spears um daginn


Soffi var skömmustulegur

að Tommi sé ráðþrota gagnvart myndaleysi í þetta slúður….

Þangað til næst…..

Jæja

Fimmtudagur í dag og helgin nálgast óðfluga eins og óð fluga.

Mí end mæ hóm boj Steini fórum á Dómínós og Bónusvídjó í gærkvöldi til að eiga notalega kvöldstund saman sem væri nú ekki frásögum færandi nema að Tommanum langaði að breyta aðeins til og fá sér öðruvísi pizzu en vanalega. Sjávarréttapizza varð fyrir valinu. Pizza með rækjum, túnfiski, tómötum og einhverju sjitti sem leit ekkert allt of girnilega út. Maður hálf sá eftir þessu þegar við Steini löppuðum upp stigaganginn á Hringbrautinni… Hann með einhverja kjötveislu pizzu en ég með einhverja fokking fiskipizzu. Damn, en hún bragðaðist nú samt ágætlega blessunin en samt var nú Pizzan hans Steina betri, enda náði ég að hnupla mér einni sneið frá kallinum. Mun betri slæsa en hjá mér. Andskotinn hafi það. Næst verður það pepperoni veisla og ekkert kjaftæði.

Föstudagsslúður á morgun æ promis.

Þangað til næst…..

Vakkí vensdei

Fallegur en kaldur miðvikudagur í dag og maður var nú ekkert svo svekktur í morgun að vera að skríða inní kalda micru heldur en að vera að klöngrast oná mótorhjól hmmmm. Breytti út af hefðbundnum venjum í morgun þegar kallinn tók sig til og fékk sér morgunkorn, og ekki af verri gerðinni marr. Kelloggs Cocoa Pops marr hííííaaaa, fékk líka þetta splendid dót í pakkanum, að vísu þurfti ég að sturta helming innihaldsins á gólfið til að finna dótið en það er allt í lagi, ég mokaði því aftur í kassann með fægiskóflu svo Steini gæti fengið sér líka. En dótið er mitt. Fínasta dót sem maður setur vatnsdropa í og úr þessum vatnsdropa myndast vatnskúla sem maður getur látið rata um völdundarhús jeeeeeeessss. Úr kvikmyndinni Shark Tale… HELL JE

Note to self: Ekki fá sér aftur Cocoa Pops þar sem að líklegt sé að í innihaldi pakkans sé talsvert magn af tásu kuski.

Þeir sem skoða vefsíðuna geimur.is gætu hafa rekist á rass úr fókus í gær en eigandi þessa afturenda er enginn annar en Guðmundur Hinrik Gústavsson eða Ninni bróðir minn hehehehehe. Síðast þegar að var gáð voru um 60 manns búnir að bera gersemarnar augum. En þessi geimur.is síða er byggð upp eins og batman eða b2 eða whatever. Seim sjitt diffrent websæt aight.

En nóg af bulli í bili. Vil benda fólki á nokkrar síður sem eru að komast í gang eftir sumardvala. Síður eins og negranema, pallaleiguna og Dabba Hlíðkvist. Gaman af þeim aight. Svo er bara spurning hvort að Grundargata 6 fari nú ekki að komast í gagnið aftur.

Þangað til næst……

Með botninn í ofni

Hvað segist fóks? Þriðjudagur í dag og viti menn. Tommus vann í happdrætti háskólans úúúúújjjeeee, búinn að taka þátt í þessu síðan sautjánhundruð og súrkál og vann í fyrsta skipti um daginn. Og viti menn, ekki var vinningurinn af verri endanum…. heilar fjögurþúsund kr og afnot af skóburstanum í kolaportinu í 3 vikur. Ekki amalegt það hmmmm.

Um daginn fór Tomminn á krossarann sem G.Alex á. Þetta er sko alvöru sport marr. Þvílíkt gaman að þessu. Þvílík létt hjól og gaman að þeysast um fjöll og firnindi á þessu.


Þetta er magnað sport. Spurning um að fjárfesta bara í svona fyrst að þúsundkallarnir eru farnir að streyma til manns frá HHÍ hmmm hehehe.

Svo er Dabbi kallinn Hlíðkvist byrjaður að blogga og bulla aftur á nýrri heimasíðu og að sjálfsögðu fær hann þá nýjann link í tilefni dagsins. Til hamingju Dabbi minn.

Þangað til næst…..

Úff

Helgin já, hvað getur maður sagt? Ég og Rúna vorum með guttana hans onkel Benz og Iðunnar í pössun á meðan þau voru að chilla í London baby. Við fórum til þeirra á miðvikudagskvöldið en Iðunn flaug út á fimmtudeginum. Eftir það vorum við bara on our one :/ Shitturinn titturinn marr.
En þetta fór nú alltsaman vel og strákarnir voru ótrúlega góðir og duglegir. Fórum í Húsdýragarðinn og Keilu og soliz gút sjitt.
Tók slatta af myndum þar sem meðal annars má sjá undirritaðann skipta á kúkableiu fuss og svei.


Helgin var nú samt þegar öllu er á botninn hvolft mjög fín. Maður hefur nú bara gott af því að prófa þetta og þannig slá öllum fjölgunarhugleiðingum á frest hhehehehe.

Þangað til næst…..

Geisp

Þreyttur í dag, var að spila PS2 við Viktor Helga í gærkvöldi og þurfti að taka mig á til að láta ekki 6 ára gutta vúppa mig all illilega. Uuussss.

Payday today, spurning um að fá sér eitthvað gott í gogginn á eftir svona í tilefni dagsins. HELL JEEEE.

Ekkert slúður fyrr en næsta föstudag vegna hugmyndaþurrðar.

Þangað til næst…..