Púff

Alveg er þetta svakalegt þegar ungur og efnilegur maður sér enga lausn á vandamálum sínum en að taka sitt eigið líf. Kvöl hans hefur verið mikið meiri en maður hefur nokkurn tímann kynnst. Ég vona að honum líði betur þar sem hann er núna.

Reginn

Blessuð sé minning hans. Ég votta alla mína samúð.

Þangað til næst…..

Úff

Sjitt hvað minns er þreyttur núna. Var semsagt að koma úr mínum fyrsta ræktar tíma í Laugum og vá. Raggi gerði næstum því útaf við mig. Sérstaklega í þessari fokking píslargöngu sem er að labba yfir í heitu pottana. God damn sjitt kallt fyrir tásur.

En allt voða flott og fínt í Laugum. Fínt að fara frítt í ræktina múhahahahahaha.

Einhver fitubumbubollu áróður á mann hérna í commenta kerfinu. Veit ekki hvað mér á að finnast um það. Látum það bara liggja á milli hluta.

Jólageðveikin er byrjuð. Hver jólaslagarinn með Ladda og Bjögga Halldórs á útvarpsrásum landsins, nema á xinu að sjálfsögðu. Þvílíkt prumpumsump. Maður verður kominn úr öllum jólafíling þegar þessi blessuðu jól koma loksins. En eníveis þá er ég farinn að fóðra hamsturinn.

Þangað til næst……