Ég er þreyttur og skrítinn.
![]()
Þangað til næst…..
Ég er þreyttur og skrítinn.
![]()
Þangað til næst…..
Ha, kótilettur handa mér??? Neeeeei, sagði Sævaldur íbygginn á svip á meðan hann torgaði síðustu sneiðinni af skúffukökunni. Hannes var með bros á vör þegar hann klæddi sig í gúmmítútturnar. Sævaldur, ég er farinn að kaupa fisk í soðið. Sævaldur leit upp frá Fréttablaðinu með munnfylli af skúffuköku. Alltílagi homminn þinn, ekki gleyma að ná í sláturkeppina. Í þessum töluðu orðum hvarf Hannes á braut íklæddur gúmmítúttum og með hatt.
Þetta var sagan af Hannesi og Sævaldi sem saman reka bókabúð í 101 og finnst gaman að striplast.
Framhald væntanlegt.
Þangað til næst…….
Kallinn er þreyttur í dag. Raggi er að gera út af við mig í ræktinni, leiðinlegt að leita að íbúð og vinnuvikan er of löng. Hnuuuusssss.
Borat vinur minn sagði að það væri fyrir aumingja að blása tyggjókúlur. Ég er svona nokkurn veginn sammála honum hvað þetta varðar því að ég var nýbúinn að blása eina stóra kúlu sem sprakk í hárið á Iðnaðarráðherranum sem var að messa yfir líðnum um virkjanir. Við Borat kipptum okkur ekkert upp við það.
Í spilaranum:
AC/DC – Highway to Hell
Jimmy Eat World – 23
Sum 41 – We’re all to blame
Stjörunkisi – villtu deyja
Við Borat biðjum að heilsa..
Þangað til næst…..
Ellen skvís bauð okkur Rúnu í mat og mæ ó mæ, Tomminn þurfti að sjálfsögðu að éta yfir sig eins og honum einum er lagið og situr nú bara á blístrinum með matinn upp í kok.
En eníveis þá er nú bara allt gott að frétta. Bumban á Rúnu minni stækkar óðum og er hún orðin ansi myndarleg hreint. Hún er búin að banna mér að setja bumbu myndir af henni á netið þannig að ég þarf aðeins að sansa dömuna til að fá leyfi fyrir því.
Erum á fullu í íbúðarleit núna og erum búin að finna eina efnilega uppí gettóinu í breiðholti. Ef maður splæsir í svoleiðis er engin spurning um að fjárfesta í einni UZI og haglara með svona til að vera í stakk búinn fyrir gengja stríðin sem viðgangast þarna.
Svo er maður að verða reddí til að fara að hreifa sig eitthvað aftur eftir handleggsbrotið mikla og spurning um að fara að snapa sér einhvern bolta til að sprikla í.
Haldiði bara ekki að maður hafi náð að sansa dömuna til, hehehehe. Hérna er fyrsta bumbumyndin.
Þangað til næst……
Jæja, maður er mættur og nefndur og ég veit ekki hvað og hvað.
Fínasta jólahelgi og svo áramótahelgi liðnar. Komið er árið 2005, árið sem Tomminn slær á 29 aldursár, árið sem Dabbi frændi verður 30 og árið sem Chel$ki kaupir titilinn. Árið sem FCFist verður utandeildarmeistari og árið sem þriðja geirvartan myndast á Tommanum. Árið sem Ninni bróðir setur meira gel í hárið á sér og árið sem Kibbi Jóns kaupir sér enn eitt mótorhjól (Harley Davidson) (það stefnir allt í það Kibbi minn). Árið sem Rúna fæðir barn og þar af leiðandi árið sem Tomminn verður Pabbi. Árið sem Steini Jobba kaupir sér heildverslun í Grundarfirði og árið sem Anna Jobba og Hrund kaupa upp restina af firðinum. Árið sem Soffi skrifar nýtt forrit sem stýrir klósettpappírsvélunum hjá papco og árið sem BigGoj fær stuð af straujbolta. Árið sem Hrotti barnar einusinni enn og árið sem Hemmi babymachine gerir það líka.
Eftirfarandi mun einnig gerast á árinu skv völuspá Tommans:
Grundarfjörður fær þá viðurkenningu sem hann á skilið og verður gerður að höfuðstað evrópu með tilheyrandi brú út í Melrakkaey og neðanjarðargöngum til Grænlands, réttara sagt Nuuk.
Dabbi Hlíðkvist verður gerður að heiðursdjammara á Sólon og fær tilheyrandi styttu af sjálfum sér fyrir utan.
Gæi Hadda reynir fyrir sér sem karl fyrirsæta hjá Eskimós en endar utaná bækling frá 66°norður að auglýsa vettlinga.
Járni G-strengur opnar pulsuvagn beint á móti Rúbí Tjúsdei en samkeppnin er bæld niður með járnhnefa Sössa sem hefur nýverið keypt 0.0004% hlut í Rúbí.
Halli Bumba breytir tapi í hagnað hjá Kápusölunni og fær að launum útekt þar.
Rutlan verður gerð að rannsóknar verkefni fyrir sjúkrahús Akraness.
Heisi slær persónulegt met með því að lyfta 22 hveiti sekkjum með annari á meðan hann borðar pylsu með tómat, sinnep og steiktum með hinni.
Tryggvi Hadda fer á hestbak og verður jafn hjólbeinóttur og Gæi.
Ragnar Smári lærir að drykkjukeppnir eru af hinu illa.
Rósie lærir með mikilli þrautsegju hvernig á að strauja skyrtur.
Viggi Runna kemst að því að hann stefnir í að verða aldraður piparsveinn og nær sér í eina rússneska á veraldarvefnum. Hún heitir Olga.
Maggi Jobba smíðar sér byltingarkennda uppvöskunarvél með innbyggðum eldara úr afgangs efninu frá húsinu hans, og skýrir hana mömmu aka draumur piparsveinsins.
Mamma fær fyrstu verðlaun hjá hinu Íslenska hundavinafélagi fyrir einstaka baráttu fyrir launakjörum varðhunda.
Sleggjan fær hugljómun þegar hún vaknar upp á sunnudegi við hliðina á rússneskum sjóara einhverstaðar á barentshafi eftir heiftarlega vodka drykkju.
Ísdrottningin skrifar sláandi frétt um dvergavændi sem viðgengst inni í Stykkishólmi og fær að launum friðarverðlaun Slúbberts.
Fanney Dóra byrjar með þátt á skjá einum sem kallast “Funheitt með Fanney” en verður að láta í minni pokann fyrir bingó bjössa og félögum og er tekin af dagskrá.
Jói Bling Bling stofnar rappsveit í slagtogi með LL Kúl Djei, Kalla Lú og Rúnna Júll, þeir kalla sig”da bling n’bling” en ná ekki tilheyrandi vinsældum nema í Færeyjum þar sem þeir halda 20 manna tónleika.
María Elísabet nær sér í rauðhærðann kærasta sem kallast Conner.
Lognið eldar súpu úti á sjó, líklegast verður það í kringum mai/júní
Jónas Skipstjóri borðar súpuna, og rekur svo Lognið.
Fleira merkilegt á eftir að gerast en eitthvað verður nú að koma ykkur á óvart, komm on ég má ekki segja ykkur allt.
þangað til næst…..