Pliff

Man Ure datt út í gær fyrir elstu vörn í heimi, ég er dapur í dag. Liðið á nú bara séns á FA bikarnum og væntanlega detta þeir út úr honum líka um helgina þar sem að Rútur Nistilskúnkur getur engan vegið skorað þessa dagana.

Annars er maður ennþá hálf veikur eftir þessa Englandsför um daginn. Er enn með einhvern kvef skít í hálsinum. Rúna er fárveik fyrir vestan út af mér.

Eru kótilettur með marmelaði málið?

Þangað til næst……

Welcome Home Sanitarium

Jæja, þá er kallinn kominn heim í heiðardalinn á ný eftir frægðarför til London. Veit ekki hvort að maður á að koma með einhverja ferðasögu því þetta var nú ekki svo merkilegt.
Eníveis að þá er maður búinn að vera veikur síðan ég kom með hita, beinverki og kvef. Dabbi líka, ég kýs að kalla þetta ensku veikina.
Ég komst að því í þessari ferð að of mikið af McDonalds er ekki hollt. Hvorki fyrir líkama né sál. Morgan Spurlock var spot on með þessari mynd sinni. KFC og Burger King er nú líka sama tuggan. Beikon bras sem er framreitt af sveittum asíubúa með gleraugu. Ekki það að ég hafi neitt á móti þeim en ég held að það sé komin einhver ný ráðningarstefna á skyndibitastaðina í Englandi. Only hiring asians with glasses please.

Rúna litla flúði úr minni kvefuðu návist eftir að hún fékk sjálf kvef. Hún er nú komin til Grundarfjarðar í gott yfirlæti hjá mömmu sinni. Á meðan er ég einn heima veikur. Jú reyndar poppar Steini Jobba stundum inn til að skipta um sokka en hann virðist einnig vera fluttur að heiman eftir að hann fann einhverja tjéllingu til að lúlla hjá.

Nenni ekki að röfla meira í bili.

Þangað til næst……

Word fra London

Hi folks. Sit herna a 3 haedinni a Debenhams og blogga. 3 pund fyrir klst er adeins skarra en hitt helvitid.
Eg og Dabbi erum badir komnir med einhverja bolvada pest enda buinn ad vera skitakuldi herna a Bretlandseyjunum. Eg la i nott i einhverju moki ad drepast ur beinverkjum og kofsvitna i leidinni. Helviti othaegilegt. Vid erum a einhverju skitahoteli sem er snilldarlega stadsett. Ofan i ollu actioninu a Piccadilly Circus. Vid erum bunir ad fara a Planet Hollywood ad eta og eg er buinn ad kaupa 2 pk af Wilkinson Sword fyrir Jon Frimann. Fjogurra blada trillitaeki sem aetti ad skafa skeggid og rotina af kallinum.

Vid vorum lika i Manchester i 3 daga. Forum a Man Utd vs Portsmouth thar sem Wayne Rooney for a kostum og setti 2 kvikindi. Eg er buinn ad taka fullt af myndum med mjog mismunandi arangri, gaman verdur ad sja utkomuna ur tvi og hvad af tessu sleppur a netid hrmpf.

Samt er madur nu buinn ad vera einum of lengi fra henni Runu minni og mig hlakkar rosalega mikid til ad koma heim i kvold. Enda eru 7 dagar, 3 hotel, bua i ferdatosku, labba 7000 km, alveg agaett i bili. Thad verdur gott ad koma heim.

Thangad til naest…..