Jæja, ég lét verða af svolitlu sem ég er búinn að vera að velta fyrir mér í langan tíma.
Málið er að með árunum sem hrúgast á mann þá hækka kollvikin alltaf meir og meir og nú var farið að styttast ískyggilega mikið í að maður myndi líta út eins og Esteban Cambiasso áður en kappinn rakaði sig sköllóttann. Áður en af því varð þá ákvað í að láta skollituðu flygsurnar fjúka af kollinum og nú er maður bara með nett Audda Blö look á þessu.
Nú er maður bara eins og reitt hæna með hor en fjandinn hafi það… Þetta hlýtur að venjast.
Þangað til næst…..
Flottur.. ánægður með þig
Þetta er kannski ekki besta mynd í heimi af þér en ég sé samt ekki annað en að þetta klæði þig stórvel!
hehe…..skalli gamli