Jæja, þá er bara rétt

Jæja, þá er bara rétt rúmur klukkutími í Foo Fighters tónleikana í höllinni. Ég vorkenni sérstaklega einum óheppnum einstakling sem náði á einhvern ótrúlegan hátt að glopra frá sér 6 miðum á þessa snilld og vonandi hans vegna að hann finni þá í tæka tíð.

Jæja, ég ætla niðureftir að ná í mína miða og fara svo í höllina. Ciao

Þangað til næst…..

Þetta er algjör snilld. Jamm

Þetta er algjör snilld.

Jamm svo er það bara Foo Fighters í kvöld og gríðarleg stemming fyrir því. Tomminn reyndar meikaði ekki að mæta í þessa tvo skitnu tíma sem hann átti að mæta í í dag, Æ djöst didint fíl læk it 😦 en svona er það bara.

Það er bara vonandi að bróðurómyndin hann Ninni klikki ekki á tónleikunum í kvöld þar sem að kvikindið er útá sjó og þetta verður víst eitthvað tæpt hjá kallinum. Hans vandamál, ég bað hann vinsamlegast um að koma miðunum MÍNUM með einhverjum öðrum í mínar hendur og held ég að hann hafi gert það, vonandi.

Djöfull er maður svo orðinn feitur marr, það er bara átak núna, ræktin og ekkert rugl. Ég var að spá í að dobbla Járna G-streng með mér þar sem að það er afskaplega leiðinlegt að vera að stússast einn í þessu, Járni minn ef þú lest þetta og hefur áhuga á að kíkja í ræktina með Tommanum þá endilega hafðu samband. Ég veit að ég klikkaði á boltanum seinasta sunnudag en það var af óviðráðanlegum orsökum því miður og endurspeglar ekki viðhorf mitt til hollrar hreifingar. Þó svo að maður hafi nú oft í gegnum tíðina splæst í 3 ja mánaða kortum í ræktina og verið duglegur í c.a. 2 vikur, en ekki núna, nú er Tomminn á breytingaskeiðinu (sjá fyrir neðan) og þetta skal bara virka andskotinn hafi það OG HANA NÚ (til heiðurs Halla litla).

Þangað til næst…..

Jebb, haldiði að Tomminn hafi

Jebb, haldiði að Tomminn hafi bara ekki skellt sér á AA fund í kvöld. Þetta var bara svona líka helvíti fínt og gerir manni ekkert nema gott og ekkert nema gott um það að segja. Kvöldið byrjaði á að Tomminn var búinn að mæla sér mót við Hörð æskuvin sinn til að ræða um sín mál. Jú jú Tomminn og Hrottinn hittast á Kaffibrennslunni yfir kaffibolla og taka spjall saman, Tomminn fer eitthvað að minnast á að koma með Hrottanum á AA fundi og þá dregur Hrottinn hann bara á AA fund sem átti að hefjast eftir 10 mín. Jú Tomminn skellir sér og þetta var bara helvíti fínt. Annað lítið skref sem Tomminn tekur í átt að betra lífi.

Ég heyrði nokkuð merkilega litla sögu á þessum fundi sem ég ætla að leyfa mér að hafa eftir hérna, aðallega af því að hún höfðar svolítið til mín og þeirra breytinga sem ég þarf að ganga í gegnum til að vera húsum hæfur aftur. Og hér kemur hún:

Ég kann að mála, ég veit hvar ég á að sparsla og ég veit hvaða lit ég vil hafa á herberginu mínu og ég er oft að hugsa um að fara að mála herbergið mitt. Búinn að liggja yfir litaprufum, búinn að sparsla í allar sprungur og ég veit vel að ég kann að mála og get gert það nokkuð vel. Ég fer út í búð og kaupi mér pensla og málningu og fer heim með það. Ég hugsa um að fara að byrja á þessu…..

En það gerist ekkert fyrr en ég tek helvítis pensilinn, dýfi honum ofan í málningarfötuna og klíni sullinu á vegginn að herbergið skiptir um lit.

Það er semsagt ekki nóg að hugsa um að bæta sig og gera svo ekkert í því og Tomminn hefur oft staðið sig að því að vera að hugsa um að bæta sig en aldrei gert neitt í því. En loksins núna hefur Tomminn tekið fyrstu skrefin í þá átt að fara að bæta sig og vonandi fyrir gamla kallinn að það takist. Þess vegna höfðar þessi litla saga til mín.

Jamm, svo að Tommi litli ætlar að halda áfram að mæta á AA fundi í vetur og ég ÆTLA að standa mig, ég er hvort eð er hundleiðinlegur fullur þannig að það er ekki mikill missir fyrir ykkur, er yfirleitt sofnaður fyrir miðnætti hrmpf hehe.

Þangað til næst……

Jæja, svo að Tommi litli

Jæja, svo að Tommi litli ákvað að koma með sína eigin bloggsíðu þar sem að hálfvitarnir á bumbunum nenna aldrei að blogga sjálfir. Þetta er jú eitt lítið skref í að skipta um lífsstíl og kúpla sig frá gömlum drykkjufélögum, nei djók. En þó, Tomminn er jú hættur að drekka og má ekki við að hanga í kringum svona sífullan lýð.

Annars er bara allt slæmt að frétta af kallinum. Maðurinn er búinn að klúðra öllum sínum málum í sumar og útlitið ekki bjart fyrir Tommann. Hann lenti allharkalega á jörðinni í kringum 15 ágúst og fór að hugsa aðeins sinn gang og hvað hann ætlar sér í lífinu og komst að þeirri niðurstöðu að hann var svo sannarlega ekki á réttri leið. Og nú er svo komið fyrir Tommanum að hann er lentur á botninum og eina leiðin er upp. Vil ég nú biðjast fyrirgefningar á hegðun minni og alla þá sem ég valdið svo miklum vonbrigðum, þið vitið hver þið eruð.

En eins og máltækið segir þá er batnandi manni best að lifa og fyrsta skrefið hjá Tomma titt er að hætta öllu ölþambi og reyna að standa sig í skólanum. Afgangurinn verður bara að koma í ljós

Þangað til næst…..