Rugl dagsins er: John Travolta og David Beckham ætla að opna saman Grænlenskan veitingastað niðri á Granda og ætla þeir að sérhæfa sig í sölu á niðursoðnu selspiki. 🙂
Svo að Stíf Makkmannamann er genginn til liðs við Mansteftir Sjittí. Gengið var frá 1 árs lánssamning í morgun. Það verður eflaust gaman að sjá Makka og Fávler saman á ný.
Lifrapollurinn er es ví spík að vinna Evertonn 2-0 með tveimur mörkum frá Mækel Óven og er hann nú búinn að skora öll þrjú mörk Lifrapollsins á þessari leiktíð. En leikurinn er nú ekki búinn og aldrei að vita nema að einhverjir fleiri fái tækifæri á að setja blöðruna í netið.
Svo er það bara bolti á morgun í Sporthúsinu og ekkert rugl. Vonar Tomminn að sem flestir sjái sér fært um að koma því kallinn þarf nú að gerast harðari á að rukka inn gjaldið. Tomminn er nú með átta lögfræðinga á hælunum sem eru að innheimta og aðeins fjórir spilarar búnir að greiða gjöldin.
Þangað til næst……