Rugl dagsins er: Fór í banka, ekki banka
Jebb og jæja, Tomminn horfði á bráðskemmtilegan knattspyrnuleik í gærkvöldi. Þar áttust við Svartburn og Lifrapollur FC. Leiknum lauk með sigri Lifrapollsins 4-3, eitt rautt spjald, klúðruð vsp og nóg af hasar helvíti fínt bara.
Nú þarf Tomminn að fara að græja þessa blessuðu íslensku ritgerð pruump. Er byrjaður að lesa þessa blessuðu bók um þenna mikla prest Jón Steingrímsson sem kenndi drykkju og svalli ríkra bænda um Skaftáreldana miklu. Hann áleit að hinn almáttugi Guð væri með þessu að refsa bændunum sem bæ ðe vei eyddu u.þ.b. 4000 fiskgildum í brennivín. Hehehe alltaf er landinn samur við sig.
Jæja, best að fara að byrja á þessu bulli. Það má svo geta þess að Tomminn hyggur á leiðangur til Gæa Hadda og spúsunar hans og munu brátt koma myndir af litlu prinsessunni henni Aldísi Ylfu hér inn 🙂
Þangað til næst……