Jæja góðir hálsar og axlir, Tomminn skellti sér í atvinnuviðtal áðan og ég veit ekki hvað og hvað…. best að vera ekkert að ræða það neitt frekar fyrr en það kemur eitthvað meira út úr því þannig að zip it. Sökum annríkis síðasta föstudag var því miður eitthvað lítið um slúður þann daginn en ég klikka ekki tvo föstudaga í röð og því kemur slúðrið núna.
Heyrst hefur…….
að ný tegund af geimveru hafi fundist á Fagurhólstúni 15
Geimveran var nokkuð hress á því
að geimveran hafi ekki verið ein á ferð
Þeir bræður zarkon og zirkon voru að leita sér að kvonfangi
að óprúttinn náungi hafi selt djásnið hans Ninna, þ.e. Micruna hans
að óprúttni náunginn hafi verið Maggi El Jobbo
að hinn magnaði Soffi hafi farið í fýling á sjónum
að Tommi hafi ekki verið í eins miklum fýling og Soffi sökum sjóveiki
Vaskurinn var besti vinur Tommans
að Nilli kokkur noti nýstárlegar aðferðir við að sjóða fisk
Ofur Pfaff súper dúper potturinn kom oft vel að notum
að Gummi Ammlín hafi skilið eftir sokkana sína í klefanum hans Soffa og því hafi Soffi karlanginn þurft að gista í lestinni
Soffi var furðu hress þrátt fyrir vosbúðina í lestinni
að Tommi hafi gert að heilum 3 fiskum í túrnum
Tommi var örmagna eftir átökin
að Maggi sé gefinn fyrir kokkinn
Steina finnst þetta ástand bróður síns mjög fyndið
að fleiri en Maggi séu gefnir fyrir kokkinn
að Ninni Dittu hafi fjárfest í skónum hans Kris Kristoferson
Skórnir eru þyngdar sinnar virði í gulli
að Soffi og Tommi séu meira en bara góðir vinir
Þeir kumpánarnir eru farnir að sjást ískyggilega mikið saman
að Maggi hafi sett táfýlusokk í rassvasann hjá náunganum fyrir framann hann í röðinni
Maggi er mikill grallari eins og gefur að skilja
að Ninni hafi sett nýtt met í svitafýlu um liðna helgi
Ninni þefar stoltur af handakrikunum á sér
að Ninni hafi miskilið snoker leikinn og haldið að hann ætti að setja hvítu kúluna ofan í hægra hornið
Ninni var ekki alveg að fatta þetta
Jæja, þetta verður ekki lengra í dag vegna þess að ég get ekki stolið fleiri myndum, hnuss, veriði nú duglegri við að taka myndir fólk. Logni sérstaklega þú enda með rosa fína myndavél.
Þangað til næst……
Já, fyrirgefðu Tommi! Er búinn að vera frekar slappur í þessu.
Ég var nú ekki að lykta af handakrikunum… ég var að fagna því að ég hafi verið 46 sek. að kúka