Af hverju vill enginn kaupa hugverkasjóð Tomma. Kannski að það sé nú ekki svo mikið þar á bakvið. Nokkrar slappar íslenskuritgerðir síðan í sjöunda bekk og svo eitt bassastef sem ég samdi með Soffa. Ekki mikils virði en ég myndi nú alveg sætta mig við eins og eina pylsu fyrir góssið, kannski eina kókómjólk meððí.
Hygg á ferð vestur á morgun. Þarf náttúrulega að sækja betri helminginn, eða kannski besta helminginn, sem er farin að gera sig ansi hreint heimkomin hjá mömmu sinni. Maður efast bara um að hún vilji nokkurn tímann koma til mín aftur.
Hér er svo texti sem ég var að semja sem er falur fyrir rétt verð:
Í borginni er gaman
þar búa allir saman
búa úti og inni
og allir eru með
drekka bjór og skíta
þið ættuð bara að vita
í borginni menn hafa gott
og gaman af því héééééér
Þangað til næst…..
Ég borga 100 kall ef ég þarf aldrei að sjá þennan slappa texta aftur!