Sælar
Við feðgarnir fórum vestur um helgina og skildum Rúnu litlu eftir í borg óttans. Þetta var voðalega ljúft. Kristján fékk að sparka í hundana hennar Dittu ömmu og éta allt úr skápnum hjá Sigrúnu ömmu. Svo sporðrenndi hann óteljandi sleikjóum hjá Önnu ömmu sinni.
Þetta var bara voðalega ljúft allt saman.
Ég er búinn að setja inn myndir eftir mánaðar pásu. Til hamingju ég.
Þangað til næst….
Hvernig fórstu að því að búa til svona fallegt barn? 🙂