Jeremías Jólasveinn… ég kann ekkert á þetta skrabbatól

Hvað er málið með Kentucky??? Þegar maður fer á KFC og kaupir sér einhverja máltíð þá fær maður eitthvað fokking sýnishorn af frönskum með, svo ef maður ætlar að vera sniðugur og stækka franskarnar þá kemur einhver úber stór skammtur sem að sjálfur Einar Bárðar myndi verða í erfiðleikum með að torga. Hnuss og piff, hvernig væri bara að stækka minnsta frönskuskammtinn um nokkrar franskar og allir yrðu sáttir.

Annars er ég búinn að vera að renna Run með hljómsveitinni Snow Patrol í gegnum mp3 spilarann og þvílíkt og annað eins snilldar lag. Þetta er sko á leiðinni í brennarann andskotinn sjálfur. Djöfull er þetta gott lag marr.

Snow Patrol – Run

I’ll sing it one last time for you
Then we really have to go
You’ve been the only thing that’s right
In all i’ve done.

And I can barely look at you
But every single time I do
I know we’ll make it anywhere
Anywhere from here

Light up, Light up
As if you have a choice
Even if you cannot hear my voice
I’ll be right beside you dear

Louder, louder
And we’ll run for our lives
I can hardly speak I understand
Why you can’t raise your voice to say

To think I might not see those eyes
It makes it so hard not to cry
And as we say our long goodbyes
I nearly do.

Light up, light up
As if you have a choice
Even if you cannot hear my voice
I’ll be right beside you dear

Louder, louder
And we’ll run for our lives
I can hardly speak I understand
Why you can’t raise your voice to say

Slower, slower
We don’t have time for that
All I want is to find an easier way
To get out of our little heads

Have heart my dear
We’re bound to be afraid
Even if it’s just for a few days
Making up for all this mess.

Light up, light up
As if you have a choice
Even if you cannot hear my voice
I’ll be right beside you dear.

Svo er Tomminn kominn með vinnu, reikna með að klára námið í kvöldskóla á næstu 2 önnum. Fínt að þruma sér aftur út á vinnumarkaðinn og fá smá tekjur, spurning um að fjárfesta bara í mótorhjóli aftur. Djöfull er maður nú spenntur fyrir því uuuuuusssss.

Þangað til næst…….

the day after tomorrow

Var að koma úr bíó með Ninna og G.Alex af stórmyndinni The Day After Tomorrow og guð minn góður. Þvílíkt endemis væl og sull eins og kananum einum er lagið. Piff, vil ekki mæla með henni við nokkurn mann þó svo að flestir fari nú örugglega að sjá hana, nema kanski Haraldur vinur minn en það er þó væntanlega af þeirri ástæðu að ekkert sverð er framan á kynningarplakatinu, og ekkert sverð er í myndinni, þó sést glitta í einn búrhníf í einu atriðanna.

Eníveis, alveg eins gott að sjá hana á vídjó, tjah, eða bara stöð 2 þegar þar að kemur.

Þangað til næst……

Slúður púður

Jæja góðir hálsar og axlir, Tomminn skellti sér í atvinnuviðtal áðan og ég veit ekki hvað og hvað…. best að vera ekkert að ræða það neitt frekar fyrr en það kemur eitthvað meira út úr því þannig að zip it. Sökum annríkis síðasta föstudag var því miður eitthvað lítið um slúður þann daginn en ég klikka ekki tvo föstudaga í röð og því kemur slúðrið núna.

Heyrst hefur…….

að ný tegund af geimveru hafi fundist á Fagurhólstúni 15

Geimveran var nokkuð hress á því

að geimveran hafi ekki verið ein á ferð

Þeir bræður zarkon og zirkon voru að leita sér að kvonfangi

að óprúttinn náungi hafi selt djásnið hans Ninna, þ.e. Micruna hans

Ninni var furious á því

að óprúttni náunginn hafi verið Maggi El Jobbo

Maggi iðraðist einskis

að hinn magnaði Soffi hafi farið í fýling á sjónum

Soffi var oft í fýling

að Tommi hafi ekki verið í eins miklum fýling og Soffi sökum sjóveiki

Vaskurinn var besti vinur Tommans

að Nilli kokkur noti nýstárlegar aðferðir við að sjóða fisk

Ofur Pfaff súper dúper potturinn kom oft vel að notum

að Gummi Ammlín hafi skilið eftir sokkana sína í klefanum hans Soffa og því hafi Soffi karlanginn þurft að gista í lestinni

Soffi var furðu hress þrátt fyrir vosbúðina í lestinni

að Tommi hafi gert að heilum 3 fiskum í túrnum

Tommi var örmagna eftir átökin

að Maggi sé gefinn fyrir kokkinn

Steina finnst þetta ástand bróður síns mjög fyndið

að fleiri en Maggi séu gefnir fyrir kokkinn

og enn hlær Steini

að Ninni Dittu hafi fjárfest í skónum hans Kris Kristoferson

Skórnir eru þyngdar sinnar virði í gulli

að Soffi og Tommi séu meira en bara góðir vinir

Þeir kumpánarnir eru farnir að sjást ískyggilega mikið saman

að Maggi hafi sett táfýlusokk í rassvasann hjá náunganum fyrir framann hann í röðinni

Maggi er mikill grallari eins og gefur að skilja

að Ninni hafi sett nýtt met í svitafýlu um liðna helgi

Ninni þefar stoltur af handakrikunum á sér

að Ninni hafi miskilið snoker leikinn og haldið að hann ætti að setja hvítu kúluna ofan í hægra hornið

Ninni var ekki alveg að fatta þetta

Jæja, þetta verður ekki lengra í dag vegna þess að ég get ekki stolið fleiri myndum, hnuss, veriði nú duglegri við að taka myndir fólk. Logni sérstaklega þú enda með rosa fína myndavél.

Þangað til næst……

Insein in ðe midbrein

Tomminn hefur áhyggjur af eftirfarandi málum:

1 vaxandi mengun í heiminum.
2 gróðurhúsaáhrifunum.
3 áhrif höfrunga á þörunga í kaspíahafinu.
4 áhrifum dabba odds á forseta albaníu
5 hvarfinu á fótanuddtækinu mínu sem hvarf 1987
6 grænu baunasúpunni hans gunna hall
7 kattahárum í aftursætum á leigubílum
8 brauðmylsnu á koddaverinu mínu
9 útfjólubláum geislum frá tölvuskjánum hans big goj
10 bómullarmottum fyrir neðan klósett
11 bergvatnsframleiðslu indverja
12 keilukúlum fyrir nautgripi
13 og því að það nenni enginn að fokking commenta lengur hérna, HNUUUUUSSSSSSSS

Þangað til næst…….

SIGUR

Það má geta þess að hið gríðarskemmtilega utandeildarlið FC FIST a.k.a FC CARUSO vann fyrsta sigur sumarsins í gær. Fistararnir unnu Mannsa 4-3 í hörkuleik þar sem hinir grófu Mannsar beittu öllum bolabrögðum í bókinni og uppskáru eftir því.

Er að henda myndunum frá sjóferð dauðans inná myndasíðuna es ví spík.

Keypti nýjann síma í gær. Nokia 6100, mjög kúl

Pixies í kvöld og svo ætla ég að stela hjólinu hans Vigga í smá stund hehehehehe.

Þangað til næst…….

Ooooog ég veit ekki hvað og hvað

Jæja gott fólk, kallinn búinn að leggja sig aðeins og er þar af leiðandi örlítið hressari en í gær. Hmmm, hvað er nú búið að gerast síðan síðast??? Jú mikið rétt Man Jú varð enskur bikarmeistari hehehehe, til hamingju ég og fleiri velunnarar Man Jú. Kristjánus Rónaldó var víst maður leiksins þó að Svenni Gauran Eiríksson hafi ekki verið á sama máli og útnefnt Rút van Nístilskinku sem mann leiksins. Gút for him. En allavena ein dolla kom í hús eftir þetta tímabil en allt annað hefði talist skandall.

Af einhverjum “dularfullum ástæðum” þá eru víst yfir milljón manns búnir að kjósa að hljómsveitin Kvadratrót eigi eftir að meika það feitt og sjaldan lýgur almannarómur er það nokkuð? Sé mig samt tilneyddann til að koma með nýja könnun fyrir ykkur og vonandi að þáttakan verði nú jafn góð hehehehe.

Pixies tónleikar annaðkvöld marr. Sjæse hvað það verður fínt. Svo er maður að fara að keppa í tuðrusparki í kvöld. FC FIST koma sterkir inn en þið getið séð allt um það hérna og allt um utandeildina líka.

Var að koma úr atvinnuviðtali sem Onkel Benz skráði mig í. Ég vissi nú ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar það var hringt í mig í gær. Enda kannaðist ég ekkert við að hafa sótt um eitthvað djobb bara si sona. En ég mætti og svo verður restin bara að koma í ljós. Hringdi meira að segja spes í Dóra verslunarstjóra til að smjaðra aðeins og reyna að fá betri meðmæli hehehehe, en haldiði bara ekki að kallinn (Dóri) hafi legið með tærnar upp í loft á Portúgal með bjór í annari og 6faldann viskí í hinni, djös sæla.

Svo er Dassi ðe mein men á Nellýs byrjaður að blogga og hann fær að sjálfsögðu link hjá mér enda drengur góður og afspyrnu hress náungi. Þá eru allavenga 3 BT rottur sem ég veit um sem blogga, ef það eru fleiri endilega láta mig vita takk fyrir takk.

Jæja, nú ætla ég að fara að klóra mér í anusnum og gera ekki neitt þangað til leikurinn byrjar í kvöld.

Þangað til næst…….

Kominn

Kominn í land, stuttur en erfiður túr fyrir óvana skólapilta. Sjóveikur fyrsta daginn, gubb, velgja, fullur dallur, margir margir penge, mikið fjör mikið gaman, þreyttur, vantar að fara að sofa, spá í að vinna í því, meira síðar.

Þangað til næst……..

Sjóferð á morgun

Far det da i satans, jamm og jæja, Tomminn fer á sjóinn annaðkvöld með Sóley SH-124 og verður það örugglega eitthvað. Tek væntanlega myndavélina með mér til að festa Gumma Ammlín á filmu við þá vinsælu iðju að misnota skötusel. Vonandi að það verði nú gott í sjóinn svo að maður haldið ælunni niðri, en það verður bara að koma í ljós.

Fór í banka ekki banka, yfirleitt þegar svona bull kemur þá er það af því að ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa…. Þannig að mðaur lætur bara næsta bull vaða.

En for helvede að ég verð að hætta þessu bulli.

Veit ekki hvenær næsta blogg kemur en það verður líklegast ekki fyrr en eftir helgi. Þangað til verið dugleg að kjósa og commenta aight.

Þangað til næst…….