Hvað er málið???

Ég var að velta fyrir mér hvað málið væri með fólk sem setur banana á pizzurnar sínar. Hvað er málið eiginlega. Bananar og pizzur eiga álíka vel saman og kók og mjólk, ekki myndi maður nú vilja blanda saman mjólk og kók er það nokkuð.
En smekkur manna er jú mismunandi og þess vegna er nú ekkert mikið við hæfi að maður sé að predika eitthvað um þetta en persónulega finnst mér þetta bara hreint út sagt asnalegt. Kannski að það liggi eitthvað illa á mér þessa stundina og þá er nú gott að hafa blogg sem maður getur pústað út á.
En bananapizzur geta farið norður og niður fyrir mér því ekki læt ég þetta innfyrir mínar stóru og myndarlegu varir frekar en rúgbrauð með sultu, roastbeef með hunangi, brauð með kanil, jógúrt með sinnepi, pulsu með mysing, hamborgara með súrmjólk eða fisk með korn flexi.

Svo er að setja link á ír skutlurnar sem eru með þessa líka fínu bloggsíðu.

Annað sem er mér hugleikið þessa dagana, er einhver þarna úti sem veit um góða aðferð til að læra spænsku á einni viku??? Já eða diffrun á einni viku???

Með von um svör…

Þangað til næst…..

Eftir höfðinu dansa limirnir

Já góðir hálsar, “eftir höfðinu dansa limirnir” er málshátturinn sem ég fékk með páskaegginu mínu. Ég vaknaði full seint eða of seint í dag því þegar ég kom á fætur var ekkert eftir af páskaegginu mínu nema málshátturinn. Þannig var mál með vexti að húsfreyjan á heimilinu hafði tekið sig til og séð algjörlega um það hrmpf. Enda er það nú bara allt í lagi því ég er ekkert svo mikill páskaeggjakall hvort eð er.

Það eru bara rólegheit í kvöld, ég er núna hjá honum Soffa mínum í kaffi, búinn að éta gjörsamlega yfir mig að það hálfa væri miklu meira en nóg.

Sá að einhver snillingurinn hafði linkað á pungamyndirnar af batman.is og yfir 2000 manns búnir að berja hreðjarnar augum þannig að verði þeim bara að góðu. Enda er þetta ansi hreint fyndið, að láta sér detta svona vitleysa í hug er alveg makalaust.

Jæja, ég ætla að halda áfram að liggja afvelta á meltunni.

Þangað til næst…..

Þreyttur

Það er ekki laust við að maður sé hálf sybbinn þegar þessi orð eru skrifuð, ætlaði bara að minnast á það að hún Rósa snillingur og Grundari fær link hjá mér en ég var bara að uppgvötva það mjög nýlega að væri bloggari.

Komnar fullt af myndum inn á myndasíðuna af ballinu í gær og svo ákveðnar pung myndir sem ég álpaðis til að finna á netinu hrmpf hehehe

Þangað til næst…….

Föstudagar eru til slúðurs

Jæja gott fólk. Þá er komið að slúðri vikunnar en af mörgu er að taka og vil ég biðja viðkomandi um að vera ekkert að fara í mál við mig því ég er snillingur í að láta mig hverfa.

Heyrst hefur…….

að Svavar Áslaugs hafi fjárfest í nýju ofur mótorhjóli með Pfaff mótor.

Svavar var hæst ánægður með nýja hjólið

að Dabbi Hlíðkvist sé byrjaður að læra að lesa og gengur að eigin sögn gríðarlega vel. Hann er nú þegar búinn að læra að lesa nafnið sitt og allt.

Dabbi var einbeyttur þegar ljósmyndari ruglukollsins náði af honum tali

að Steini Jobba hafi migið utan í myndbandahöllina til að mótmæla of háu verði á bláum spólum.

Steini hristi kallinn þrisvar að athæfinu loknu

að Gummi Palla hafi beðið þolinmóður eftir að sýningin á fjórðu Lort of the skons myndinni í stjörnubíó hæfist.

Gummi beið spenntur

að Maggi el Jobbo og Dabbi el Hlíðó hafi gert stóran samning við mastercard um að auglýsa merki félagsins

Drengirnir á fyrsta auglýsingaspjaldinu

að ástæðan fyrir hvarfi Gæa Hadda sé sú að kallinn hafi flutt á norðupólinn og búi þar í miklum vellystingum og lifi á selspiki og ísbjarnahreðjum

Gæi er ávallt vel klæddur þegar hann fer á mörgæsaveiðar

að Maggi og Viggi hafi skráð sig í dansskóla Heiðars Austmann með góðum árangri.

Drengirnir í sveiflu

að Viggi gefi skít í allar sögusagnir um danskunnáttu sína og neiti öllu saman

Viggi var ófús í viðtal

að keppnin um sterkustu svitalyktina hafi verið einstaklega hörð í ár.

það var tekið hart á því í fyrri umferðinni

að Lalli í Gröf hafi misst tönn þegar hann beit í tunguna á sér.

Lalli var fús til að brosa til ljósmyndarans

að drykkjuvenjur ísdrottningarinnar séu alvarlegt vandamál á öldurhúsum borgarinnar, en hún er þekkt fyrir að klára allan lagerinn af sinalco.

Ísdrottningin er gefin fyrir sinalcoið

að þegar Lognið var búinn að strauja allt út af kortinu sínu, búinn með allan peninginn og búinn að selja skóna sína hafi hann reynt að selja myndavélina sína fyrir bjór

Logninu varð ekki að ósk sinni í þetta skiptið

að Simmi sem nú gengur undir nafninu Salem lights maðurinn hafi gert stóran auglýsingasamning við Salem um að auglýsa vörur fyrirtækisins.

Simmi kveikir sér í einni

að Finni Nilla hafi dottið í lukkupottinn um daginn þegar hann álpaðist til að vinna 50 kr í happaþrennu.

Finni var lukkulegur með fimmtíukallinn og sagðist ætla að leggja hann inn á bók

að Viggi Runna hafi í samvinnu við Fuji þróað “hið fullkomna myndavélabros”

Viggi stoltur með nýja brosið

að þegar Ísdrottningin kemst í bollu, þá er voðinn vís.

Ísdrottningin gerði bara 4 skandala þetta kvöldið

að Búbbi Morteins hafi farið í lýtaaðgerð og flutt til Kárahnjúka.

glöggir lesendur ruglukollsins voru snöggir að koma upp um nýja gervið

að Lognið sé hardcore upskirt ljósmyndari en upp komst um athæfið í starfsmannateiti Landsbankans fyrir stuttu

Lognið glettinn á svip nýbúinn að smella af einum g-strengnum

að Soffi hafi fjárfest í gítar en ekki fattað það fyrr en hann kom heim að hann sneri vitlaust.

Soffi reynir öfugsnúinn að spila á gripinn

að Ninni Dittu hafi lent í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hann ætlaði að senda bílinn sinn á verkstæði en bíllinn var 6 grömmum yfir leyfilegri póstþyngd sem er 34.3 kg

Ninni þurfti að setja hræið á landflutninga

að Steini hafi mætt með forláta kryddkvörn á uppfinningakvöld ofurnörda sem haldið var hátíðlegt um síðustu mánaðarmót

Steini var rosalega ánægður með uppfinninguna sína

að Ninni hafi farið í nasaholustækkun hjá landlækni til að vinna bug á andleysi

Ninni getur nú geymt símann sinn í nefinu á sér

að Múri og Nonni Mæju hafi lagt á ráðin um að ráða Guðjón Skúla af dögum fyrir næsta leik Snæfells og Keflavíkur

Múri var með snilldarhugmynd sem innihélt títuprjón og uppblásinn smokk

að Rut og Haddi hafi beðið eftir að Heisi setti tvistinn út í Ólsen Ólsen á dögunum en hinn treggáfaði Heisi álpaðist sjö sinnum í röð til að setja út áttu og breyta í jóker

Það var farið að síga í þau undir lokin

að Dýri skemmti sér best þegar hann er umkringdur kvenfólki um fermingaraldurinn

Dýri á góðri stund

að Ninni hafi höstlað um daginn, sem er náttúrulega stórfrétt

Þessi fékk meira að segja að hitta foreldra hans Ninna

að Ninni sé náskyldur Reyni Pétri, í föðurættina að sjálfsögðu

Þeir eru alveg sláandi líkir

að Viggi hafi aukavinnu af súludansi í einkasamkvæmum.

Viggi á einni súlunni

að sumir hafi orðið ansi æstir af súludansi Vigga.

Viggi tryllti líðinn af mikilli snilld

að Jónas skipperr hafi farið í draumaferð á Anfýld í vikunni þar sem hann náði að sjá Lifrapoll gera 0-0 jaftefli við Brisbane Róvers í bragðdaufum leik. Hápunktur ferðarinna var að hans sögn þegar þeir keyrðu fram á rollur að bíta gras á leiðinni heim.

Jónas var spenntur að komast inn á Anfýld

að Logni og Viggi eigi sameiginlegt áhugamál um frímerkjasöfnun.

Kumpánarnir ræða áhugasamir um áhugamálið sitt

Föstudagsslúður á morgun

Já góðir hálsar, á morgun er föstudagurinn langi og þá verður extra langt föstudagsslúður, enda af nógu að taka þessa dagana. Kallinn búinn að vera sveittur í fréttasöfnun og er kominn með góðann og diggann aðstoðarmann en það er enginn annar en Logni Stormsson sem ætlar að vera duglegur að skúbba upp fréttir og duglegur að taka myndir. Eins gott að hann verði búinn að koma myndunum sem hann tók í gær á netið fyrir morgundaginn. Annarst liggur hann örugglega skítþunnur með tærnar upp í loft as we speak, svona miðað við áfengismagnið sem kallinn lét ofaní sig í gær.

Næsti pistill verður uppfullur af slúðri þannig að… beware múhahahaha…

Þangað til næst……

Til hamingju með afmælið Sigmar Hrafn

Já, hann Simmi á afmæli í dag og vil ég biðja lesendur um að rísa úr sætum og taka undir með mér, hátt og snjallt

hrmpf

Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Simmi
hann á afmæli í dag

hann er 25 ára í dag
hann er 25 ára í dag
hann er 25 ára hann Simmi
hann er 25 ára í dag

Veiiiiiiiiiiiiiiiii

Þangað til næst…….

Ljúfa líf

Uuuuussss hvað Soffi er nú mikill höbbðingi heim að sækja. Í gær kíkti ég á kallinn í kaffi og þá var manni boðið upp á dýrindis kjúkling sem var afgangur af kvöldmatnum hans, Signýar og Rutlu. Svo bauð kallinn mér í mat í kvöld og uuuuuuussss marr. Þvílíkt gott Fondu var á boðstólnum, ég át alveg yfir mig. Svo var kaffi og súkkulaði í desert og svo er þessi ezka að koma með kók fyrir mig núna. Þvílíkt yfirlæti sem maður er í hérna.

Annars svaf maður fram að hádegi í dag. Vaknaði fínn og fór að hjálpa múttu gömlu að bera út. Fór svo á 59 og fékk mér kók, hitti Soffa og Steina sem eru hluti af hinni gríðargóðu hljómsveit Kvaðratrót. Við ákváðum þá að halda fyrstu opinberu hljómsveitaræfinguna sem var opin almenningi. Ekki létu nú margir sjá sig en við viljum benda á að fyrirvarinn var stuttur. Æfingin gekk bærilega og framhaldið lofar góðu. Svo var farið heim til Soffa og Rutlu, matur og Champlíg þar sem að hrokagikkirnir í Arse nal duttu út. Eru núna búnir að tapa 2 leikjum í röð og þvílíkum leikjum. 2 titlar farnir í klósettið og vil ég hér með spá því sem maður þorði ekki einu sinni að láta sig dreyma um fyrir nokkrum vikum, að Arse nal endi tímabilið titlalausir. Þeir virðast vera að gefa eftir á versta tíma eins og í fyrra hehehehe. Gott á þá. Svo duttu líka Real Madrid út fyrir baráttuglöðum Monaco mönnum sem áttu sigurinn skilið.

Jæja, nenni ekki að röfla meira í kvöld. Leiterz

Þangað til næst………

Vesturferð

Er að fara vestur í nafla alheimsins með viðkomu í Stykkishólmi þar sem ég ætla að sjá Snæfell vinna kúkakleprana frá Keflavík sem bæ ðe vei er skítapleis. Negranema menn eru í góðum gír fyrir kvöldið og þá sérstaklega McGunnerinn sem gerir bara grín að Nonna Mæju og fleiri góðum köppum.

Er kominn á bílaleigubíl þar sem að dollan mín er komin á réttingarverkstæði. Helvíti fín drossía sem maður ekur á núna. Toyota Corolla árg 2003 hvít að lit.

Smurning um að fara að græja sig í vesturferðina.

Þangað til næst……

FORZA INTER

Góð helgi í boltanum fyrir mína menn. Fyrst voru það elskurnar mínar í Man Jú sem unnu Arsenal á laugardaginn og svo var það Inter sem vann Juve 3-2 í kvöld. Sniiiiiilld því ekki hefur gengið hjá inter verið það gott hmmm.

Gríðarleg gleði fyrir Tommann. Óskið mér til hamingju í commenta kerfið takk.

Þangað til næst……..