Rugl dagsins er: Heyrst hefur að Tom Jones ætli sér að fara í svifdrekaflug fram af Látrabjargi og reyna að vera fyrstur manna til að svífa til Grænlands.
Helvítis Sáþhamtonn að vinna Mansteftir Júnæted svona. Nú þurfa mínir menn að girða sig í brók og fara að taka sig saman í andlitinu. Og þið þarna púllaradjöflar, þurrkið þetta helvítis skítaglott af sméttunum á ykkur. En svona er þetta bara, maður vinnur ekki alltaf.
Núna eru reyndar Asnenal menn undir eftir sjálfsmark Laurens en ætli helvítis Nallarnir reddi þessu ekki.
Inter menn voru bara seigir og mörðu sigur á Módena 2-0 með mörkum frá Kristían Víerí og Markó Materassí á 87 min og 94 vííííhaaa.
En, helvítis Júnæted aular og vitleysingar. Niður með auðvaldið
Þangað til næst…..