Voila

Helvíti fínt að fá slæmar fréttir á mánudögum sem koma svo til með að verða ekkisvoslæmarfréttir á þriðjudögum. Ég fékk sem sagt helvíti slæmar fréttir í gær sem eru bara ekkisvoslæmar í dag hehehe, miklu og þungu fargi af mér létt enda var ég orðinn það verulega þunglyndur í gærkveldi að um tíma var mér vart hugað líf.

En eníveis þá lítur þetta alltsaman mun betur út núna þannig að Tomminn er hýr á brún og brá (þetta var ekkert gay nei nei)

Break Stuff

It’s just one of those days
Where ya don’t wanna wake up
Everything is fucked, everybody sucks.
You don’t really know why
But you wanna justify rippin’ someone’s head off
No human contact
And if you interact your life is on contract
Your best bet is to stay away mother fucker!
It’s just one of those days!

It’s all about the he said she said bullshit
I think you better quit lettin’ shit slip
Or you’ll be leavin with a fat lip
It’s all about the he said she said bullshit
I think you better quit talkin’ that shit

It’s just one of those days
Feelin’ like a freight train
First one to complain
Leaves with a blood stain
Damn right I’m a maniac
You better watch your back
Cuz I’m fuckin’ up your program
And if you’re stuck up
You just lucked up
Next in line to get fucked up
Your best bet is to stay away motherfucker!
It’s just one of those days!

It’s all about the he said she said bullshit.
I think you better quit lettin shit slip
Or you’ll be leavin with a fat lip
It’s all about the he said she said bullshit
I think you better quit talkin that shit, punk
So come and get it

I feel like shit
My suggestion is to keep your distance
Cuz right now I’m dangerous
We’ve all felt like shit
And been treated like shit
All those motherfuckers, they want to step up
I hope ya know
I pack a chainsaw
I’ll skin your ass raw
And if my day keeps going this way
I just might break something tonight
Give me something to break

I pack a chainsaw
I’ll skin your ass raw
And if my day keeps going this way
I just might break your fuckin’ face tonite

Give me something to break
Just give me something to break
How ’bout your fuckin’ face?

I hope you know I pack a chainsaw, what?
I hope you know I pack a chainsaw, a mutherfuckin’ chainsaw, what?
Some and get it

It’s all about the he said she said bullshit.
I think you better quit lettin shit slip
Or you’ll be leavin with a fat lip
It’s all about the he said she said bullshit
I think you better quit talkin that shit
So come and get it

Þangað til næst……

PRRRRUUUMMP

Ímyndið ykkur að ef Kornflex væri búið til úr salthnetum…. Djöfull væri það asnalegt á bragðið marr, uuuussss.

Þetta var pæling dagsins og hún var í boði Kelloggs

Þangað til næst……

Spæderman

Var að lesa blogg hjá einni vinkonu minni sem var að tala um Spiderman og ég má til með að vitna í hana Ingveldi:

“Mér fannst vondi karlinn í þessari spiderman mynd frábær, uppfinningarmaðurinn Otto Octavius sem var með átta útlimi. Hins vegar var Green Goblin í fyrri myndinni ekkert spes og var leiðinlegt illmenni. Samt eru þessar blessuðu myndir svo kjánalegar, ég meina…afhverju skítur spiderman vefnum sínum ekki út út úr afturendanum á sér eins og alvöru könguló?”

Hehehehe, já af hverju ætli Spiderman skjóti ekki vefnum út um rassgatið á sér eins og venjulegar kóngulær??? Spáum aðeins í því:

1. þá væri myndin bönnuð inn að 18 ára aldri.
2. Stellingarnar þegar Spiderman væri að sveifla sér á milli háhýsa væru hreint og beint hneykslanlegar
3. Spiderman þyrfti alltaf að snúa sér við eða bakka að bófunum til að festa þá í netið sitt (frekar seinlegt)
4. Slæmt að þurfa alltaf að moona á liðið líka.
5. Þá væri hann augljóslega ekki eins svalur

Ingveldur fær prik í kladdann fyrir þennan skemmtilega punkt.

Þangað til næst…..

Aaaaaiiight

Jæja góðir kammeratar, mánudagur runninn upp með sólskins blíðu og endalaust góðu veðri. Helgin var mögnuð veðurlega séð og ég og ðe Vigg dawg krúsuðum af okkur rassinn. Í gær sunnudag var hinsvegar hjólið hvílt og ég og Rúnkan fórum einn sveitarúnt upp í Borgarfjörð. Fórum í sund í Borgarnesi og komum svo við í Baulunni og fengum okkur í goggin hjá Kibba og Sigrúnu. Eðal fínn veitingastaður þar sem að kallinn fékk kúfullan disk af lettum (kótilettum) á 1400 kr. Uuuusss góður díll þar marr, átti barasta í erfiðleikum með að standa upp eftir þessa veislu. Svo var kíkt í heimsókn til ömmu enda nokkuð langt síðna að maður hafði hitt hana elsku ömmu sína. Svo var brunað í bæinn og náð í Ninnsterinn á flugvöllinn þar sem að hann var að koma gljáfægður frá Kárahnjúkum.

Svo er það bara Grundarfjarðarhelgin um næstu helgi, vonandi að veðrið haldist svipað eins og það hefur verið. Annars bara yfir og út.

Þangað til næst……

Friday rules

Úúúújee

Heyrst hefur……

að Tommi hafi tekið breytingum eftir að hann fjárfesti í skellinöðrunni sinni


Eins og sést hérna er Tommi (39) gjörbreyttur maður

að Viggi Runna hái nú mikla baráttu við aukakílóin og að sú barátta sé í raun töpuð.


Viggi (39) er nokkuð bústinn eins og sést hérna

að Viggi Runna eigi þó einn góðann vin en það er enginn annar en Jenni í Brein Pólís


Hérna eru þeir Jenni (21) og Viggi (39) á góðri stund

að Ísdrottningin hafi sótt um að taka þátt í fegurðarsamkeppni Ásdísar Klán en Ísdrottningin hefur alltaf verið þekkt fyrir að vera á móti þess háttar keppnum.


Ísdrottningin (17) sendi inn þessa mynd enda er hún sæt stelpa

að Ninni Dittu sé nú kominn í nýja vinnu við að selja undirföt door to door. Að eigin sögn hefur honum bara verið hent út 29 sinnum.


Ninni (12) er óvenju hress þrátt fyrir að einu viðskiptavinirnir séu Fríða Lein og Stína Odds

að Soffi Sítróna hafi af ókunnum ástæðum skipt um stíl, fengið sér nýja greiðslu, talsmáta og outfitt.


Soffi (8) notar orðið homie ansi mikið þessa dagana

að sökum vatnsskorts á Grundargötu 15 fari Rúna Jobba (38) og Maggi Jobba (37) alltaf saman í bað


Aðspurð sögðust systkinin hafa gert þetta síðan þau mundu eftir sér og þeim finnst þetta bara alveg sjálfsagt en að sjálfsögðu er fyllsta siðgæðis alltaf gætt eins og sést á myndinni

að félagarnir Svenni Ragga (16) og Viggi Runna (63) séu búnir að stofna karókí klúbb Svenna


Félagarnir taka oft úps æ did itt agen með Britney Spírs

að Rallýklúbbur Dúdda Jóns hyggi á hringferð um landið


Hér er rallýklúbburinn rétt áður en haldið var í hann

að Jónsi í Svörtum flötum (51), Gunni Skítmó (27) og Gummi Rauði (14) séu meira en bara góðir félagar.


Félagarnir eru ansi nánir

að Oddur Hrannar sé ansi mikill sprelligosi og gangi oft í Elvis gervi.


Oddur (18) er sniðugur strákur

að Ninni Dittu sé kominn á bullandi fast með þessari fögru dömu sem segist heita Jón


Ditta gamla er ekki hress með kvenkostinn

að hinn umtalaði Ninni prumphænsn hafi skilið eftir sig svo myglaða kúkalykt þegar hann fór síðast á dolluna að það þurfti að rýma hálfann bæinn og kalla á Hazard búna hreinsitækna til að loftræsta.


Ein hazard löggan með sönnunargögn

að Kibbi Jóns sé nú kominn með vínveitingarleyfi og geti nú boðið upp á bjór í Baulunni


Kibbi og einn fastakúnninn með fyrstu bjórana

að bassafanturinn í Svörtum Flötum sé ekki við eina fjölina felldur


Bassafanturinn er ansi hreint hommalegur á köflum

að Antóníó Bandírass eigi nýja kærustu


Þessi mynd náðist af Antóníó og nýju spúsunni eftir óskarsverðlauna hátíðina, papparassinn sem tók myndina er nú látinn

að fermingarmyndin af Gæa Hadda sé engri lík


Gæi (32) er skondinn náungi

að Steini Jobba hafi snoðað sig því hann var kominn með grátt í vöngum


Þessi mynd náðist af Steina (56) rétt fyrir klippinguna

að Big Goj sé breyttur maður eftir að hann fékk sér gleraugu


Big Goj (48) er fjall myndarlegur maður eins og sést glögglega hérna

að Laugi Jónasar hafi farið að fordæmi Big Goj og einnig fengið sér gleraugu.


Laugi (12) er líka gjörbreyttur eins og Big Goj

að Frank Russel sé kominn á fast. Loksins sagði Logni bróðir hans


Frank er hamingjusamur þessa dagana

að sætar skonsur komi til með að sjást á Grundarfjarðadögunum um næstu helgi.


Sleggjan (76) og Rebba (13) voru búnar að lofa að láta sjá sig

Jæja, þetta er orðið gott í bili. Hvet alla til að hugsa um eitthvað fallegt á meðan þið lesið þetta. Lögsóknir eru orðnar of margar í ruslafötunni minni

Þangað til næst……

JEEEEEESSSSS

FC FIST sigraði BUNDES í hörkuleik 4-1, Tommalingurinn spilaði á miðri miðjunni með Baldri og við Balli áttum miðjuna, Doddi, Þórður, Baldur og one eyed Gísli settu hann í sanngjörnum sigri. TIL HAMINGJU ÉG OG FC FIST ÚÚÚÚÚJEEE.

Langþráður sigur hjá okkur Fisturum orðinn að veruleika.

Þangað til næst…….

Kúkasaga dauðans

Sit hérna í vinnunni, lítið að gera, reyna að blogga eitthvað en dettur ekkert skemmtilegt í hug, spurning hvort maður ætti að fara út í einhverjar kúkasögur eins og hún Rebba gerir svo nett, spurning um að tala um mat og matarboð eins og hún Fanney Dóra, jafnvel spurning að blogga um ævintýri mín eins og Sleggjan fer svo nett með sín ævintýri á sinni síðu, en þar sem að Tomminn þjáist af rithægðartregðu á háu stigi hef ég ákveðið að koma með reynslusögu úr lífi Tommans.

Fyrirgefðu Ninni en þetta varð að flakka einhverntímann.

Þannig var mál með vexti að einn fagrann vordag árið 1998 þegar Tomminn var á sínu 22 aldursári ákvað kallinn að skreppa til Ítalíu og sjá leik með sínum heittelskuðu Inter mönnum spila við AC Milan. Tommanum þótti verra að þvælast alla þessa leið aleinn þannig að hann dobblaði Ninna litla bróður sinn með sér. Ninni sem þarna var á sautjánda árinu lítill og mjór var alveg til í þetta.
Það fór svo þannig að bræðurnir stóðu gallvaskir á Leifsstöð tilbúnir í ný ævintýri. Ferðin sjálf var mjög fín en flogið var frá Keflavík til Luxembourg þar sem tók við 12 klst rútuferð yfir til Ítalíu. Frekar þreytandi rútuferð en ferðin var ódýrari fyrir vikið. Sem betur fer var klósett í rútunni þannig að menn gátu gengið örna sinna óáreittir því mikið var um bjórdrykkju í þessari rútuferð. Við bræður létum nú bjórinn eiga sig þótt flestir aðrir væru orðnir nokkuð hressir.

Dvölin á Ítalíu var mjög fín. Mínir menn í Inter rúlluðu AC Milan upp 3-0 þar sem að Diego Simeone og Ronaldo skoruðu mörkin. Mjög fínt en strax eftir leikinn var farið beint upp í rútu og haldið af stað áleiðis til Luxembourg. Kl var orðin nokkuð margt þannig að flestir reyndu bara að halla sér. Um kl 4 á mánudagsmorgninum er stoppað í einhverri skítabúllu þar sem að við bræður gátum fengið okkur eitthvað í gogginn.
Eitthvað hefur maturinn sem Ninni fékk sér farið eitthvað illa í karlangann því hann fékk þessa líka heiftarlegu magapínu strákgreyið þannig að hann gat sig bara ekkert hreyft.
Svo líður og bíður og þar sem við sitjum þarna fremst á efri hæðinni í rútunni þá gýs allt í einu upp þessi líka svakalega skítalykt marr uuuusss, þið trúið því ekki en þetta var rosalegt. Ég lít svona niður til Ninna þegar ég finn þessa lykt og þá lítur hann svona upp til mín eins og lítill kjölturakki með stórum biðjandi augum alveg rosalega aumkunarverður og setur puttann upp að vörunum á sér og svo kemur svona hljóðlegt sssss. Kvikindið ég gat ekki setið á mér við þessa sjón að ég hreinlega sprakk úr hlátri. Þetta var alveg óendanlega fyndið og var fólkið sem var aftar í rútunni farið að veita okkur athygli. Það komst að því svona 4,3 sekúndum síðar af hverju ég var að hlæja. Mökkurinn fór eins og eldur um sinu út um alla rútuna og setningar eins og “Hva, eru strákarnir búnir að drulla í sig þarna fram í” og “Djöfulsins lykt er þetta eiginlega, hver dó” fóru að heyrast og alltaf hló ég jafn mikið. Ninni sem lá þarna í sætinu fölur og fár var ekki með bros á vör þegar þarna var komið við sögu. Eftir langan tíma (örugglega heil eilífð í huga Ninna) komum við loksins til Luxembourgh. Við bræður vorum með þeim fyrstu sem stigum út úr rútunni og það skipti þá engum togum nema að ég heyri bara “Tommi, þú tekur töskurnar” og svo sé ég bara á eftir Ninna hlaupa inn í flugstöðina, væntanlega til að fara að tefla við páfann.
Svo eftir þónokkurn tíma kemur drengurinn loksins út, búinn að misnota kamarinn allsvakalega, kemur röltandi að borðina þar sem við sitjum ég og 2 félagar okkar. Röltir þetta í rólegheitunum stoppar svo þegar hann á svona 2 metra eftir og snýr við og hleypur í fússi aftur á kamarinn, round two. Aumingja strákurinn, ekki hefði ég nú viljað vera í hans sporum þarna uuuussss. Sitjandi í rútu alveg að drulla í sig vitandi að það eru amk 6 klst í næsta stopp.

Við bræður höfum nú oft hlegið af þessari sögu eftir á en ég efast um að honum hafi verið hlátur í huga á meðan á þessu stóð.

Þangað til næst……

Könnun

Það er ljóst með síðustu könnun að Metallica rokka feitast, enda ekki mikið um væna bita aðra en þá. Enda var þessi könnun sett upp eftir að viðkomandi kom af Metallica tónleikunum og þeir hreinlega rokka feitast. En niðurstöðurnar voru eftirfarandi:

Hljómar 2 – Ekki vissi ég að Rúnni Júll væri farinn að skoða síðuna mína.

Mánar 1 – Það er til fólk í heiminum sem er meira að segja eldra en ég

Ghost Digital 0 – Ef Einar Görn hefði fengið fleiri atkvæði en hann fékk hefði ég misst trú á ykkur

Joanie and the ferrymen 0 – Ekkert kemur á óvart hérna þar sem að ég efast um að þessi hljómsveit sé til og ef hún væri til þá einhvernveginn efast ég um að hún myndi rokka feitt

Trúbrot 2 – Rúnni Júll og félagar hafa verið duglegir að kjósa

METALLICA 11 – Bara 11 af 27 atkvæðum wtf en samt ótvíræður sigurvegari dagsins

Stryper 2 – Þessir spandexklæddu gulu og svörtu glysrokkarar frá níunda áratugnum sem fluttu fagnaðarerindi krists og dreifðu biblíum á tónleikum fengu 2 atkvæði, þakkiði Steina fyrir þau strákar

Thompson Twins 0 – Núll, kommon gææs, þeir eiga nú meira skilið en núll hmmm

Limahl 1 – Já sko kallinn, það eru greinilega einhverjir sem muna eftir kallinum

Wham 5 – Veittu Metallica harða samkeppni og enduðu að lokum í öðru sæti, gott hjá Gogga Mæk og sædkikkinu sem enginn man hvað heitir.

Buttercup 2 – tveimur meira en ég bjóst við en þar sem að Valur og Svavar Áslaugs hafa eflaust kosningarétt hér þá skilur maður þetta nú svo sem

Haraldur í Skríplalandi 1 – Halli P, þetta var ekki meint til þín en Haraldur og skríplarnir þakka fyrir atkvæðið

Svona fór það nú, þá er það bara nýja könnunin og nú er um að gera að vera dugleg að greiða atkvæði aight.

Þangað til næst…….

Ísland vors fagra land

Þessi pistill er í boði Farfuglaheimilis bænda á Svalbarðsströnd…

Ísland, hvað er Ísland? Jú, Ísland er landið sem við búum í. Landið sem að maður var alinn upp við að væri fallegasta land í heimi, með alla þessa fossa og jökla sem ættu sér engann sinn líka í heiminum. Jú jú, vissulega er Ísland fallegt land og allt það og kannski ekkert skrítið að ferðamenn flykkist hingað til að hjóla á 18 gíra Trek hjólunum sínum í roki og rigningu, hvað er betra en það hmmm. Maður getur ekki annað en vorkennt þessum vesalingum þegar maður keyrir framhjá þeim silast á 3 km/h í vegarkantinum með beljandi rigninguna í andlitinu á meðan maður eykur hraðann á rúðuþurrkunum og hækkar í miðstöðinni. Hálfvitar, þá held ég að maður kjósi nú frekar að liggja flatur á sólarströnd einhverstaðar á Spáni.

Svo eru það allar þessar náttúruperlur Íslands. Sjálfur hefur maður nú ekki séð helminginn af þessu nema á póstkorti. Gullfoss og Geysir, staður sem að allir útlendingar koma við á á leið sinni um landið, sjálfur hef ég aldrei komið þangað. Ég hef heldur ekki komið að Dettifossi eða Hvítserk og hvað þetta heitir nú allt saman. Ég hef reyndar komið í Bláa lónið og synt um í flösu og dauðum húð og sáðfrumum af sveittum allraþjóðakvikindum sem leggja leið sína þangað.
Eitt sinn fór ég hringveginn með félaga mínum, við vorum á mótorhjólum og þetta var allt saman rosalega gaman. Keyrðum þar sem leið okkar lá frá Grundarfirði til Reykjavíkur. Ekki mikið merkilegt á þeirri leið enda vorum við búnir að keyra þetta milljón sinnum. Svo næsta dag var það Reykjavík – Höfn í Hornafirði. Stoppuðum hjá Skógarfossi bara svona til að sýna lit og svo hjá frænku minni á Vatnsskarðshólum við Dyrhólaey. Svo var keyrt austur á bóginn og stoppað á Seyðisfirði hjá Sylvíu systir, man ekki eftir að hafa séð neitt merkilegt þar nema blauta malarvegi sem kallaðis þjóðvegur 1. Svo var það Seyðisfjörður – Akureyri, man eftir skilti sem á stóð Ásbyrgi og Dettifoss. Gaf því nú lítinn gaum á 100+ hraða eftir veginum. Svo var það Akureyri – Grundarfjörður og ekki stoppaði maður mikið á þeirri leið nema til að taka bensín og hvíla inngjafarhendina.
Þegar öllu var á botninn hvolft að þá var það eina sem ég á til minningar um þessa ferð voru 2 bankakvittanir um úttekt upp á 5000 kr. Ein í Landsbankanum á Vík og svo ein í Landsbankanum á Egilsstöðum. Þakka Guði fyrir öll þessi póstkort sem sýna manni nú hvernig þessar náttúruperlur okkar Íslendinga líta út.

Eníveis, þá þarf maður kannski að taka sig á og skoða Ísland aðeins betur, kannski að maður renni að Gullfoss og Geysi fljótlega og jafnvel bara á Þingvelli líka svei mér þá…

Þangað til næst……