Var að koma af Ísland Ítalía þar sem að íslensku jaxlarnir tóku spaghettílengjurnar í nefið 2-0. Eiður og Gylfi Einars með mörkin í þvílíkri stemmingu á Laugardalsvellinum. Rúna tók skrilljón myndir af þessu en ég reikna með að c.a. 42% af þeim verði nothæfar. Hendi myndunum inn um leið og Soffezka er búinn að láta mig hafa valid passwd.
Íslendingarnir gerðu nú Tommanum grikk með því að vinna því að hinn getspaki Tommi hafði tippað á Ítalíusigur á lengjunni ásamt nokkrum öðrum leikjum og til að gera langa sögu styttri þá var Ísland Ítalía eini leikurinn sem var vitlaus. Og ef Ítalalufsurnar “hefðu” unnið þá væri Tommi 28 þús krónum ríkari núna, eeeeen neeeeiiii auðvitað þurftu þeir að spila eins og vangefnar mörgæsir með skitu og gerðu í brækurnar. Íslendingarnir áttu sigurinn fyllilega skilið og maður fylltist þjóðarstollti af því að vera þarna ásamt 20.203 öðrum íslendingum á vellinum 😉
ÁFRAM ÍSLAND OG SVO ER ÞAÐ HM 2006
Þangað til næst……
Snilldar leikur… ánægð með Rúnuna! Hún stendur sig alltaf, þessi elska! Bið að heilsa Aragorn 🙂
AUÐVITAÐ STENDUR HÚN SIG ALLTAF. Skila kveðjunni á folann fyrir þig… ég bið líka að heilsa Jamie 😉