Það er nú meiri mánudagurinn í dag. Enn heldur þetta bévítans Chel$ki að vinna endalaust og bendir nú flest til þess að þeir rúlli deildinni upp eins og skinku fyrst að sjálfir Evrópumeistararnir voru nú ekki mikil hindrun fyrir þá. Steinláu á Analfield 1-4.
En nóg um það. Ný vinnuvika, nýr mánuður fullur af nýjum tækifærum. Eða eitthvað, voðalega er maður eitthvað háfleygur.
Soffi er enn að græja nýju myndasíðuna. Eins og er þá sýnir hún bara brotabrot af myndunum sem eru þarna inni. Það kemst samt allt í lag fljótlega.
Word
Þangað til næst….
Jæja vinur, næsta neikvæða komment um Liverpool og þú getur gleymt launahækkunum næsta árið!! 🙂