Þannig fór um sjóferð þá…
Þáttöku Grundarfjarðar í Visa bikar KSÍ er lokið þetta árið. Við fengum 3 hörku leiki og þetta var bara þræl gaman. Byrjuðum á að slá út baráttuglatt lið Höfrungs frá Þingeyri í vítaspyrnukeppni, Unnum svo Snæfell 4-3 eftir framlengingu og töpuðum svo 10-1 fyrir geysisterku liði Aftureldingar.
Við réðum atvinnu ljósmyndara til að mynda leikinn við Aftureldingu og sem betur fer sést ekki á þeim hversu leikurinn var ójafn 😉
Enda skipta úrslitin ekki máli ef maður er nógu svalur á velli…
myndirnar tala sínu máli
kallinn í hasar
Dabbi frændi að verja vítaspyrnu
Þangað til næst….
öss þetta eru allt myndir af þér .. varstu einn í liðinu? Og hvað á það að þýða að þú sért ekki að gretta þig í skallanum? einn búinn að vera að æfa sig múhahaha…
Á að drepa mann með fótboltatali á þessari síðu? Þér væri nær að tala um Maus… eða fasteignalán.