Nú er HM byrjað og tilhlökkunin sem var í gangi fyrir þessu móti var álíka mikil og vonbrigðin yfir þessum skítaleikjum eftir að mótið er byrjað. Nú er fyrsta umferðin að klárast í dag og þvílíkt safn af hrútleiðinlegum fótboltaleikjum hef ég sjaldan orðið vitni að. Allir að passa sig voðalega, spila varfærnislega og kenna svo nýja boltanum um allt. Það er eins gott að þessir rasshausar fari að girða sig í brók og spila alvöru fótbolta hið fyrsta. Treysti á að Spánverjarnir sýni einhverjar rósir í dag… ef ekki þá eru það bara þjóðverjar og Argentínumenn sem að rúlla þessu upp. Einu liðin sem hafa sýnt skemmtilegan bolta. Djöfuls prump.
Ef allir væru jafn hressir og þessi
Yfir og út.
Hvaða hvaða Ghana spilaði ágætlega og ekki gleyma Ítalíu sem vinnur þetta mót.