Sigurörn og fleiri góðir

Þetta er nú meira fjölmiðlafárið sem fylgir honum Sigurerni vini okkar allra eins og lesa má —HÉR—

Tókum skrepp til Grundó city í gær. Bara rétt svona til að fá okkur að borða og svoleiðis. Reyndar voru Ninni og Dagmar í heimsókn líka og það var nú gaman að hitta þau líka. Gústi bróðir á hækjum eins og einhver gorkúla, var víst eitthvað að leika sér á krossaranum sínum með þessum afleiðingum.

Svo var Sylvía systir að skíra litla kútinn sinn á laugardaginn og fékk hann nafnið Sebastian Óli.

Svo var kella að koma með dagskrá vikunnar fyrir mig… úff.
Á miðvikudaginn verður allsherjar tiltekt fyrir jólin hjá okkur. Svo á fimmtudaginn ætlum við að kíkja á rockstar tónleikana. Og á föstudaginn á að skreyta allt hátt og lágt. Ég fór eitthvað að malda í móinn því mér líst ekkert á að hafa allt húsið rauðglóandi í skærum ljósum í tvo mánuði. En þá kom hún með þessi snilldar rök… En við eigum barn… Skák og mát. Kallinn verður sveittur að skreyta allt á föstudaginn með gulum, rauðum og grænum músastigum um allt hús.

Þangað til næst….

Sædkikk

Ég var að vafra um youtube um daginn og var svona að fletta öllu því sem mér datt í hug. Þá rambaði ég á þvílíku hljómsveitina sem ég fílaði í botn hérna á árum áður. Þetta var væntanlega áður en þið öll sem lesið þessa síðu fæddust. Ég veit ekki af hverju ég fýlaði þessa gríðarlega svölu sveit… líklega af því að pabbi átti alla skonrokk þættina á vídjó spólum eða eitthvað… allavena náði ég einhvernveginn að komast yfir þetta og byrja að fýla þetta. Þegar ég skoða þetta núna þá veit ég ekki af hverju mér fannst þetta fínt… Dæmi nú hver fyrir sig.

Myndband 1:

Þegar ég horfi á þetta í dag þá get ég ekki annað en velt fyrir mér að þetta er löngu fyrir daga brúnkukremsins… Og af hverju er ljóshærða sædkikkið með gítar??? Ætli hann kunni að spila á gítar yfir höfuð??? Svo margar spurningar sem vakna.

myndband 2:

Enn er ljóshærða sædkikkið í gríðarlega mikilvægu aukahlutverki með gítarinn sem hann virðist ekki kunna á. Og svo er líderinn (þessi dökkhærði með brúnkukremið) alveg að massa þetta í sjóliðajakkanum. Fylgist greinilega með tískunni þessi.

myndband 3:

Þarna er líderinn farinn að láta til sín taka á sinthesæserinn af gríð og erg. Og enn er ljóshærða sædkikkið að rembast með gítarinn. Ef þetta er ekki það hallærislegasta sem ég veit um þá veit ég ekki hvað… að mér hafi fundist þetta töff á sínum tíma er alveg gjörsamlega framar mínum skilningi.

Svo verð ég að koma með eitt myndband hérna.. Þetta er svona Modern Talkin okkar tíma…. Dæmi nú hver fyrir sig:

Ég er virkilega að spá í að gera myndband með tölvutónlist og sýnir mig vera að spila FM í gríð og erg. Af hverju ætti það ekki að slá í gegn eins og þessi sænski pappakassi…. Kjánahrollur dauðans.

Þangað til næst…

Questions

Stal þessu af blogginu hennar Dagmar.

Fyllið þetta út í commentakerfið paprikurnar ykkar.

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Crapple

Ég hef alltaf verið á því að apple sé af hinu illa. Hef aldrei viljað eiga macca né nokkuð sem kemur frá þessu fyrirtæki.
En um daginn gerðist ég svo kræfur að fjárfesta í forláta ipod nano. Svaka fín græja, 4gb og minn nokkuð sáttur með þetta. Þessu fylgdi náttúrulega að maður þurfti að ná sér í itunes til að virkja draslið. Allt í lagi með það, búið að taka mig smá tíma að læra á þetta og fikta. Var alltaf mikill winamp maður.
En viti menn, að sjálfsögðu heitir þetta ekki crapple fyrir ekki neitt. Þegar ég kem heim í dag og ætla að kveikja á þessu itunes dóti þá eru öll lögin dottin út. Playlistarnir mínir horfnir og alveg eins og itunes hafi hreinlega verið sett upp aftur. 120 gb af tónlist farið út. Uuuuuuurrrrrrrrrrrrr… Þetta er c.a. 3-4 tíma vinna að hlaða þessu inn aftur.
Ok ok, kannski er ég of dómharður. Það eru afgerandi líkur á að Kristján Freyr hafi verið að fikta í þessu og einhvernveginn náð að skemmileggja þetta. Ótrúlegt hvað svona random click á músinni og ýtingar á einhverja takka á lyklaborðinu geta gert…

Þetta reyndar minnir mig á það að það er í alvörunni til karma. Nú hefur fortíðin komið og bitið mig í rassinn.
Málið er að þegar ég var lítill, líklega á aldur við Kristján Frey að þá átti pabbi minn óhemjustórt safn af kasettum. Þessum kasettum var raðað snyrtilega í hillu og pottþétt flokkað í stafrófsröð líka. Mörg hundruð kasettur sem pabbi lagði blóð svita og tár í að hugsa um.
Semsagt þegar ég var lítill fannst mér mikið sport að taka þessar kasettur og endurraða þeim… á gólfinu… í haug. Ok ok ég var að tæta þær til helvítis, aftur og aftur. Og pabbi minn raðaði þeim aftur og aftur.
Nú er Kristján Freyr að gera það sama við mig. Reyndar bara upgreidað í aðeins nútímalegri mynd. Hann hefur hent öllu út úr itunes þannig að ég þarf að raða því aftur þar inn með tilheyrandi blóti.
Svona er nú lífið skrítið.
Note to self, slökkva á tölvunni eða passwd protekta hana.

Jæja, best að halda áfram að hlaða þessum 78gb sem ég á eftir, inní itunes.

Svo á hann Gústi Ívars afmæli í dag. 45 ára kallinn… En það er nú til lítils að óska honum til hamingju með daginn hérna þar sem að hann er líklega tölvuheftasti maður sem ég þekki. Efast um að hann geti notað reiknivél hvað þá meira. En engar áhyggjur, ég er búinn að hringja í hann í dag og óska honum til hamingju.

Þangað til næst…..

Kominn tími til…

Heyrst hefur…

að Soffi hafi overdósað af sykri um liðna helgi og gert hvern skandalinn á fætur öðrum.


Soffi er hér að kela við ónefndan félaga sinn

að Rúna Jobba sé farin að gera út bát frá Flatey.


Rúna er hérna að leggja af stað í fyrsta róðurinn og stefnan var sett á að ná amk 3 hornsílum

að Maggi Jobba hafi fengið vinnu hjá Grundarfjarðarbæ við að slá grasið hjá Kjarra Jéra


Maggi er hérna að tæta niður illgresið í gríð og erg á nýju Lawnmover 5000 sem hann fjárfesti í

að tríóið 3 í baði séu að slá í gegn á öldum ljósvakans með slagaranum “vá hvað þú ert stífur”.


Félagarnir koma til með að túra um landið í litlu VW rúgbrauði næsta sumar

að Séra Viggi Runna, prófastur við Söðulsholtsprestakall hafi verið nappaður við að láta ungan kórdreng veita sér munnmök.


Hérna er Séra Viggi á meðan allt lék í lyndi

að íbúar Reykjavíkur og neðra breiðholts geti sofið óhultir um næturnar því ný ofurhetja hefur litið dagsins ljós.


Hr Spaghettímassi passar að allir fari að lögum og reglu

að Ninni Dittu sé búinn að stofna sértrúarsöfnuð sem kallast görn sólarinnar.


Ninni sem nefnir sjálfan sig æðstaprest heldur því statt og stöðugt fram að saur mannkyns sé hinn fínasti háráburður

að Tryggvi Hadda sé búinn að opna escort service fyrir fatlaða og að bisnessinn sé rífandi fínn.


Tryggvi er hérna að koma frá Gísla göngutúr með 500 kall í vasanum

að Tommi Jobba hafi farið ansi illa út úr viðskiptum sínum við frosna kótilettu á dögunum


Tommi fékkst ekki til að gefa upp hvað kom fyrir en heimildir herma að hann hafi runnið á frosinni kótilettu fram af svölunum heima hjá sér en það er ekki staðfest

að Þetta ógurlega gengi svífist einskis til að ná sínu fram.


Hérna er gengið nýbúið að kaupa sér bjór á barnum og láta skrifann. uuuuuuuuussssss

Jahá

Þangað til næst….

Veikindaslúbb

Meirihluti heimilisins liggur í veikindum. Kristján er veikur og svo erum við Rúna bæði slöpp, Rúna reyndar eilítið slappari.

En ég vil þakka öllum sem vildu minnast mín í kringum afmælið mitt. Þið eruð frábær.

IKEA:

Ég gerðist svo frægur að fara í þessa djöfulsins búllu þarna í Garðabæ um daginn og þvílíkt og annað eins. Þangað fer ég aldrei aftur ótilneyddur.
Fyrir það fyrsta er maður c.a. 40 mínútur að komast þangað… og ekki á maður nú heima langt í burtu frá þessu. Svo þegar maður fær stæði sem bæ ðe vei var lengst í burtu frá búðinni þá var maður aðrar 40 mínútur að labba að þessu helvíti.
Ekki tók nú betra við þegar inn var komið. Maður hljóp þetta á hundavaði þarna inni en samt var maður hátt í klst að tussast þarna í gegn og samt stytti maður sér leið.
Svo er maður aðrar 40 mínútur að andskotast heim. DJÖFULL.

Hata þessa búllu.

IKEA PRRRRRRRUUUUUUUUUUMMMMMMMMMPPPPPP

Og eitt enn… Já já Man Utd tapaði fyrir Southend… ha ha njótið þess á meðan þið getið þarna púllara skrípin ykkar.

Þangað til næst….