Daddaraddaraaa

Jamm og jæja, Kallinn fór bara á djammið í gær og myndirnar eru komnar inn á mynda síðuna. Þetta var helvíti fínt, byrjuðum á partý heima hjá Heisa og svo var haldið á Players, Nasa, Felix. Steini Jobba fór á kostum eins og endranær. Sérstaklega sú um að ná að pissa útfyrir inní svefnherberginu hans Heisa. Ekki spyrja.

Endaði djammið á 3 næturgestum, einn kvk í stofunni og 3 kk í herberginu mínu. Eitthvað bogið við það aight.

Vaknaði svo snemma til að horfa á Man Utd vinna Asnenal 1-0 með marki frá Páli Skóls. Sniiiiiiilld. Þrennuvonir Arse nal orðnar að engu og næstu mótherjar Utd eru annaðhvort Sunderland eða Millwall. Kemur í ljós á morgun.

Fór svo á mótorhjólasýningu sniglanna. Uuuuussss hvað mig langar aftur í hjól. Djöfull var mikið af flottum hjólum þarna. Fann meira að segja draumahjólið mitt sem er Honda Shadow 1100 árg 2002. Svart og alveg tussu drullu allt of flott helvíti. Ég og Svavar vorum þarna í góðum gír.

Fór svo á Keflavík Snæfell sem fór ekki allt of vel en Snæfellingarnir stóðu sig nú samt vel með Hlyn í broddi fylkingar og Torfa bróðir hans í stúkunni. Þeir taka bara næstu 2 leiki. Klára þetta í Keflavík næst er það ekki.

Rólegheit í kvöld hjá kallinum. Búinn að vera að skutla liði út um allan bæ og reikna með að gera meira af því á eftir þegar mæ bró Ninnster hringir blindfullur og vill fara á Óðal.

Þangað til næst……

Föstudagur til slúðurs

Bjössi Kolla kvartar yfir myndaleysi og segir að bloggið sé ljótt. Hann getur bara étið það sem úti frýs segi ég nú bara og slúður dagsins verður tileinkað honum.

And here goes….

Heyrst hefur…….

Bjössi reyndi og reyndi

að Bjössi Kolla sé að þróa nýjar pikk öpp línur í samstarfi við Ástþór Magnússon.

og reyndi og reyndi og reyndi

að Bjössi Kolla og pikk öpp línurnar hans hafi ekki fallið vel í landann.

Bjössi klórar sér í bibbanum

að bjössi hafi á endanum farið einn heim.

Viggi var steinhissa á þessu öllu

að Viggi Runna hafi verið kærður fyrir ósæmilega hegðun inn á dvalarheimili aldraðra á Hrafnistu um daginn. Sagan segir að Viggi hafi….. tjah förum ekkert nánar út í það.

Sirrý og Viggi tóku á því

að Viggi hafi sama dag tapað fyrir Sirrý sultu í drykkjukeppni sem haldin var á Hótel Afturnesi.

Viggi sló öllu upp í grín eins og honum einum er lagið

að Viggi og Elsie hafi bara hlegið að þessu öllu saman og haldið áfram í lúdó.

Plebbarnir voru sáttir við sitt hlutskipti

að tveir Grundfirskir plebbar hafi verið skildir útundan í partýi á dögunum en gert sér glaðan dag með því að spila “steinn, pappír, skæri” í 6 klst.

Ljóskan var glöð og hýr á brá

að ákveðin ljóskuveiki hafi gert vart um sig á Tálknafirði en lögreglan hafi gripið inn í með viðeigandi ráðstafanir í samráði við almannavarnanefnd Austurlands.

Ædolstjarnan var seinna kærð fyrir atvikið

að ákveðin ædolstjarna hafi veist að kvenkynsaðdáanda sem í sakleysi sínu var bara að biðja um eiginhandaráritun.

Helga smellti einum á ljósmyndarann og fékk túkall fyrir

að Helga HRós sé farin að stunda þá skringilegu iðju að selja mömmukossa í kolaportinu við góðann orðstír.

Heisi var ósáttur við sitt hlutskipti

að hinn tröllvaxni Heisi hafi fengið einn á lúðurinn þegar hann hugðist reka burtu nokkra votta jehóva sem voru búnir að tjalda í garðinum hjá honum.

Flöskurúnk er talin holl og skemmtileg íþrótt

að stofnaður hafi verið flöskurúnkshópur í Grf. Flöskurúnk er ný jaðaríþrótt ætlaður fyrir ljóskur á túr.

Ninni var furðuhress miðað við aðstæður

að Ninni Dittu hafi fengið skattframtalið sitt sent með sms og var að vonum ekki sáttur því það tók hann 39 klst að fylla út skattaskýrsluna.

Gæi var sáttur eftir fyrsta rúntinn

að Gæi nokkur Hadda sé farinn að keyra leigubíl í Grundarfirði í aukavinnu og að hann hafi náð að flytja einn farþega fyrsta kvöldið sem borgaði honum í ullarsokkum, farþeginn var enginn annar en hinn magnaði Gísli Göngutúr.

Tomminn við sína uppáhalds iðju

að Tommi litli hafi verið lagður inn á geðdeild landspítalans vegna of mikils klámmyndagláps. Aðspurður sagðis Tomminn ekki muna eftir neinu en sagðis ekki getað veitt lengra viðtal því hann væri að bíða eftir símtali frá Jennu Jameson.

Big Goj smyr samloku af mikilli list

að Big Goj sé búinn að starta samlokugerð í beinni samkeppni við Gaua litla. Vörur Big Goj bera nafni StóriGauabiti.

Beðið eftir Kastljósinu

að Maggi Jobba og Ninni Dittu missi aldrei af Kastljósinu.

Rokkararnir glaðlegir að sjá

að Rokktríóið Pulsa ætli í Evróputúr í sumar.

Simmi beið þolinmóður eftir klósettinu

að Simmi Ædol goð hafi þurft að bíða eftir klósettinu í eigin íbúð um daginn. Þolinmóður Simminn beið í 57 mínútur þangað til unnusta hans hafði loksins lokið sér af við hægðir.

Lognið í gírnum

að Logni Stormsson sé ávallt í miklu stuði þegar hann klæðist partý-bindinu sínu sem honum áskotnaðist fyrir tilviljum frá Stjána 3000 fyrir 2 árum.

Oddur kampakátur með nýja sjúkdóminn

að Oddur Hrannar hafi greinst með riðuveiki og konan hans sé hæst ánægð með þetta.

Mikil svitalykt

að Rut hafi misst saur þegar Ninni Dittu lyfti höndunum í hennar návist á dögunum. Ninni hafði þá ekki farið í sturtu í 7 vikur þar sem að Ditta hafi alltaf verið að baða hundinn.

Á góðri stund

að gelluklíkan Físur hafi ákveðið að taka upp dresscode þar sem núverandi klæðnaður físanna sé óviðunandi.

Aðdáendurnir þyrptust að henni til að láta smella af mynd með goðinu

að Ofurfyrirsætan og megabeibið Ellen E sé nú stödd hér á landi við myndatökur fyrir nýjustu auglýsingu Diesel ilmvatns. Ellen gaf sér tíma til að spjalla við æsta aðdáendur og gefa nokkrar eiginhandaráritanir.

Soffíó í stellingum

að nærbuxnamódelið fræga Sófíó frá Sýrlandi hafi hösstlað í Hafnarfirði um liðna helgi.

Dabbi vildi ólmur fá koss

að Dabbi Hlíðkvist hafi með vafasömum árangri tekið upp sömu iðju og Helga H að selja mömmukossa. Kossinn hjá Dabba er á markaðsverði eins og er en líklegt þykir að það muni lækka á næstu misserum sökum dræmrar aðsóknar.

Signý þykir sopinn góður

að Signý módelmaskína þoli illa sviðsljósið og sé nú farin að halla sér ískyggilega mikið að flöskunni.

Þangað til næst……

Plataradagur á enda runninn

Þá er þessi 1 apríl búinn og ekki tókst nú neinum að láta kallinn hlaupa apríl í þetta skiptið nema þá helst hann Viktor Helgi litli frændi minn sem plataði mig alveg upp úr skónum í kvöld. Mikið var reynt að gabba kallinn og þá ber helst að nefna moggann, Dabbi ezka og fotbolti.net sem reyndu að gabba kallinn en engum tókst.
Mogginn byrjaði á að reyna að ná kallinum nývöknuðum með einhverri lásí sögu um að Brús Springstín ætti að spila á Nasa í kvöld, giv mí a breik marr, uuuussss hver heldur að trúi svona bulli, þá sérstaklega að Brús Springstín og Bó Halldórs séu einhverjir perlu vinir. Bó er kanski frægur (á íslandi) en svo frægur er hann ekki.

Næst var komið að Dabbanum sem hringdi í mig í hádeginu til að reyna að fá mig með sér á Pítuna í eitthvað ofurtilboð. Hrmpf, auðtrúa ég var náttlega ekkert að spá í það og sagðist því miður ekki komast því ég þurfti að fara í dönsku. Hefði nú líklegast farið ef öðruvísi hefði staðið á, en sem betur fer fyrir mig náði helvískurinn ekki að gabba mig þarna. Minnir mig nú reyndar á aðra sögu sem gerðist út á sjó og inniheldur Dabba og 3 egg. Segi ykkur kannski frá því seinna hehehe mjög fyndið sko.

Svo er það fotbolti.net með einhverja ömurlega frétt um að Lí Sjarp væri búinn að semja við KR. Guð minn góður, eigiði annan betri? Lí Sjarp er nú svo lélegur að hann væri ekki einu sinni gjaldgengur í utandeildarliðið sem ég spila með hvað þá KR stórveldið hmmmm, eða hvað haldið þið?

Best að fara að hvíla sig fyrir stærðfræði prófið í fyrramálið….

Þangað til næst…….

Skeifan góða

…..Og að sjálfsögðu getur Snæfell ekki tapað þegar skeifan góða er á svæðinu, uuuussss, þvílík spenna og þvílíkur leikur. Það er engin spurning um það að maður mætir í keflavík til að fylgjast með Snæfell og skeifunni þar. Þulirnir voru þvílíkt ánægðir með Torfa aka skeifumanninn og eins og allt Snæfells liðið stóð hann sig með mikilli prýði.

Þangað til næst………

Allt að koma

Þetta er allt að gerast. Er búinn að vera að henda inn linkum þannig að ef ég hef gleymt einhverjum þá plíííííís lett mí knów ezkurnar mínar aaaaight.

Breytti um lúkk því hann svansson frændi minn var orðinn eitthvað þreyttur á hinu.

Er í þessum töluðu örðum að horfa á útsendingu frá Snæfell Keflavík og nú rétt í þessu var herra Torfi Alexanderson að láta landsmenn heyra það með lukkuskeifuna frægu í keðju um hálsinn. Jæja, ég ætla að horfa á leikinn.

ÁFRAM SNÆFELL OG ÁFRAM SKEIFAN JE BEIBÍ JE

Þangað til næst…….
Continue reading “Allt að koma”

Bæ bæ blogger

Eins og þið glöggu aðdáendur el ruglukollsins hafið kannski tekið eftir þá hef ég ákveðið að hætta með þennan andskotans blogger smogger sem var alltaf hundleiðinlegur. Soffi ezka búinn að redda mér movable type bloggi sem er skrilljón sinnum öflugra. Nú þarf maður bara að venjast þessu og læra aðeins á þetta áður en maður getur byrjað á fullu. Engar áhyggjur samt því föstudagsslúðrið verður nú samt á sínum stað eins og endranær og hef ég verið duglegur að stela myndum út um allt til að koma með einn feitann fréttapakka þar sem ENGINN er óhultur múhahaha.
Continue reading “Bæ bæ blogger”

Lag dagsins er: The Bitter

Lag dagsins er: The Bitter End með Placebo

Jæja jæja jæja gott fólk og velkomin inn á Ruglukollinn þennan fallega þriðjudag, við ætlum að byrja á því að fara yfir það sem gerst hefur markvert í lífi Tommans undanfarna 4 daga. And here goes:

…… hmmm, ekki var það nú mikið.

Þá verðum við bara að fara yfir það ómarkverða í staðinn, allir tilbúnir.

Föstudagur:

Tomminn klórar sér í hausnum yfir stærðfræðidæmum sem hann skilur ekki bofs í.
Eyðir kvöldinu í tölvunni að gera einhvern andskotann, man ekki alveg hvað en yfirgnæfandi líkur eru á að það hafi verið CM

Laugardagur:

Tomminn mætir í vinnu á frívakt vegna mikilla anna í gulumúsarbúðinni því Elko opnaði búð við hliðiná.
Kvöldið fer í ekki neitt nema þá kannski Tiger Woods og CM

Sunnudagur:

Tomminn fer í vinnu kl 13:00 og stimplar sig út aftur kl 14:45 til að fara að horfa á Man Jú gera 1-1 jafntefli við tilvonandi meistara Asnenal.
Fer á fótboltaæfingu um kvöldið þar sem hann tapar ásamt Ívari Karli. Fúlt fúlt fúlt.

Mánudagur:

Skóli
Týnt debetkort
Læra
Fótboltaæfing
CM
Sofa

Þriðjudagur:

Skóli
Enginn peningur
Ekkert debetkort
Hláturskast í dönskutíma.

Ég hugsa að ég verði að mæta með 4 lítra kaffibrúsa handa honum Gulla mínum sem er búinn að vera svo duglegur að halda manni uppi á kaffi á þessum síðustu og verstu. Sækja um nýtt debetkort takk. Taka út pening líka, já takk.

Landsleikjavika, rokk og ról, vagg og velta og svo keppa í fússboll á morges.

Svo er hún Elsa Fanney grundaragella byrjuð að blogga og að sjálfsögðu fær hún link hjá mér.

Þeir sem hafa séð debetkortið mitt á röltinu vinsamlegast látið lögregluna í Kúbbavogihihihihihi vita eða komið því til skila til mín aight.

Þangað til næst……..