Rugl dagsins er: Miskilningur: Svo virðist sem að stór misskilningur sé í gangi um tónleikana 10 desember. Það er víst ekki breska hljómsveitin Muse sem er að halda tónleikana heldur er það íslenska hljómsveitin Maus sem leikur fyrir dansi. Það voru svekktir plebbar sem Tomminn mætti á Laugarveginum í morgun en þeir höfðu beðið eftir miðunum á Muse frá því kl 14:39 þann 3 nóvember.
Tíhíhíhíhíhíhíhí
Já Guttinn hann Gústav Alex mætti gallvaskur í röðina á Laugarveginum fyrir allar aldir í morgun:
Og náði í 5 miða í stúku og 4 í stæði. Þannig að þið sem eigið hina fjóra stúkumiðana, þ.e. Laugi, Gaui, Dabbi og Ninni, þar sem að þeir eru nú í vörslu Tommans þá gæti verið að þeir myndu hækka í verði ef það selst upp hehehe. Verið því viðbúnir að hósta upp meiri seðlum þegar líður á.
Þessir tónleikar leggjast bara ótrúlega vel í Tommann enda uppáhalds grúppa Tommans þessa dagana.
Þangað til næst……..