Á góðri stund er að byrja í dag og því er mikil og góð hefð fyrir því að græja smá slúður í tilefni dagsins. Annars reikna ég nú ekki með því að það komi neitt hér inn á þessa síðu fyrr en á mánudaginn aight. Reyni að taka einhverjar myndir af hinu ýmsa fólki í vafasömum stellingum.
Heyrst hefur…..
að snillingarnir á Hótel Holti noti nýstárlegar aðferðir við að nálgast kúnnana.
Þessi tiltekni kokkur var hress á því þegar hann flippaði einu snitselinu við
að vertinn í Baulunni sé ansi hreint hress á því þegar kemur að því að afgreiða leðurklædda einstaklinga
Hérna er Kibbi nýbúinn að afgreiða samtök bdsm á íslandi
að hinn treggáfaði Tommi hafi sóst eftir hlutverki sem Tortímandinn sem á að setja upp í Loftkastalanum í haust.
Tomminn þótti ekki alveg nógu mikill vexti fyrir hlutverkið en næs træ ðó
að Rúna Jobba hafi að eigin sögn fengið frábært djobb hjá Volvo í Svíþjóð við að árekstraprófa bíla
Hér er Rúna á 120 km/h rétt að fara að skella á vegg í feiki stuði
að hinir óborganlegu Pétur Jóhann Sigfússon og Kalli Lú séu búnir að stofna fmhnakka gengi dauðans sem sérhæfir sig í að pissa sitjandi
Dúddarnir voru eitthvað fúlir við ljósmyndara þegar fyrsta pissið átti sér stað enda klukkan ekki nema rétt rúmlega 5 um morguninn
að boy-bandið kvartett Áka Leifs séu að meika það feitt í Færeyjum, eru þar í mikilli samkeppni við Brand Enni um söluhæstu plötuna.
Strákarnir hafa selt 43 eintök sem er Færeyskt met
að Pétur Jóhann Sigfússon hafi enn og aftur verið fúll á móti og með puttann á lofti þegar hann reynda að pissa sitjandi með vafasömum árangri
Pétur pissaði í buxurnar öðrum til mikillar skemmtunar eins og sést á meðfylgjandi mynd
að hinn merkilegi Big Goj hafi á dögunum fundið heiftarlega prumpulykt inni á klósettinu hjá sér
Big Goj sagðist ætla að finna sökudólginn í fjöru
að Logni Stormsson hafi fengið sér það all hressilega í glas um daginn að hann gleymdi hvar hann átti heima
Logni var nett slétt flétt blekaður á því
að aðal mótorhjólatöffarar Grundarfjarðar séu ekki svo miklir töffarar eftir allt saman.
Eins og sést glögglega hérna þá eru félagarnir frekar miklir lúðar
að Soffi svali hafi fundið upp nýtt áhugamál
Áhugamál Soffa felst í því að teygja úr sér á hinum ýmsu stöðum
að græðgin geti gert menn geðveika
Signý er hérna aðeins of gráðug kannski
að franska parið Gerard Pique og Monice Le Gelluereni hafi sótt Ísland heim á dögunum og líkað vel
Parið fór og sá Gullfoss og Geysi
að hinn þrotlausa Fanney Dóra hyggi á meira nám og nú sé komið að Stýrimannaskólanum
Fanney er hér að æfa sig fyrir haustið
að höfuðfötin sem fólk notar í Ólafsvík séu skv nýjustu tísku í Bangladesh
Hér er einn Ólsarinn eitilharður með flottustu húfuna á markaðnum
að forsprakki Rokklinganna hafi sést blindfullur á Kaffi Austurstræti um liðna helgi og það hafi ekki fallið í góðann jarðveg hjá Einari Bárðar sem heldur úti Rokklingunum
Eins og sést glögglega hérna þá var Rokklingurinn í mjög vafasömu ástandi
að Rósa Smára hafi gefið skít í allar myndatökur á almannafæri
Rósa er nú þekkt fyrir allt annað en að vera fúl við myndavélar
að kripplingarnir á Kaffi 59 séu engum líkir
Maggi og Begga eru oft á tíðum ansi furðuleg
að hinn óborganlegi Ninni Dittu hafi um daginn skóflað einu kílói af president í aðra nösina á sér og hlotið varanlegan skaða af
Eins og sést hérna er nefið á Ninnsternum orðið ansi stórt
Jæja fólk. Þetta er orðið ágætt í bili. Sjáumst bara öll hress og kát á Góðri Stund um helgina er það ekki, hvort sem það verður rigning eða ekki aight.
Þangað til næst……
heheheh… gott slúður Tommi.. kemur manni í gírinn fyrir helgina! Takk snillingur!
Ég hef ekki gefið út leyfisblað um að þú megir nota þessa mynd úr nýjasta vörulista okkar. Þessi höfuðföt eru registered trademark og ber að meðhöndla sem slík. Það kostaði okkur stórfjár að gefa þetta út og því munum við selja myndirnar og birtingarrétt þeirra. Reikningurinn verður sendur þér, Tómas Freyr Kristjánsson Grundargötu 76, 350 Grundarfjörður. Kærar þakkir Tómas fyrir viðskiptin.
hE HE HE… FLOTTUR Í DAG TOMMI!! Þeir verða hressir á Holtinu he he he