Jólapistill í boði Tomma

Hvað er málið með þessar helvítis sjálfsafgreiðslu bensínstöðvar??? Maður treður kortinu í þetta helvítis apparat. Stimplar inn c.a 5000 kjéll, svo er byrjað að dæla dýra vökvanum á drusluna, og það tekur heila eilífð að dæla þessu helvíti??? En hvað??? En hvað, svo þegar maður nuddar saman ísköldum höndunum af ánægju þegar dælan er komin upp í 4934 kr…. að þá tekur alveg jafn helvítis langann tíma að dæla síðustu helvítis 50 krónunum eins og það tók að dæla 4950 kr…. HVAÐ ER ÞAÐ???

Þangað til næst….

Flæin fökk

Föstudagur í dag, Jólin nálgast hraðar en mella með skitu nálgast kamarinn.

Það er að kólna í veðri hér í reykjavík. Þetta er búið að vera alveg snarundarlegt tíðarfar uppá síðkastið. Ekki óalgeng sjón að sjá Harley hippa bruna upp Grensásveginn og beint í Harley umboðið, væntanlega til að kaupa spes Harley bón á gripinn og svo beint aftur inní skúr þar sem er hamast á tuskunni.

En nóg um það. Er ekki kominn tími á smá slúður hérna á þessum síðustu og verstu…

Heyrst hefur….

að Ninni Dittu sé genginn í sértrúarsöfnuð sem sérhæfir sig í umskurði bænda

Ninni skipaði sjálfan sig æðstaprest í söfnuðinum og er hér að gera sig kláran í vígslumessuna

að Haddi Rutlu hafi ákveðið að ganga í söfnuðinn líka þegar Ninni hótaði honum umskurði í boði hússins.

Haddi slapp samt ekki við umskurðinn

að Rutla hafi svo verið gerður að heiðursumskerara.

Rutla var rosalega montin með vígsluna

að þeir einstaklingar sem reykja of mikið af njóla eiga á hættu að missa það.

Þetta unga fólk ætti að vera öðrum víti til varnar… NJÓLAVARNARRÁÐ

að Maggi Jobba sé nýbúinn að handsala samning um að auglýsa wonderbra brjóstahöld.

Maggi er hérna að pósa

að búið sé að opna portkonuhús í Hafnarfirði

Viðskiptin hafa ekki alveg blómstrað eins og búist var við

að Tommi Jobba hafi náð að sigra guttann sinn í magaæfingakeppni 4-3

Tæpt var það en rétt hafðist samt

að sumir séu gráðugri en aðrir þegar kemur að innbyrðun matvæla og þessháttar vara

þessi flaska sást aldrei aftur

Þangað til næst…..

Fimmtudagur

Nú er Ninni 24 ára og eins dags gamall, til hamingju með það Ninni minn, verst að ég átti ekki aðra tippamynd af þér til að deila með öllum.

Annars er bara afskaplega rólegt í vinnunni. Snillingurinn ég álpaðist til að breyta tölvunni minni í ryksugu í gær.
Málið er það að mér áskotnaðist nýtt skjákort sem að ég bætti í ofurtölvuna mína. Þetta var 256 mb Nvidia 6800 kort PCIe fyrir þá sem hafa vit á því. Svo plögga ég því í og ekkert ves fyrir utan að tölvan mín heimtar meira rafmagn. Kallinn klórar sér í hausnum yfir því að ofur Dell vélin mín höndli ekki eitt ofurskjákort ásamt 3 hörðum diskum. Daginn eftir heyri ég í strákunum upp á verkstæði sem koma mér á þá lausn að best sé að fá stærri aflgjafa. Jújú, ég panta eitt svoleiðis kvikindi af stærstu sort. 520 watta pwr supply með bláu ljósi og alles. Svo fer ég með þetta heim og tengi allt draslið í góðum gír, kveiki á vélinni… og eina sem gerist er að örgjörva viftan fer á hyper snúning og lætin eftir því, eins og í gamalli nilfisk ryksugu. Kallinum bregður náttúrulega nett við þetta og prófar að tengja gamla spennugjafann aftur við vélina eftir að hafa ráðfært sig í símann við tæknimenn. Svo þegar ég er búinn að tengja gamla 350w dell spennugjafann er bara sama sagan. Örgjörvaviftan á fullt.
Kvöldið ónýtt, dagurinn í dag ónýtur. Vélin liggur á borðinu á verkstæðinu… og ég sem hélt að ég væri skítsæmilegur tölvuhjassi.. eeeen neeeiii UUUUUUUUUUUURRRRRRRRRRR

Þangað til næst…..

Smá copy peist af því sem er í gangi….

Setjið nafnið ykkar í comments og þá geri ég eftirfarandi!!

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag og/eða bíómynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð eða lykt minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig

Koma svo allir með….

Þangað til næst…..

Steini Amli

Já hann Steini Jobba á afmæli í dag…. Til hamingju Steini.

Annars er ég sjálfur búinn að bíta í mig að ég ætla ekki að raka mig fyrr en Man USA vinnur næst. Það verður vonandi fljótlega því annars verð ég eins og Chewie í næstu viku.

Svo vann Inter AC í gær 3-2 hell je.. ekkert sem jafnast á að vinna AC nema þá helst að vinna Juve… en það gerist bara svo sjaldan.

Þangað til næst….

BREAKIN NEWS

—BREAKING NEWS—

Manchester United crashed out of Europe…

Jeje svona hljóma flestar íþróttasíður í dag. Enda að sjálfsögðu stórfrétt þegar svona gerist. Ekki það að þetta hafi komið manni svo mikið á óvart. United ekki búnir að geta blautan skít í allan vetur. Mega teljast heppnir ef þeir enda sísonið með deildarbikarinn, en ég er ekki svo bjartsýnn.

Eina góða við leikinn í gær var að Darren Fletcher kom ekkert við sögu. Samt var andleysið algjört og það er eitthvað mikið að. Ferguson búinn að missa það??? Kanski, mér finnst að það sé kominn tími á nýjann mann í brúna. Jú jú, Fergie (ekki í black eyed peas) er búinn að gera stórkostlega hluti með þetta lið en hans tími er bara liðinn. Ég meina, maður sem er með Darren Fletcher og John O’Shit í byrjunarliðinu leik eftir leik sama hversu lélegir þeir eru, er greinilega búinn að missa það. Þessir svokölluðu ungu “stjörnur” sem eiga að halda uppi heiðri United á komandi árum eru einfaldlega bara meðalmennskan uppmáluð. Hið augljósa dæmi er að sjálfsögðu Fletcher vinur minn, drengurinn er svo lélegur að það er bara sorglegt.

En nóg um það. Þið sem hafið engan áhuga á fótbolta biðst ég innilegrar velvirðingar á þessu, ég bara varð að fá að pirrast einhversstaðar.

Þangað til næst…..

Samtal við yfirmann

Ásgeir Ásgeirsson yfirmaður minn hafði samband við mig í kvöld á MSN og sendi mér þessa mynd: (smellið á hana til að stækka)

Svo kemur samtalið:

Ásgeir “Become the water my friend” says:
tommi
Tommster says:
jjjeeeeeeeeeeessssss
Ásgeir “Become the water my friend” says:
bara sýna þér hvað gerist ef þú dissar mig
Ásgeir “Become the water my friend” sends:
Open(Alt+P)
You have successfully received C:\Documents and Settings\Admin\My Documents\My Received Files\Photo34.jpg from Ásgeir “Become the water my friend”.
Ásgeir “Become the water my friend” says:
hrrhrhhr
Tommster says:
ertu að sparka í gaur sem er með svarta beltið??
Ásgeir “Become the water my friend” says:
jebb
Tommster says:
og er hann 12 ára???
Ásgeir “Become the water my friend” says:
nei 22
Tommster says:
af hverju er hann með svart belti en þú bara rautt??
Ásgeir “Become the water my friend” says:
búin að æfa í 8 ár
Tommster says:
þú ert 39
Ásgeir “Become the water my friend” says:
shut the f234234
Tommster says:
hehehehe
Ásgeir “Become the water my friend” says:
“#$”#$”#$” up
Ásgeir “Become the water my friend” says:
heehe

Ég veit ekki með ykkur en ég myndi segja að yfirmaðurinn væri….

OWNED

Þangað til næst…..

Sjeikenabeibená

Fyrsta hljómsveitaræfing Kvaðratrótarinnar var haldin um helgina, allavena sú fyrsta í langan langan tíma, líklega er þetta önnur æfingin allt í allt. Þetta er allt á réttri leið þó að það taki smá tíma. Reyndar var Blobbi fjarri góðu gamni en við Soffi náðum þó að spila saman svona eins og eitt lag. Heimsfrægðin bíður á næsta leiti, ég bara finn það á mér.

Ég semsagt kíkti vestur, enda sakna ég Rúnu minnar og Kristjáns litla voðalega mikið. Svo var líka allt í rusli í íbúðinni og ekki mikið stuð að hanga þar. Ég verð nú samt að redda þessu áður en englarnir mínir koma heim, einhverjir sjálfboðaliðar??? (áhugasamir láti vita í commentakerfið).

Það var nú ekkert alltof gaman að koma heim, af einhverjum ástæðum hafði ég gleymt einu stk grjónagraut í potti á eldavélinni. Það var frekar súr lyktin þegar ég skreið hérna inn seint á sunnudagskvöldið, andskotinn. En það er nú allt í góðu núna… lyktin farin og svona hrmpf.

Það hafa hrúgast inn linkarnir hérna til hliðar, enda fullt af liði sem maður vissi ekki að bloggaði, Dabbi frændi er nú búinn að vera einhver skápabloggari síðan í sumar og Sigga konan hans enn lengur. Jóhanna frænka er jú þarna sem og Dagný hans Magga. Að sjálfsögðu fær allt þetta heiðursfólk link hjá kallinum.

En ég get ekki bullað lengur, ég er bissí við að hanga einn í íbúðinni og flokka naflakuskið.

Þangað til næst…..

It’s Friday I’m in love

Föstudagur eina ferðina enn, ætli maður reyni ekki að koma með eitthvað gott. Viggi bauð kjellinum í mat í gær. Ægilega grand á því með purusteik og brúnaðar kartöflur, ég sé sjálfan mig í anda vera að brúna kartöflur jahérna, góður Viggi.

Heyrst hefur….

að Harry Potter (33) hafi mætt á klakann hellaður á því.


Tilefnið er að sjálfsögðu frumsýning fertugustu Harry Potter myndarinnar, Harry Pothead og homminn í kistunni

að hin árlega keppni í rúnkaþoni hafi farið fram á Sólon


Hér sést sigurvegarinn Rúnki Jónsson (19) í sigurrúnkinu

að Viggi Runna (41) hafi á dögunum látið gamlann draum rætast þegar hann skellti sér í stúdíó með óþekktri söngkonu og tók upp ástardúettinn “allt á floti allstaðar” við gríðarlega litlar undirtektir.


Smáskífan kemur út rétt fyrir jól og verður seld í takmörkuðu upplagi á netaverkstæðinu í Grundarfirði

að Herra Ísland árið 2005 sé engin annar eeeeeen


Jósafat Þjóðólfsson (16) frá Syðri Hörgsá í Dalasýslu. Til hamingju Jósafat

að Logni Stormsson þurfi sérstök gleraugu þegar hann horfir á bláar myndir


Logni (58) er hér í góðum gír að græja sig í glápið

að Gæi Hadda (16) hafi fest kaup á nýrri vél í bílhræið sitt


Gæi er hérna að fínstilla gripinn

að Dabbi Wium hafi ákveðið að byggja sér nýtt hús vegna of mikils íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu.


Dabbi (39) er hérna að leggja lokahönd á kofann

að Rutla og Hrefna hafi á dögunum stofnað samtök til heiðurs illa klæddum bændum


Samtökin telja 3… Rutlu (14), Hrefnu (15) og Gísla Göngutúr (112).

að Ninni Dittu hafi verið nappaður uppá elliheimili við ósiðlega iðju


Ninni (12) og vinkona (102) sem vildi ekki láta nafn síns getið, skammast sín ekkert fyrir hegðun sína.

að systurnar Anna og Ellý hyggi á framleiðslu á nýjum raunvöruleikaþætti sem byggður verður upp á reynslu Önnu við að vinna á Kristjáni IX í denn


Anna (30) og Ellý (21) eru báðar gríðarlega spenntar yfir þessu verkefni

að Ellen E (16) stefni á farsælan feril sem köntrýsöngkona.


Ellen ætlar víst að flytja á Skagaströnd og er búin að fá leigt herbergi hjá sjálfum köntrýkóngnum Hallbirni (164)

að Big Goj hafi farið í brúnkumeðferð hjá Gillsenegger


Árangurinn hjá Gaua (42) lét ekki standa á sér

að Soffi hafi tekið að sér hlutverk Jesús krists í nýrri uppfærslu á Jesús súperstjarna í samkomuhúsinu


Soffi (15) var 6 mánuði að safna þessu skeggi

að Rúna Jobba ætli að sækjast eftir hlutverki Júdasar í þessu verki


Rúna (13) var búin að næla sér í 2 eintök af handritinu

Jæja, þetta er fínt í bili. Verið svo duglegri að commenta fólk.

Þangað til næst…..