Góður dagur í dag

Þessi dagur var með þeim betri verð ég að segja. Fyrir það fyrsta þá leyfði sæta góða konan mín mér að sofa út í morgun. Hún tók Kristján Frey með sér í ræktina og ég náði að kúra alveg til kl 11. Þá komu þau tvö heim og ég var rekinn í sturtu því við vorum á leið í afmæli hjá Adam Inga.

Kom svo heim rétt rúmlega 2, kveikti á sjónvarpinu, var rétt búinn að horfa í 1 mínútu þegar Wayne Rooney kemur United í 1-0 á móti Bolton. Snilldar leikur sem endaði með 4-0 sigri Man Utd og Rooney með þrennu.

Svo vorum við Kristján bara heima að dunda okkur á meðan Rúna var úti að leika sér. Svo kom Rúna heim og fór að elda þessa líka þvílíku steik á meðan ég horfði á mína menn í Inter vinna AC Milan 4-3 í einum geðveikasta leik sem ég hef horft á lengi. Sjiiiiittttt.

Svo endaði ég kvöldið á að fara með Soffa og Rutlu á Jackass 2 og jesús minn hvað ég hló mikið. Ég er með fokking harðsperrur í maganum eftir þetta. Þetta er ógeðslega, ógeðslega fyndin mynd. Mæli með henni…

Þangað til næst….

Up the Irons

Við Frímmi fríski erum með tipp hóp. Þetta felur í sér að Jón Frímann hringir amk einu sinni í viku í mig og við förum saman yfir seðilinn. Þetta ferli felur í sér að við ræðum ensku deildina, förum yfir stöðu liða og ákveðum svo hvað við ætlum að setja á þetta. Svo sendi ég seðilinn með tölvupósti til Grundarfjarðar þar sem að Gummi Gísla móttekur og telur saman stig.
Ég held að við Frímmi eigum eftir að massa þetta í vetur.

En nú í vikunni hringdi Frímann ekkert í mig. Ég var farinn að hafa áhyggjur af kallinum þannig að ég fór á http://www.grundarfjordur.is og ath hvort að Hringurinn væri ekki örugglega kominn í land og viti menn, þar lá dallurinn en enginn Frímann búinn að hafa samband. Ég hringi náttúrulega með það sama og ath með stöðu mála, hvort að hann væri farinn að halda fram hjá mér eða eitthvað… hnuss, en þá var hann bara svona busy. Svona er nú ástin skrítin.

Svo datt ég inní skrítna íþróttagrein á Sýn áðan. Pro Bull Riding. Geðsjúkir kúrekar reyna að tolla á brjáluðum bola í 8 sekúndur…. Þetta er snilldarsjónvarp, snilldarsjónvarp segi ég, ég er dolfallinn.

Næstum því jafn dolfallin og þegar ég heyrði þetta lag í fyrsta skipti..

Þangað til næst….

2-0

Nú er kallinn allur að braggast og er farinn að geta notað lyklaborðið á svona nokkuð eðlilegan máta.

Lokahóf Vatnsberanna var á laugardaginn og það var bara svona helvíti fínt. Búinn að henda inn myndum af ósköpunum sem og einhverju fleiru sem var í pípunum.

Svo voru það náttlega Man Utd sem unnu LFC 2-0 í gær. Það var SWEEEEEET

Kem með eitthvað dýpra þegar sá gállinn verður á mér.

1-0

2-0

Þangað til næst….

videogláp og volæði

Nú er komin rúm vika síðan ég var í þessari bévítans aðgerð og ég er ennþá tussu illt í hendinni. Ætlaði að vera fokking harður og hætta að taka verkjalyf en það dugði í c.a. hálftíma því þá var jaxlinn farinn að emja yfir verkjum. Þetta er samt allt á réttri leið og ég reikna með að tussast í vinnuna fljótlega, enda kominn tími til. Ef að Rúna getur hjálpað mér í bað og að raka mig að þá er ég gút tú gó, þ.e. ef að ég get mætt í joggingbuxunum í vinnuna, efast um að ég geti farið í gallabuxur eða einhverjar álíka buxur út af skurðinum á mjöðminni… en það kemur í ljós.

Á meðan ég lá uppdópaður í Grundarfirði þá náði ég að komast yfir talsvert mikið af gláp efni sem hafði farið fram hjá mér og nú mun ég fara yfir það svona í rólegheitunum.

Band of brothers:
Horfði á þessa seríu og þvílík snilld. Djöfull flott hjá Spílberg að gefa svona út. Hafði áður séð einn og einn þátt en það er miklu svalara að horfa á þetta allt í einu. Sjá herför Easy company um frakkland og inní þýskaland. 8 ræpur af 10 mögulegum

Black Books
Dylan Moran og Bill Bailey fara á kostum sem Bernard L Black og furðulega sædkikkið hans hann Manny. Ógeðslega fyndnir þættir. 9 ræpur af 10 mögulegum

Lucky nr Slevin
Flott ræma sem kemur á óvart. Virkilega töff mynd. 8 ræpur af 10 mögulegum

The long weekend
Fyrirsjáanleg ræma með Suck me beautyful fíflinu úr american pæ. Alltílagi stöff en mikið notast við fyndnar klippur sem maður hefur séð ótal oft á netinu. 5 ræpur af 10 mögulegum

Billy Connolly two night stand
Snillingur hann Billy Connolly. Lyfti mér upp á þungum degi. 8 ræpur af 10 mögulegum

Jarhead
Íraksstríðið 90, Jake Gyllenhal leikur nautheimskan strákling sem fer í stríðið og er við það að missa það af því að hann fær ekki að skjóta neinn. Lala. 6 ræpur af 10 mögulegum

16 Blocks
Bruce Willis leikur gamlan over the hill, haltan og drykkfelldan löggukall sem fær samviskubit á háu stigi fyrir að vera svona spilltur. Tekur að sér að flytja negradurg nokkrar húsalengdir og er næstum því drepinn við það. mellufínt svosem. 7 ræpur af 10 mögulegum

Þangað til næst….

Sjúkrahús

Fyrir helgina hafði ég aldrei á ævinni legið á sjúkrahúsi… hjúkkan sem tók á móti mér var líka nokkuð snögg að átta sig á því. Svona um það leyti þegar hún rétti mér þröngu hvítu asnalegu spítalanaríurnar og sá svipinn á mér þegar ég stundi vandræðalegur upp “á ég að fara í þetta???”

Þetta byrjaði allt á föstudagsmorguninn kl 8 þegar ég mætti með kvíðahnút í maganum niður á Landsspítala. Ég gaf mig fram við hjúkkunar, var vísað á stofu 7 þar sem ein hjúkkan kom með outfittið fyrir mig. Rétti mér leppana og sagði að ég gæti skipt um föt inni á klósetti. Ég fer inná klósett og strípa mig niður. Klæði mig í þessar líka ljótu brækunar, asnalega hvíta sokka og forljótann frotte slopp sem by the way átti að snúa öfugt.
Kem svo eins og hálfviti út og leggst beint í rúmið. Við tók löng bið og nokkur viðtöl. Kl 10:30 kom hjúkkan með 2 verkjatöflur og eina róandi fyrir kallinn svo kl 11:00 er mér sagt að fara að pissa því nú væri komið að þessu.
Síðasta sem ég man er að ég leit á kl á preppstofunni sem var 11:06, svo var ég svo stressaður að ég þurfti að pissa aftur. Fékk að pissa í flösku liggjandi á bekk eins og eitthvað fífl. Svo rámar mig að ég hafi fengið svona súrefnisgrímu yfir andlitið og meira man ég ekki…

Svo veit ég ekki af mér fyrr en ég rumska á Vöknun. Þar koma strax aðvífandi 2 brosandi hjúkkur, spyrja hvort mig verki eitthvað… eru ekki búnar að sleppa orðinu þegar önnur þeirra rekur sprautu í æðalegginn á hendinni á mér og sprautar… og þvílík vellíðan sem fylgdi á eftir, verkirnir hurfu og það birti til í stofunni og gott ef fuglarnir fóru ekki bara líka að syngja, aaaahhh morfínið var að virka. Svo mátti maður ekkert kveinka sér án þess að þessar elskur voru komnar með sprautuna góðu.

Þegar ég kem niður á stofu seinnipart föstudags er ég uppdópaður, ekkert búinn að éta síðan á fimmtudagskvöld og hálf sloj.
Hjúkkurnar þar byrja á að koma með ristað brauð, mjólk og einhvern skrítinn dall. Ég komst að því 14 sekúndum síðar til hvers þessi dallur var… þegar ég var búinn að taka einn mjólkursopa fer eitthvað skrítið að gerast í maganum á mér. Ég þríf þennan dall úr höndunum á þeim og gubba all hressilega í hann. Ekki var nú mikið étið í þessar lotu. 10 mín síðar gat ég staðið upp og skrölt á klósettið. Þar rétt náði ég að klára að pissa áður en næsta ælugusa spratt fram úr munnvikunum á mér.
Það má svo geta þess að ég var með gipsi á vinstri hendinni og sáraumbúðir yfir vinstri mjöðminni á mér. Ég var nefninlega skorinn upp á mjöðminni þar sem lítil beinflís var fjarlægð og sett í hendina.
Eftir þetta æluævintýri tók ég eftir að sáraumbúðirnar á mjöðminni voru orðnar ansi rauðar. Sárið hafði þá rifnað upp í þessum ælulátum. Frekar nasty sjitt.

Restin af helginni leið í nokkurskonar móðu enda var ég mjög mikið á morfíni. Ég fékk að fara heim í gærkvöldi og nú er Soffi minn að hugsa um mig þar sem að Rúna er hinu megin á landinu í einhverri bévítans námsferð. Svo er hann Steini líka seigur að snatta í kringum rassgatið á mér enda er ég nú ekki líklegur til afreka svona uppdópaður af morfíntöflum og paratabs.
Enda ætla ég að tussast vestur til Grundarfjarðar að láta familíuna stjana í kringum mig fram yfir helgi.

Svo á hann Maggi Jobba afmæli í dag, til hamingju Maggi

Afsaka allar stafsetningarvillur en þetta er mestmegnis skrifað með hægri hendinni.

þangað til næst….

Aðgerð

Á eftir er ég að fara í einhverja bévítans aðgerð til að láta laga hendina á mér síðan ég handleggsbrotnaði hérna um árið. Þetta leggst illa í mig helvítis.

Skrifa eitthvað næst þegar ég get skrifað eitthvað eight

Og það eru komnar inn hundleiðinlegar fótboltamyndir.

Capish

Þangað til næst…. fokk sjitt

hólí crapp

Við frændur erum komnir aftur á klakann. Það var svolítið ljúft að anda að sér bensínmettuðu loftinu á flugvellinum. Aaaaahhhh. Við tók kaldur veruleikinn þegar við uppgvötvuðum að Soffi ezzka hafði sofið yfir sig og gleymt að ná í okkur. En við komumst samt heim að lokum og það var ljúft að leggjast í man utd sængurverin mín.

En þetta var samt svakalega fín ferð. Við lentum í Manchester á föstudagskvöldið og byrjuðum á að tékka okkur inn og röltum svo niður í printworks. Fórum á Hard Rock og fengum okkur burger og bjór. Fórum svo bara snemma heim.

Laugardagurinn byrjaði á traditional english breakfast á hótelinu. Í kjölfarið var hlaupið á klósettið til að tefla við páfann enda beikon, egg, pylsur, steiktir sveppir og olíulöðrandi kartöflur ekki það besta í magann svona snemma dags.
Eftir klósettferðina far farið á Old Trafford og komið við í Megastore, Visa fékk að finna fyrir því þar. Svo kíktum við í Lowry outlet mall og versluðum aðeins meira.
Þegar við vorum búnir að versla af okkur rassinn og kíkja í imperial war museum var farið á Bishop Blaize og horft á einhvern skítaleik með Middlesbrough. Þar helltum við okkur fulla, tókum taxa heim, ældum í blómapott og fórum svo á djammið. Hápunktur kvöldsins var þegar ég vann mér inn plakat af David Beckham með því að skora skeitin inn í einhverjum fótboltaleik. Það má svo geta þess að Dabbi vann ekki neitt því öll hans 3 skot fóru eitthvert annað en þau áttu að fara.

Sunnudagurinn byrjaði í einhverri bévítans þynnku hjá undirrituðum. Gat gúllað í mig einni ristabrauðsneið með smjöri í mörgunmat á meðan Dabbi tók beikonpakkann á þetta. Enda þurfti hann á klósettið fljótlega.
Svo skelltum við okkur bara á völlinn, fengum brilliant sæti alveg ofan í grasverðinum á Old Trafford. Vorum 6 sætaröðum frá vellinum og dunduðum okkur við að telja flösurnar á Alex Ferguson.
Snilldarleikur sem var algjör einstefna að hálfu United sem unnu þó bara 2-0, hefðu átt að vinna amk 5-0. Ronaldo með STÓRLEIK og Solskjaer með bæði mörkin.
Um kvöldið var bara chillað á Hard Rock og rölt eitthvað smá.

Mánudagurinn sem er lengsti dagur í lífi mínu byrjaði á beikon morgunmat og klósettferð.
Svo var bara farið og hangið í Arndales allan helvítis daginn. Hittum reyndar á Disturbed árita diska og að sjálfsögðu splæsti maður í disk og lét kappana árita. Flottir tittir þar á ferð.
Fórum loks á flugvöllinn kl 7 og tékkuðum okkur inn. Þar var einhver kerlingarálft sem talaði með einhverjum manchester hreim, og spurði hvort við værum með einvherja vökva eða krem, eitthvað fór þetta framhjá manni og ég sagði bara nei, þó að ég væri með snyrtiveskið með mér í handfarangri. Fer bara eins og fínn maður í tollskoðum. Byrja náttúrulega á því að gleyma að taka úrið af mér og járnkortaveskið mitt þannig að allt fór að pípa eins og Bin laden sjálfur væri mættur, þjóðvarðarliðið fór í viðbragðsstöðu á meðan tollverðirnir fjarlægðu skó og jakka þessa illvíga afbrotamanns og leituðu á honum hátt og lágt. Fékk sem betur fer að vera í buxum og bol ennþá. Svo er manni ýtt áfram að næsta tollverði sem tekur sig til við að leita ofan í bakpokanum mínum, finnur þar rakspírann minn, tannkremið mitt, hárgelið mitt og linsuvökvann sem eru víst stórhættuleg efni og kominn á bannlista allstaðar í heiminum. Mér var gert að skilja þetta eftir hjá honum ellegar að fara ALLA leið til baka og tékka þetta inn aftur. Ég sagði honum á góðri íslensku að éta það sem úti frýs, brosti svo vandræðalega til hans og tók hálftómt snyrtiveskið, klæddi mig í skóna og staulaðist áleiðis. Hnuss. Ég vona að hann fýri þessum stórhættulegu vökvum og kremum þar sem sólin skín ekki.

Myndir koma inn síðar.

Þangað til næst….

Manchester here I come

Æm off

Farinn til tjallans, skil konu og barn eftir í búi. Tek Dabba frænda með. Reikna með að súpa á nokkrum köldum, kíkja í mótorhjólabúð (þar sem að ég má ekki eyða neinu), fara í Nike outlet, þvælast og svo síðast en ekki síst fara á Old Trafford. Ég bið ykkur vel að lifa.

Það eru komnar nýjar myndir inná síðuna hans Kristjáns og myndasíðuna mína.

Þangað til næst….

Að pakka

Tannbursti… tjékk
Man Utd treyja… tjékk
góðir skór… tjékk
fullt af sokkum og nærbuxum… tjékk
visa kort… double tjékk
sími… tjékk
myndavél… tjékk
flugmiði… tjékk
vegabréf… tjékk
mcdonalds ofnæmispillur… í athugun
nýja david beckham jakkann… tjékk
mynd af Dabba (ef hann skildi týnast)… þarf að fá svoleiðis hjá Siggu
b-vítamín… why?
season all… tjékk
græna kortið… neee
mp3 spilara… tjékk
man utd snyrtiveskið mitt… tjékk

Ef það er eitthvað meira þá bara gleymi ég því… hell je

En ég er að fara eftir 2 daga kúkalúka densing læk a meiníak

Þangað til næst…