Að leggja hland undir fót

Nú eru aðeins örfáir dagar þangað til að ég og Dabbi frændi leggjum af stað til Manchester þar sem að megintilgangur ferðarinnar verður að sjá Man Utd etja kappi við Newcastle brown ale. En miðað við gengi okkar manna upp á síðkastið er líklega hentugra fyrir okkur að sitja inná hótelherbergi og spila lúdó á meðan leikurinn er í gangi.

En allavena, góða ferð fyrir mig.

Þangað til næst….

Opið bréf

Róbert Marshall er mjög svalur maður. Svalir menn eru ekki á hverju strái og þar af leiðandi vill hinn saurþjappandi almúgi eins og ég, líta upp til svona svalra manna eins og Róbert Marshall…
Nr 1, hann heitir í höfuðið á magnarastæðu
nr 2, hann spilar á gítar
nr 3, hann er tengdasonur Grundarfjarðar

Þar af leiðandi ætla ég líka að skrifa opið bréf…

Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar

Kæri Jón Ásgeir

Ég er bara ósköp venjulegur maður sem býr í blokk í Breiðholtinu með konu minni og barni. Ég á sjónvarp sem mér áskotnaðist fyrir nokkur og jú, ég borga af Stöð 2, Sýn og Bíórásinni. NFS er eitthvað sem ég gef voðalega lítinn gaum og mér finnst hálf skrítið að Norðurljós skuli standa í því að reka svona batterý, einu skiptin sem að maður horfir á þetta er þegar fréttirnar eru á stöð 2, þ.e. ef að það er ekki verið að sýna fótbolta. Þetta kemur væntanlega aldrei til að ganga upp að borga fólki fyrir að röfla einhverja steypu á daginn þegar flestir eru að vinna. Hver horfir á það??? Það er skiljanlegt að þetta gangi úti í hinum stóra heimi eins og Sky og CNN en að ætlast til að þetta reki sig í 300 þúsund manna byggðarlagi er bara grín. Notaðu frekar peningana til að lækka stöð 2… eh eða bara sýn. þá væri amk ég sáttur, og væntanlega Einar frændi minni líka.

Virðingarfyllst Tómas Freyr Kristjánsson

P.S geturðu nokkuð lánað mér 5 millur þar sem að Subaruinn minn árg 96 keyrður 197 þús er að enda kominn, og mig langar í nýjann bíl. Ég get borgað þér til baka á c.a. 60 árum með 0,001% vöxtum.

Svo á alvarlegri nótum… ég hvet fólk til að taka sér 5 mínútur og lesa —ÞESSA— frásögn. Þetta er sláandi þótt ekki sé meira sagt.

Þangað til næst….

Góður Tommi

Ég var helvíti seigur í gær. Var svolítið sloj og þreyttur en fyrr má nú helvítis vera. Rúna mín var búin að græja grjónagraut og með allt klárt þegar kallinn kemur heim. Fínt mál. Ég borða með familíunni, horfi á fréttir og fer svo með guttann inn í herbergi til að svæfa… Það vildi bara svo til að við feðgarnir steinsofnuðum saman kl átta. Ég ranka við mér um níu leytið til að senda Soffa litla sms um að ég komist ekki með honum í bíó, tannbursta mig og fer svo bara í bælið. Ranka svo við mér kl sex þrjátíu í morgun alveg eiturhress… Úff hvað ég svaf mikið, kannski þurfti ég á þessu að halda, hver veit. Ætla samt að reyna við bíóið aftur í kvöld.

Svo á hann Hörður Pálsson stórvinur minn, stórafmæli í dag. Árin orðin heil 30. Til hamingju með daginn kallinn minn.

Reynið að finna Hödda á myndunum (Hægt að stækka), kallinn er alltaf þessi svali í Ghostbuster jogging gallanum

Þangað til næst….

Djöfull

Hefur einhver séð nike gervigrasskóna mína??? Voru síðast notaðir í æfingaleik snemma í vor, gott ef það var ekki á móti Léttismönnum. Þeir eru silfraðir og bláir og úbersvalir. Gæti örlað á smá sveittri táfýlu. Finnandi vinsamlegast komdu þeim til mín, þeirra er sárt saknað þar sem að adidas tútturnar mínar létu mig fá hælsæri í boltanum í gær.

Þangað til næst….

Ótrúlegt svekkelsi

Við í Vatnsberunum vorum að keppa í gær, um þann leik er hægt að lesa á Vatnsberasíðunni en þessi leikur endaði 5-5. Ef við hefðum tussast til að vinna leikinn þá hefðum við komist í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins þar sem að liðið í 3 sæti tapaði sínum leik. Ef af því að við gerðum jafntefli þá eru liðin í 3, 4 og 5 sæti öll með 20 stig. Við erum semsagt í 4 sæti og markamunurinn hjá okkur og FC Reyni (3sæti) er eitt helvítis mark. Við vorum einu fokking marki frá því að komast í úrslitakeppnina. Dauði og djöfull. Maður var nokkuð sár og svekktur í gær þegar okkar leikur kláraðist en þið trúið ekki vonbrigðum mínum þegar ég las úrslitin úr leik FC Reynis. Það hefði svei mér þá verið skárra ef að þeir hefðu bara unnið sinn leik og það mál úr sögunni. Þetta er ennþá meira svekkjandi fyrir okkur. FOOOOKKK SJITTT TIITTTS KÖÖÖÖÖÖNNNT.

En ég náði samt að setja eitt kvikindi á nokkuð nettan hátt en úfff hvað ég er fokking svekktur.

Staðan í utandeildinni er —HÉR—

Þangað til fokking næst…

Premier Pro

Nú er ég búinn að vera að fikta í þessu merkilega forriti Premier Pro og ég er alveg að klepra á þessu. Þvílíkur tími sem fer í þetta helvíti. Spurning um að láta syndarann græja þetta bara. Enda ekkert nema myndir af honum þarna sem maður þyrfti nú að klippa út hehehe.

Ég er semsagt að klippa til myndir frá Mallorca ferðinni góðu sem var farin í vor. Ef að ég fer eitthvað að fikta í þessu að ráði þá stefnir í fleiri harða diska inná heimilið… úff. Hvað ætli konan segi við því. Þvílíka plássið sem þetta tekur allt saman… þ.e. klippidæmið sko.. ekki konan. Hún er nett og fín.

Þangað til næst…..

Giacinto Facchetti

Fyrir ykkur sem hugsið núna… ohh enn einn fótboltapistillinn… Hættið bara að lesa núna, þetta meira svona fyrir sjálfan mig takk.

Mikil Inter hetja sem kvaddi heiminn í dag aðeins 64 ára að aldri.
Giacinto Facchetti spilaði yfir 700 leiki fyrir Inter á 18 ára atvinnumannaferli. Hann spilaði allan sinn feril fyrir Inter og var fyrirliði lengst af.

Facchetti spilaði 94 landsleiki fyrir Ítalíu og var fyrirliði í 70 þeirra. Hann vann Evrópubikarinn með Ítalíu 1968 og var fyrirliði Ítalíu í úrslitaleik HM 1970 sem að Brasilía vann.
Facchetti vann ítalska meistaratitlinn 4 sinnum í gullaldarliði Inter ásamt því að vinna 2 Evrópubikara, 2 UEFA bikara og Ítalska bikarinn.
Giacinto Facchetti var eini fyrrverandi leikmaður Inter sem hefur gegnt stöðu forseta félagsins en þeirri stöðu gegndi hann síðan 2004. Hann lést í dag eftir baráttu við erfið veikindi.

Blessuð sé minning hans…

Giacinto Facchetti f. 18 júlí 1942 d. 4 sept 2006



Þangað til næst…..

Nýr mánuður

Það er kominn september, haustið komið svona formlega, Pabbi minn búinn að eiga afmæli og ég veit ekki hvað og hvað.

Er einhver þarna úti sem á stingsög til að lána mér??? Eða kann að tengja uppþvottavél???

Nú er nefninlega elskulega og sæta konan mín orðin dálítið, og þegar ég segi dálítið þá meina ég all svakalega þreytt á mér. Enda er maður nú ekki mikill iðnaðarmaður í sér. En málið er það að við hjónaleysin fengum fínustu uppþvottavél í jólagjöf… hmpf, já jólagjöf fyrir rúmlega 8 mánuðum síðan. Og málið er að það þarf að saga aðeins úr innréttingunni fyrir henni og svo þarf að sjálfsögðu að tengja kvikindið. Og til þess að tengja kvikindið þarf að skrúfa vatnið af stigaganginum og þetta er einhvern veginn ofar mínum skilning. Vissulega gæti ég álpast niður í kjallara og skrúfað fyrir einhverja krana án þess að ég hafi hugmynd um hvað maður er að gera og farið svo upp og rifið pípurnar undir vaskinum í sundur og vonað það besta en í þessu tilfelli vil ég frekar hafa einhvern kunnáttu mann í þessu með mér. Það vill nú til að annar hver maður í Vatnsberunum er pípari þannig að nú er bara spurning hver bíður sig fram???

Hérna er sæta konan mín og það sem kemur svo…

Þangað til næst….

Rockstar

Maður var náttúrulega vakandi langt fram eftir öllu til að kjósa hann Magna kallinn, svo komst maður að því í morgun að það var aðal sportið að breyta tímabeltinu á tölvunni og kjósa langt fram eftir degi líka… Hnuss, upplýsingar sem hefðu komið sér vel í gær þeink jú verí mötsj

Núna er maður búinn að vera geispandi í allan dag eins og einhver hvalur, loftið nánast búið hérna í versluninni þar sem að Ingi er í sama ástandi og ég.

Geisp

Þangað til næst….

Góðir morgnar

Morguninn í morgun… Hann var spes. Rúna hafði verið á djamminu og ég og Kristján Freyr vöknuðum bara 2 saman. Eða reyndar vaknaði hann svona meira einn saman. Ég vaknaði nokkrum mínútum seinna við að hann var að sparka í andlitið á mér og þótti það alveg rosalega fyndið. Ég drattast hálf myglaður á lappir og tek strákinn fram með mér til að leyfa frúnni að sofa, enda var hún nýkomin heim. Ég ákveð að skella mér í sturtu og hef opið svo að ég geti nú talað við guttann og svona nokkurnveginn fylgst með honum… Mistök, þegar sturtan var búin voru eftirtaldir hlutir ofan í baðkarinu hjá mér… 3 stk sprittkerti, mismikið notuð, heimilissíminn, plastbolti, leikfangabíll og eitt snuð.
Honum finnst semsagt rosalega mikið sport að henda dóti í baðkarið. Note to self, kaupa læsingu á klósettsetuna.
Svo þegar sturtan er búin útbý ég hafragraut fyrir pjakkinn, gef honum að éta og svo er skipt á honum. Þarna er kl orðin hálf níu og farið að síga á seinnhlutann af þessu. Þá flýti ég mér að klæða hann, dríf hann svo í útifötin og út í bíl, frekar stressaður þegar ég bruna með hann fram hjá hverjum bakkanum á fætur öðrum þangað til að við komum að Leirubakka, Þar stoppum við og skellum okkur inn til dagmömmunnar sem nota bene ég er að hitta í fyrsta skipti. Þar er minn maður eitthvað súr og fer að gráta þegar hann skilur við pabba sinn… sniff, þetta er erfitt en þar sem að ég var orðinn of seinn í vinnuna þurfti ég að kveðja hann svona… grátandi.
En ég er pottþéttur á því að hann hefur verið fljótur að jafna sig þessi litli vargur.

matarvenjurnar eru nú ekki uppá marga fiska

En svona verða víst morgnarnir í vetur… úff, Ég er búinn að panta 10 nýja heimilissíma til að eiga á lager.

Þangað til næst….