Grundarfjörður = Næsland

Það var fínt að vera í Grundarfirði, eins og alltaf. Nóg að borða og nóg að slefa meððí.

Gott að hitta Soffa litla sem var búinn að vera veikur greyið. Tók ofur PSP tölvuna mína með, svona til að hafa eitthvað til að dunda sér við þegar Rúna var að skúra Kaffi 59.

Annars er bara mánudagur dauðans. Fór samt snemma að sofa og snemma á lappir til að skipta á litlu rúsínunni… Sem er alltaf jafn hress á morgnana. Það er ekkert betra en að líta ofan í vögguna hans og fá á móti sætasta bros sem fyrirfinnst í heiminum og gjörsamlega bræðir mann eins og ís í örbylgjuofni. Hann er svooooo sætur og maður fer alltaf hress í vinnuna eftir að hafa skipt á honum og hjalað við hann á morgnana. Yndislegt alveg hreint.

En annars er bara málið að allir fái sér myndasíðu hjá Soffa. Þetta er alveg frítt.

Hérna koma svo nokkrir góðir eftir Billy Connolly:

Two guys are talking and one says to the other: “What would you do if the end of the world was in 3 minutes time?” The other one says, “I’d sh*g everything that moved…What would you do?” And he says, “I’d stand perfectly still.”

I’m a big fan of the Mars Bar Diet. You don’t eat the Mars bar, you stick it up your arse and let a rottweiler chase you home.

American sex shops are the most bizarre. They sell these inflatable dolls, but they also sell just the head – supposedly for people to drive along the freeway with.

Who discovered we could get milk from cows, and what did he THINK he was doing at the time?

Þangað til næst…..

Vesturfarar

Við förum vestur um helgina. Um að gera að kíkja heim í heiðardalinn áður en ungbarnasundið byrjar á fullu hjá Kristjáni Frey.

Nú er höfðinginn hann Jón Frímann búinn að selja ofan af sér húsið og er fluttur inn til okkar Rúnu. Hann fær eina herbergiskitru gegn því að hann verði alltaf úti á sjó og láni okkur sjónvarpið og heimabíóið um ókomna framtíð. Þetta er sæmilegasti díll. Nú erum við búnir að setja upp heimabíó og allann pakkann og svo loksins þegar ég verð búinn að modda nýju x-box vélina og tengja hana við heimatölvuna og heimabíóið þá þarf ég aldrei aftur að fara út úr húsinu. Ef það væri ekki fyrir þessa bévítans vinnu sem skemmileggur allt. En maður verður víst að hafa efni á að borga af kofanum sem maður býr í.

PSP tölvan mín er snilld. Þvílík grafík í þessu tæki. Þvílíkar framfarir síðan þessar litlu leikjatölvur voru hérna í denn. Gameboy og sega mega og hvað þetta hét allt saman. Þetta er eitthvað annað en donkey kong og félagar.

En nú er komið nóg í bili

Þangað til næst….

Maiden

Ég var að horfa á Rock in Rio með Iron Maiden á PSP vélinni minni og sjitt hvað þessir gömlu jálkar eru geðveikt góðir. Maður hitnaði allur í maganum þegar maður var að horfa á þessa snilld. Sjiiiittt marr, þegar Adrian Smith stendur einn á sviðinu fyrir framan 250.000 manns og tekur byrjunar riffið á The Wicker Man, það er ógeðslega töff.

Rodney Dangerfield var fyndinn gaur:

A girl phoned me the other day and said… Come on over, there’s nobody home. I went over. Nobody was home.

I came from a real tough neighborhood. I put my hand in some cement and felt another hand.

I could tell that my parents hated me. My bath toys were a toaster and a radio.

I drink too much. The last time I gave a urine sample it had an olive in it.

I had plenty of pimples as a kid. One day I fell asleep in the library. When I woke up, a blind man was reading my face.

I worked in a pet store and people would ask how big I would get.

My cousins gay, he went to London only to find out that Big Ben was a clock.

My father carries around the picture of the kid who came with his wallet.

My mother had morning sickness after I was born.

My mother never breast fed me, she told me she only liked me as a friend.

My wife and I were happy for twenty years. Then we met!

My wife was afraid of the dark… then she saw me naked and now she’s afraid of the light.

What a kid I got, I told him about the birds and the bee and he told me about the butcher and my wife.

When I played in the sandbox, the cat kept covering me up.

When I was a kid my parents moved a lot, but I always found them.

Þangað til næst….

Abrakadabra… *PÚFF*

Hvað segist?

Fyrir 2 árum:

október 05, 2003

Hamingjuóskir: Gæi nokkur Hadda og Rakel spúsan hans eignuðust litla prinsessu aðfaranótt laugardags, krílið var 14 merkur og 50 sentimetrar við fæðingu og óskar Ruglukollurinn þeim og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju 🙂

Stundum þegar maður vaknar eftir of mikinn svefn er eins og maður sé barasta þunnur, það er kannski ekkert vit í því að hætta að drekka hmm ef maður er hvort eð er alltaf þungur í hausnum og asnalegur, djöfuls óréttlæti.

Þangað til næst…..

Fyrir ári:

október 05, 2004
Með botninn í ofni

Hvað segist fóks? Þriðjudagur í dag og viti menn. Tommus vann í happdrætti háskólans úúúúújjjeeee, búinn að taka þátt í þessu síðan sautjánhundruð og súrkál og vann í fyrsta skipti um daginn. Og viti menn, ekki var vinningurinn af verri endanum…. heilar fjögurþúsund kr og afnot af skóburstanum í kolaportinu í 3 vikur. Ekki amalegt það hmmmm.

Um daginn fór Tomminn á krossarann sem G.Alex á. Þetta er sko alvöru sport marr. Þvílíkt gaman að þessu. Þvílík létt hjól og gaman að þeysast um fjöll og firnindi á þessu.

Þetta er magnað sport. Spurning um að fjárfesta bara í svona fyrst að þúsundkallarnir eru farnir að streyma til manns frá HHÍ hmmm hehehe.

Svo er Dabbi kallinn Hlíðkvist byrjaður að blogga og bulla aftur á nýrri heimasíðu og að sjálfsögðu fær hann þá nýjann link í tilefni dagsins. Til hamingju Dabbi minn.

Þangað til næst…..

Svona var það þá, Ekki í dag, eða eitthvað.

Þangað til næst….

Verðlaun verðlaun verðlaun

Nú er ég búinn að innheimta 3 verðlaun á einni helgi. Á föstudaginn fékk ég X-Box vél með 16 leikjum og einhverju aukadóti. Á laugardaginn var ég dreginn út í einhverjum leik á Enska boltanum og vann þar fína Adidas íþróttatösku með einhverju aukadóti. Svo í gær fékk Sony PSP tölvu með einhverju aukadóti. Þetta er alveg þrælmagnað helvíti. Svo í hádeginu borðaði ég fisk á Pítunni….

Ótrúlegt.

Þangað til næst….

Mánudagur

Það er nú meiri mánudagurinn í dag. Enn heldur þetta bévítans Chel$ki að vinna endalaust og bendir nú flest til þess að þeir rúlli deildinni upp eins og skinku fyrst að sjálfir Evrópumeistararnir voru nú ekki mikil hindrun fyrir þá. Steinláu á Analfield 1-4.

En nóg um það. Ný vinnuvika, nýr mánuður fullur af nýjum tækifærum. Eða eitthvað, voðalega er maður eitthvað háfleygur.

Soffi er enn að græja nýju myndasíðuna. Eins og er þá sýnir hún bara brotabrot af myndunum sem eru þarna inni. Það kemst samt allt í lag fljótlega.

Word

Þangað til næst….

Veikindi

Litli pjakkurinn minn er veikur, með smá hita og alltaf með stíflað nef, ekki mjög gaman þar sem hann sefur ekkert mjög mikið á nóttunni. En svona er þetta. Nú komumst við ekki með hann í ungbarnasundið eins og við vorum búin að plana, það verður bara að bíða betri tíma.

Ég er búinn að vinna mér inn 2 leikjavélar í vinnunni undanfarna 2 mánuði. Í gær fékk ég eitt stk X-Box með 16 leikjum og einhverjum aukahlutum og á mánudaginn fæ ég eitt stk PSP með aukahlutum… Hell Je.

Annars verður það bara rólegheitahelgi hérna í Blöndubakkanum.

Þangað til næst…..

Allakazam

Svona líka rosalegi mánudagurinn í dag. Veit ekki. Maður er nú svona hálf tussulegur í vinnunni. Lokahóf Vatnsberana fór friðsamlega fram síðastliðinn föstudag þar sem Frímann og Ibsen dreyfðu verðlaunum eins og ég veit ekki hvað.
Svo var ég að vinna á laugardaginn á meðann Valur varð bikarmeistari og Man Ure tapaði fyrsta leiknum á tímabilinu hnuss. En ég má til með að segja ykkur eitt.

Hann Jón Frímann Eiríksson sem titlar sig sem stórvin minn gerðist svo ósvífinn að koma færandi hendi með fokking Liverpool galla handa guttanum. Þetta kalla ég ósvífni og hræsni(Hvernig ætli Jón myndi taka því ef einhver færði honum KR galla???). Hann ber það fyrir sig að hann sé að gefa honum þetta og þetta komi mér ekkert við. En við vitum báðir að hann gerði þetta bara til að pirra mig. Kristjáni Frey er sko alveg skítsama hvort hann sé í Man Utd galla, Rósóttum kjól eða plastpoka, bara svo lengi sem að það pirrar hann ekki, enda er hann óviti ennþá.
En svona til að leggja línurnar.. og þeir viti þetta sem einhverntímann hyggjast gefa barninu einhvern Liverpool, Arsenal, AC Milan eða Chelsea varning af einhverri sort, að þá gaf ég Liverpool gallann sem að Jón kom með. Ég var mikið að spá í að henda honum eða brenna hann en þar sem að ég vissi nú að einhverstaðar er einhver sem gæti haft gaman af því að fá svona þá gaf ég Stebba og Sollu gallann fyrir Jón Auðunn.
Þeir taki þetta til sín sem eiga en mest myndi ég trúa Særúnu, Steina Jobba og Jóni Frímanni til að reyna að spilla syni mínum með einhverjum svona ósóma. Gleymið því bara því allt svona crap endar í ruslinu eða inná einhverju öðru heimili þar sem að einhver vill hafa svona rusl og hananú.

Þangað til næst…..