Heimska

Í dag gerði ég svolítið aulalegt. Málið var að ég og Rúna mín vorum úti í hádeginu á Ruby Tuesday. Ég lagði Súbbanum hans pabba í stæði fyrir utan rétt hjá rauðu ljósunum. Svo þegar við vorum búin að borða þá röltum við í bílinn eins og lög gera ráð fyrir. Settist inn og setti í gang. Svolítil móða á rúðunum og lélegt skyggni. Svo byrja ég að bakka út úr stæðinu og sé að bíll sem er að koma stoppar eins og hann ætli að hleypa mér. En viti menn, þá er annar asnalegur bíll beint fyrir aftan að bíða á rauðu ljósi og að sjálfsögðu dúnkaði ég beint á hann eins og sönnum aula sæmir.
Ekki var nú upplitið bjart á manni þegar ég steig út úr bílnum og sá að ég hafði dúnkað á AUDI A6 árg 2005… FOKK.
Þá var þetta einhver prestur að reynsluaka bíl frá Heklu. (Hafa prestar efni á svona?)
Þetta var nú samt voðalega lítið, það kom smá beygla fyrir ofan afturhjólið á Audinum en ekkert sást á Súbbanum góða. Fyllti út tjónaskýrslu og dreif mig í vinnuna.
Hérna koma hlutir sem ég ætla að kenna um:
Heimska rauða ljós fyrir að vera rautt.
Heimski bíll sem þóttist ætla að hleypa mér.
Heimska móða á rúðunum.
Heimski Tommi að gá ekki betur að sér.
Tjah, já kannski var þetta bara heimski Tommi en svona er þetta bara.

Jæja þetta fer að verða gott en ég lofa að fljótlega kemur slúður, vonandi um helgina en ég er annars að fara að keppa á morgun með FC Fist.

Og já, eitt enn. Til hamingju með afmælið og bílprófið Gústi minn. (sjá síðasta blogg hér fyrir neðan).

Þangað til næst…….

Öskudagur

Það er það versta að vera að vinna í verslun á Öskudaginn. Það er ekkert verra. Nammisjúkir gríslingar sem koma inn með lakkrísslef lekandi úr munnvikunum með græðgisglampa í augum, til að hafa sig að fíflum með því að syngja einhverja rammfalska slagara fyrir 2 mola. Jesús minn, hafa þessir krakka andskotar ekkert þarfara að gera? Maður sá það í augunum á sumum sem þarna voru að þeim fannst þetta ekkert gaman. Leið hreinlega skömmustulega fyrir að syngja falskt en létu sig samt hafa það fyrir eina karmellu á mann. Hnuss.

En að öðru. Gústi Alex litli kútur á afmæli á morgun 11 febrúar.

Til hamingju með afmælið kallinn minn. Og keyrðu nú varlega drengur.

Þangað til næst…..

Súperbówl

Er núna að góna á Njú England Peitríots vs Fíladelfía Ígöls í NFL Superbowl. Fílamenn er yfir as ví spík en þeir eru litla liðið í þessum leik. Þeir eru búnir að spila helvíti vel það sem af er. Við Jón Frímann, Arnar P. og Blobbi sitjum hérna. Frímann biður að heilsa öllum segir hann á meðan Arnar og Blobbi þræta um rifbrotna ógangandi vesalinga og hvort Troy Brown sé hýr.

Helvíti fín helgi er liðin en hún einkenndist af matarboðum á alla bóga. Málið er nefninlega að það byrjaði að leka í íbúðinni fyrir neðan okkar og það þurfti að brjóta upp veggina hérna hjá okkur út af einhverri fokkinn sprunginni pípu einhversstaðar í veggnum. Núna er búiða að brjóta allt inni í eldhúsi. Plast fyrir hurðinni og allt leirtauið er í stofunni. Þannig að ekki erum við að elda mikið hérna heima.

En Öðlingurinn hann Jón Frímann bauð okkur Rúnu í mat á fimmtudagskvöldið. Svo á föstudagskvöldinu bauð höfðinginn hann Jón okkur aftur í matarboð og nú var kallinn búinn að elda þorskhnakka ofan í liðið. Drullu gott hjá kallinum.
Á laugardagskvöldinu bauð Ellen okkur Rúnu í mat og bauð upp á dýrindis fylltan kjúlla. Og svo heita epla böku í desert. Alveg gourmet hjá henni.

Takk fyrir okkur. Svo er bara búið að hanga í dag. KFC og Dominos í matinn. Horfði á snillingana í Inter gera enn eitt jafnteflið. Voru manni færri á 35 min eftir að Everton rejectið klunnalega hann Materazzi varði með hendi á línu. Dumb ass. Rauða spjaldið var sanngjarnt og vítaspyrna að auki. Svo lentu þeir 2-0 undir á 54 min en ekki voru þeir á því að fara að tapa fyrsta leiknum ó nei ó nei. Einum færri tóku þeir sig til og jöfnuðu bara si svona. Helvíti öflugir bara. Vantar bara smá balance í liðið hehehe.

Skúnkur út.

Og Þorsteinn Pulsa Gunnarsson er hálfviti. Ágætis reddingar svo sem hjá Skjá 1 í boltanum. Ég held ég hafi séð þrjár útgáfur af þessu. Fyrst var sent út lýsingarlaust. Svo var leikur með íslenskum texta. Frekar asnalegt. Og að lokum var einhver gaur að tala ofan í ensku þulina. Þetta var bara fínt hjá þeim.

En þetta fer að verða ágætt af bulli.

Stei Kúl

Þangað til næst……

Steini Pulsa

Þetta er athyglisverð lesning sem er tekin af http://www.baggalutur.is

Útvarpsréttarnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að útsendingar Skjás Eins á knatt­­spyrnu­­leikjum í ensku úrvaldsdeildinni með lýsingu á ensku brjóti gegn útvarpslögum. Mun þetta líklega hafa í för með sér skerta þjónustu Skjás eins gagnvart neytendum sem mun lýsa sér í færri útsendingum á leikjum.

Nú er ég enginn sérstakur knattspyrnu­áhuga­maður, en mál þetta þykir mér hið forvitnilegasta, sérstaklega í ljósi þess að það virðist vera í lagi að erlendar gervihnattastöðvar básúni erlendu efni yfir landsmenn – og það ótextuðu. Kannski ætti Skjár einn að flytja reksturinn úr landi, gerast þannig “erlend” sjónvarpsstöð og beina sendingum sínum þó til Íslands. Má það?

Og hver kærði svo? Mörður Árnason eða einhver álíka réttsýnn málverndunarsinni? Nei, það var einn af tapsáru íþróttafréttamönnunum í stóra fjölmiðlabákninu sem áður átti sýningarréttinn á herlegheitunum og þénaði vel á. Væntanlega er hann fúll af því fólk vill frekar hlusta ókeypis á fagmannlegar íþróttalýsingar – þó þær séu á ensku – heldur en borga 4.000 krónur á mánuði fyrir að hlusta á misvelheppnaðar túlkanir hans og starfs­félaga hans á áðurnefndum enskum lýsingum. Að viðbættum þeirra eigin misgáfulegum athuga­semdum.

Best að kæra bara.

Ég legg til að knattspyrnuáhugamenn hafi þetta í huga næst þegar þeir hlusta á þá félagana lýsa því hvernig Njúkastul þurfti að lúta í gras þegar Alan Schmitt skoraði gegn þeim eftir horspyrnu.

Takk, Steini. Takk fyrir allt.

Sem svo oft fyrr hitta Baggalútsmenn naglann á höfuðið.

Slúður er samt væntanlegt fyrr en síðar

Þangað til næst…..

Óður til Man Utd

Hérna kemur smá hugleiðing um hið mikla lið Mansteftir Júnæted frá Tomma.

1. Tim Howard:

Hvað er hægt að segja um Tim Howard. Kani með Tourette taugakippi. Stressaðri en andskotinn en á sína punkta. Vantar sjálfstraust til að fylla skóna hans Schmeichel

2. Gary Neville:

Maðurinn sem allir elska að hata, Eldri Neville systirin er að mínu mati einn besti hægri bakvörðurinn í ensku deildinni og stendur eiginlega alltaf fyrir sínu. Ég er nokkuð viss um að Man Utd merkið sé tattúverað á hjartað á honum enda United maður fram í rauðann dauðann.

3. Phil Neville:

Phillarinn hefur alltaf verið svolítil veimiltítla en eftir að hann fór að massa þetta á miðjunni hefur honum vaxið ásmegin. Kíp opp ðe gút wörk.

4. Gabriel Heinze:

Sjitt, þessi maður. Þvílíkur annar eins nagli hefur bara ekki sést á Old Trafford síðan ég veit ekki hvenær. Óhræddur við að fara í allar tæklingar sama hvar þær eru á vellinum. Hefur unnið hug og hjörtu allra United aðdáenda með spilamennsku sinni. Kaup tímabilsins.

5. Rio Ferdinand:

Það er lítið sem þarf að segja um þig gleymni skúnkur. Þegar þú varst í banni fyrir heimskupör var allt í volli. En þegar þú komst til baka sterkari en nokkru sinni fyrr varð allt einhvernveginn miklu betra. Þú ert bestur.

6. Wes Brown:

Brownarinn hefur einhvernveginn alltaf verið efnilegur. Gríðarlega góður tæklari og hefur staðið sig með prýði. Alltaf verið hrifinn af honum sem varnarmanni. Enda rauðhærðir negrar sjaldséðir

7. Christiano Ronaldo:

Sjitt hvað hann á eftir að verða góður. Fyrst var hann alltaf að taka endalaus skæri og ekkert kom út úr því. Núna er hann kominn með smá leikskilning og verður bara betri og betri með hverjum leiknum sem líður. Verðugur til að bera nr 7 á bakinu.

8. Wayne Rooney:

Hann er ljótari en andskotinn en mikið djöfulli er hann góður og er aðeins 19 ára sjitt þetta er scary

9. Louis Saha:

Kom fyrir rétt rúmu ári, búinn að vera mikið meiddur og hefur ekki fundið sig í vetur en Tomminn gefur þér smá séns í viðbót.

10. Ruud van Nistelrooy:

Klárari af guðs náð. Með gríðarlegt record hjá United. Kóngur í sókninni. En lítur út eins og hestur but who gives.

11. Ryan Giggs:

Giggsy giggsy giggsy, búinn að vera lengi hjá okkur, allann þinn feril. Og ert ennþá jafn ógeðslega góður.

12. David Bellion:

Franskur pappakassi sem getur ekki neitt, verður kannski einhverntímann góður en þangað til skaltu halda þig í varaliðinu.

13. Roy Carroll:

Miðlungs varamarkvörður, ekkert meira en það. Gerir of mörg mistök. Ef hann væri ekki með þessa vörn fyrir framan sig væri hann löngu seldur til Huddersfield.

14. Alan Smith:

Leedsara djöfull sem varð rauður djöfull með góðum árangri. Það virðist vera gott fyrir United að kaupa menn frá Leeds því allir verða þeir helvítis snillingar. Cantona, Ferdinand og nú Smithy. Baráttuhundur fram í RAUÐANN dauðann.

15. Kleberson:

Bara nafnið minnir á Brasilískan kynsjúkdóm, hann hefur aldrei gert neitt fyrir mig. Pappakassi með meiru. Já og mér er sama þótt hann hafi unni heimsmeistaratitil. Hann er bara ekki að virka fyrir United, og svo er hann með teina.

16. Roy Keane:

Kóngurinn, fyrirliðinn og baráttujaxlinn Roy Keane. Þvílíkur snillingur og karakter. United er ekki eins án hans. Vona að hann geti spilað í 40 ár í viðbót.

17. Liam Miller:

Írskur pappakassi sem kom frá Celtic, hefur ekki sýnt mikið þannig að voila.

18. Paul Scholes:

Lítill, rauðhærður með astma en er samt dýrkaður. Mikil fyrirmynd fyrir rauðhærða.

20. Ole Gunnar Solskjaer:

Úrslitaleikurinn í Champ league 1999 gerði hann ódauðlegann í mínum augum. Snillingur.

22. John O’Shea:

Stór, klaufskur og klunnalegur. En svo poppar hann upp og skorar klassamark eins og á móti Arsenal. Ágætis player á bekkinn.

24. Darren Fletcher:

Eyðilagði drauma Íslands um að komast í umspil fyrir EM. Seint fyrirgefið en annars ertu allur að koma til.

25. Quinton Fortune:

Negri frá Afríku, svo sem fínn squad player en ekkert meira.

27. Michael Silvestre:

Snillingur, gríðarlega öflugur varnarmaður frá Frakklandi. Og ekki skemmir fyrir að hann var hjá Inter líka hehehehe. En hann lítur samt út eins og Corky en það er í lagi þegar hann skallar menn eins og Ljungberg enda sá svíadjöfull snaröfugur andskoti.

Þetta er fínt, þeir sem nenntu að lesa takk fyrir. Þið hinir sem nenntuð engan veginn að lesa og eruð þar af leiðandi ekki að lesa þetta þá bara farið í *#”%&$ neeeei djóóóók

Takk fyrir mig

Þangað til næst…..

Glory glory man utd

Já, það var kátt á hjalla í gær þegar við Arnar Pétursson öskruðum fagnandi í kapp við hvorn annan þegar United menn röðuðu inn mörkunum á Highbury. Big Goj og Blobbi sátu íhugulir á svip bíðandi í stressi eftir góðum fréttum af Liverpool leiknum sem var í gangi á sama tíma. Þetta var sætt, einn sætasti sigur á Arsenal sem ég hef hreinlega upplifað. Uuuusssss ussssusss.

Já þetta var sætt.

Þangað til næst…..

Mánudagur

Úff, þessi er óvenju erfiður, það munaði sláandi litlu þegar ég opnaði fataskápinn minn í morgun að ég hefði klætt mig í gamlar Ghostbusters joggingbuxur í staðinn fyrir buxurnar sem ég er í núna. Uuussss, það hefði verið all svakalegt að mæta í Ghostbusters joggurum með gati á hnénu í vinnunna. Ég hefði líklegast verið sendur heim með það sama bara.
Svo er klukkan orðin 12 núna og ég er ekki enn vaknaður.

Fór á Alexander um helgina, helvíti fín ræma bara. Samkynhneigðari en andskotinn samt. Jared Lýti er með þeim hommalegri, það verður bara að segjast.

Jæja

Þangað til næst…..